Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1916, Qupperneq 21
Samvinnustarf Dana.
Dönsku samvinnufjelögin settu á stofn, fyrir skömmu
síðan, af eigin ramleik, allstóran banka, eptir öllum sömu
reglum sem önnur samvinnufyrirtæki; er hann að öllu
leyti eign samvinnufjelaganna og rekinn á þeirra ábyrgð.
Hann er og eingöngu í þjónustu fjelaganna, og honum
er stjórrað af samvinnumönnum, eptir sömu fjelags- ög
fjármálareglum sem öðrum samvinnufyrirtækjum. Til-
gangur bankans er að byrgja öll samvinnufjelög Dana
með nægilegum verðmiðli til allra viðskipta þeirra, verð-
miðli, sem sje svo sem unnt er óháður fjármálabraskinu
utan við samvinnufjelögin, og að öllu leyti á valdi þeirra
sjálfra, bæði að notkun og áyöxtum.
Pessi samvinnubanki (Andelsbanken) hefir á skömm-
um tíma náð meiri þroska og fjárhagsfestu en við hafði
verið búizt og spáð hafði verið af ýmsum fjármálamönn-
um, sem utan við samvinnufjelögin standa. Hefir hann
þegar veitt fjelögunum mjög mikið starfsfje og lánsstyrk
með hagfeldum kjörum. Er því nú spáð, jafnvel af þeim,
sem áður voru vantrúaðir á þetta fyrirtæki *, að banki
þessi verði með tímanum ein af öflugustu og þörfustu
peningastofnunum Dana, að sínu leyti eins og sam-
bandsfjelagið mikla, sem nú er orðið langstærsta og öfl-
ugasta viðskiptastofnun Dana og sömuleiðis að bankinn
muni verða fyrirmyndarstofnun að öllu skipulagi og fjár-
* Sbr. Berlingatíðindin 20. Ágúst, f. á.