Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 32

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 32
32 STÚDENTABLAÐ Raddir íslendinga erlendis um SJÁLFSTÆÐI ÍSLANDS í fyrsta hefti Fróns er birt fullveldisræða, sem Jón Helgason próf. flutti 1. des. 1941. . .. . Vér höfurn sett oss það mark aö halda wp'pi menningu, sérstákri islenzkri menningu, sérstöku blómi, sem fái lit sinn og svip ein- mitt af því að hafa sprottið upp úr þeim jarð- vegi, sem land vort hefur að bjóða og þrosk- azt i því lofti, sem um það leikur. Þennan íslenzka menningamÁlja má rekja allt frá því, er sögur hefjast á landi voru. Stundum hefur hann ekki verið nema fálm- andi viðleitni, líkastur kulnandi neista, en stundum liefur hann líka borið glæsilegan ár- angur og líkzt björtum vita. Það er sá fagn- aðarboðskapur, sem ávallt skal hljóma fyrir eyrum vorum, þegar efasemdirnar eru reiðu- búnar að lcesast inn i hugskotið og lama fram- takið, að dæmin færa oss heim sanninn, að íslenzk þjóð hefur stundum eklá aðeins vilj- að heldur einnig getað. .. . ★ I októberhefti Fróns 1943 segir Jón Leifs tónskáld í grein, sem hann nefnir Hjáleigu- mennska og er annars gagnrýni á ýmislegt það, sem miður fer í þjóðlífi voru: . . . .Oss hrýs hugur við eymd íslenzku þjóðarinnar á seinustu öldum. Frásagnir um það virðast á vorum dögum harla ótrúlegar. Vér verðum agndofa af undrun, ef vér athug- um upphaf íslenzkrar endurreisnar og þau djörfu fyrstu spor, sem t. d. Fjölnismenn og Jón Sigurðsson stigu, þrátt fyrir alla niður- (Kaílai úi tímaiitinu r,Fión") lœgingu og fátækt — jafnvel upphafsmann- anna sjálfra og stuðningsmanna þeirra. Oss virðist nærri óskiljanlegt, hvernig þetta upp- haf gat yfirleitt orðið til og allt það, sem af því leiddi. Hversu miklu betri er aðstaða vor nú, þegar heita má að öll nauðsynleg verk- færi séu lögð upp í hendurnar á oss og vér þurfum aðeins að sýna að vér kunnum að nota þau. Vér sjáum hvernig seinustu kynslóðir ís- lendinga hafa eins og hlaupið hver fram fyrir aðra með alls konar framförum, og svo mun verða enn. Þessir sífelldu framfarakippir með hverri kynslóð gefa oss miklar vonir og skuld- binda æsku vora til þess að liggja ekki á liði sínu. .. . ★ Tryggvi Sveinbjörnsson segir í Fróni í jan- úar 1944: fsland er i afstöðu, sem ekki er hægt að líkja við neitt annað timábil i sögu landsins: Gnægð auðfengis fjár, en um leið miklar liættur úr ýmsum áttum, einnig hættur að innan, úr okkar eigin brjósti. Okkur ríð- ur þvi á að vera á verði, Islendingum. Okkur riður meira á þvi nú en nokkru sinni. Nú verðum við að sanna, að við séum færir um að bera veg og vanda af að vera ríki, álger- lega óháð öllum í hvívetna. Hvernig eigum við að sanna tilverurétt okkar? Mér er aðeins kunnugt um eina leið, einn möguleika: öfluga menningu, menningu anda og handar, ástund-

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.