Andvari - 01.01.1918, Page 149
Andvari].
Austan hafs og vestan
107
er eg þess fullviss, að ef hann þekti þau nógu vel,
þá mundi hann telja þau frekar verð lofs en lasts.
þegar kemur upp í unglingaskólana, þá eru þar
um hundrað námsgreinir; eru margt af þeim not-
hæfar iðnir. Er nú leitast við að láta nemandann
velja það, sem bezt á við hans hæfi. Kemur þá lil
greina heilsufar hans, vitsmunir, eítirlanganir hans
sjálfs og köllun hans í lífinu.
Tilgangur uppeldisins er í stuttu máli að ala upp
sjálfstæða menn, sem sé færir um að hugsa sinar
eigin hugsanir; menn, sem sé færir um að bjarga
sér á heiðarlegan hátt í samkepni lífsins og Ieggja
fram sinn hluta til stjórnar lands síns.
Eg vona; að fyrirlesarinn virði mér vel þessar at-
hugasemdir mínar við fyrirlestur hans. Var tilgangur
minn sá einn að leitast við að gefa alþjóð manna
dálitla hugmynd um, hverl þeir menn stefna, sem
forustuna hafa hér á uppeldisbrautinni. Þetta grein-
arkorn heíir því miður ekki rúmað tysingar á jTms"
um aðferðum, sem hafðar eru hér í skólunum, til
þess að ná þeim tilgangi, sem eg liefi drepið á. —
Verða þær að bíða betra tækifæris.
New York, priðja í jólum 1916.