Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.03.1922, Qupperneq 33
Tiinarit íslenskra samvinnufélaga. 27
skóli reynir að skapa sem flesta milliliði, annaðhvort
sem húsbændur aða verslunarþjóna. Þessi er reynslan hér
á landi. Kaupmannamerg'ðin liggur eins og mara á þjóð-
inni. I Reykjavík er talið að sé um 500 verslanir.
Areiðanlega þyrftu þær ekki að vera nema 50. Allar hinar
eru óþarfa byrði á bænum og landinu í heild sinni. Land-
ið hefir stutt að því að auka fjölda milliliðanna, með því
að gera götuna sem greiðasta fyrir unga menn, að vinna
á þessum atvinnuvegi. Er mikið vafamál, eins og ástatt
er hér á la-ndi, hvort það er verjanlagt af fulltrúum
þjóðarinnar að stofna sérstakan skóla til að ala upp milli-
liði í verslun, eins ogþeir væru ekki nú þegar nógu margir.
Samvinnuskólinn heflr aldrei verið og getur aldrei
orðið verslunarskóli í líkingu við skóla kaupmanna. Sam-
vinnuskólinn er félagsmálaskóli og ekkert annað, hinn
eini hér á landi, sem stefnir að því marki. Það, að nokk-
rir af nemendum hans verða starfsmenn samvinnufélag-
anna, breytir engu í þessu efni. Langflestir verða starf-
andi félagsmenn í samvinnufélögunum, eða ryðja nýjar
brautir á öðrum sviðum félagslífsins. Þegar þetta er orðið
alviðurkent, munu menn átta sig á því, að Samvinnu-
skólinn líkist ekki fremur skóla kaupmanna í starfsliátt-
um og tilgangi, heldur en vélstjóra-, stýrimanna- eða bún-
aðarskólunum. Hlutverk Samvinnuskólans er að veita inn
í landið víðtækri þekkingu á samvinnu annara þjóða, og
sýna hve mörg erfið viðfangsefni má leysa með samvinnu
hér á landi. Sumir af nemendum skólans verða síðar starfs-
menn kaupfélaganna, endurskoðendur þeirra, stjórnendur,
eða félagsmenn. Aðrir ryðja samvinnunni nýjar brautir
í iðnaði, húsagerð, peningmálum, samgöngum o. s. frv.
En aðrir leggja á sig ólaunað erfiði við að koma upp sam-
vinnubókasöfnum við livert kaupfélag, námsfélögum um
slík efni, og mörgu fleiru. Samvinnuskólinn er jafnt fyrir
alla, karla og konur, unga og garnla, ríka sem fátæka, ef
þeir aðeins hafa vit og kjark til að vilja vinna að því
að lyfta almenningi á íslandi til meiri þroska og menn-