Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1922, Blaðsíða 12
6 Tímarit íslenskra samvinnufélaga
verða að kaupa inn mjög breytilegar vörur til langs tírna,
og oft frá mörgum löndum. Ennfremur að koma í verð
torseljanlegri innlendri framleiðslu á útlendum markaði.
Kaupfélagstjórinn verður að verðleggja alla erlenda vöru
bókfæra verðbreytingar, 'sem liæglega geta orðið allmiklar,
þegar lengi þarf að liggja með sama vöruforða. Og að
síðustu er kornið að erfiðasta þættinum í starfi lians. Að
lána félagsmönnum. Það verður ekki hjá því komist að
lána, en það þarf að gerast með gætni og mikilli urn-
hyggju. Kaupfélagsstjórinn þarf að fylgjast með í starfi
og atvinnurekstri hvers félagsmanns, vita um fólksliald
hans, skuldir annarsstaðar o. s. frv. Eg þekki kaupfélags-
stjóra, sem verið hafa ráðunautar fjöldamargra af félags-
bræðrum sínum í öllum þeirra fjármálum, hve mörgu fé
þeir ættu að lóga það haustið, hvort taka ætti bankalán
eitt ár til að auka bússtofninn og margt fleira af sama
tæi. Til að geta vel staðið í slíkri stöðu þarf mikilhæfa
menn, greinda, vel menta, víðsýna, góðhjartaða, en þó
fastlynda. Þetta eru eiginleikar sem enginn skóli getur
skapað, í hæsta lagi glætt og styrkt. Aðalatriðið er að
íslenskum samvinnumönnum geti skilist, að sú byrði sem
félögin leggja á herðar verslunárforkólfum sínum erbýsna
þung og miklu þyngri en gerist með öðrum þjóðum í
sambærilegum stöðum. En því meiri sem þrautin er, því
meiri er þörf manndóms og atgervis.
En vil í öðru sambandi minnast á starfsfólk samvinnu-
félaganna. Sný mér undireins að félagsmönnum sjálfum.
Þeir verða líka að bera sínar byrðar. Þeir verða að vera
í samábyrgð, a. m. k. þangað til samvinnufélögin eru búin
að skapa félagsmönnum nægilegt veltufé í stofnsjóðunum.
Pélagsmenn verða að nota það nauðsynjavopn gætilega.
Þeir verða að fylgjast með aðgerðum félagsbræðra sinna,
stjórnar og framkvæmdarstjóra. Vegna skuldanna, sem
leiða af tímabundinni afurðasölu hljóta, íslenskir kaupfélags-
menn að bera með þolinmæðu marga þá bagga, sem ekki
þarf að leggja á herðar samvinnumanna í öðrum löndum,