Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 8

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 8
STÚDENTABLAÐ S ingaverkfræðingar geti lokið fullnaðarprófi hér á fslandi, má áætla, að um þriðjungur þeirra stúdenta, sem ijúka fyrra hluta prófi hér, fari utan til framhaldsnáms í öðrum sér- greinum. Kennsluna til fyrra hluta prófs verð- ur því að miða við þau skilyrði, sem hásköl- ar erlendis kunna að setja, um aðgang stú- denta frá Háskóla fslands að framhaldsnámi í verkfræði, stærðfræði, eðlisfræði, stjörnu- fræði o. fl. Er ekki ólíklegt, að þau skilyrði geti að einhverju ieyti breytt þeirri tilhögun, sem nú er á kennslunni, enda hefir á margan hátt orðið að haga henni eftir óvenjulegum aðstæðum. Nú, þegar aftur er opin leið til Norðurlanda, verður sem allra fyrst að fá úr því skorið, hvort tekniskir háskólar á Norðurlöndum taki eins og áður íslenzka stúdenta til náms, og þá, hvort þeir muni taka gilt fyrra hluta próf í verkfræði frá Háskóla íslands. f tekniskum háskólum á Norðurlöndum er námstími byggingaverkfræðinga 4—4V2 ár og hefir kennslan hér verið miðuð við tveggja ára nám undir fyrra hluta próf, og 2 y2—3 ára nám undir siðara hluta próf, eða samtals 41/;—5 ár undir fullnaðarpróf. Að vísu er erfitt að ljúka verkfræðinámi hér á svo skömmum tíma, sérstaklega vegna þess, að kennslutíminn er nokkru styttri á ári hverju en í hliðstæðum skólum erlendis, en vegna þeirra stúdenta, sem þrátt fyrir það kynnu að geta lokið fullu námi á 4 '/2 ári, eins og t. d. í Danmörku, var ákveðið að miða kennsluna við sama námstíma og þar. Nú er í ráði að lengja námstímann undir fyrra hluta próf í 3 ár og kenna þá húsagerð og landmælingu í fyrra hluta námsins til þess að létta á síðara hlutann, enda mætti þá gera sér von um, að fyrra hluta próf yrði fremur tekið gilt við erlenda háskóla. Samtals hafa 50 stúdentar. verið skráðir til verkfræðináms.. Nokkrir þeirra hafa horf- ið frá námi, aðrir farið til náms í Ameríku, eða stunda nú annað sérnám. Síðastliðinn vetur stunduðu hér. verkfræðinám 36 stúd- entar, en auk þess sóttu .5^-6 stúdentar kennslu að nokkru leyti, meðan þeir biðu eftir tækifæri til þess að komast í sérnám erlendis. Af verkfræðistúdentunum hafa 8 lokið fyrra hluta prófi. Einn þeirra hefir farið til framhaldsnáms í Ameríku, í skipaverkfræði, en 7 leggja stund á byggingaverkfræði og munu ljúka burtfararprófi hér við háskólann, ef þeir fá aðstöðu til þess. Fyrra hluta nám stunduðu 29 stúdentar, og af þeim ganga nú 9 undir fyrra hluta próf, en að því loknu hafa nokkrir þeirra í hyggju að leggja stund á ýmsar sérgreinar verkfræðinnar við háskóla erlendis. Fyrstu verkfræðingarnir frá Háskóla Is- lands ljúka væntanlega fullnaðarprófi á næsta ári. Má ætla að þá verði hér þörf fyrir 20— 30 byggingaverkfræðinga, auk þeirra, sem fyrir eru. Er því fyrirsjáanlegt, að á næstu árum verður vöntun á byggingaverkfræðing- um. Stúdentar í verkfræðideildinni geta að nokkru leyti bætt úr því með því að vinna að sumrinu hin einfaldari verkfræðistörf með eftirliti verkfræðinga. Síðastliðin þrjú sumur hafa því nær allir verkfræðinemarnir unnið við landmælingar og teikningar hjá ýmsum stofnunum. Hafa þeir með því létt undirbún- ing ýmsra fyrirtækja og jafnframt fengið nokkur kynni af viðfangsefnum íslenzkra verkfræðinga. Stofnun verkfrœðideildarinnar. Með lögum frá Alþingi, 14. des. 1944, var verkfræðideild stofnuð við Háskóla Islands og jafnframt ákveðið að við deildina verði 3 prófessorar. Lögin kveða ekki á um það, hvort stúdentum verði veitt kennsla til fulln- aðarprófs í verkfræði, en greinargerð há- skólaráðs, ,sem fylgdi frumvarpinu, nær þó til síðara hluta náms í byggingaverkfræði. I greinargerðinni eru færð eftirfarandi rök fyrir stofnun deildarinnar: 1. Með stofnun verkfraeðideildar fengist inn- , lend miðstöð í mörgum tekniskum fræði-

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.