Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 42

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 42
42 stOdentablað er, getið sér hinn bezta orðstír fyrir afskipti sín af félagsmálum stúdenta, bæði fyrr og síðar. Ritstjórinn stakk upp á því, að Stú- dentafélag Reykjavíkur yrði tekið með inn í útgáfufyrirtæki þetta, og færi líka vel á því, þar eð ekki væri ætlunin, að tímaritið yrði fyrir háskólastúdenta eina, heldur yrði það, samkvæmt áætlun stúdentaráðsins, málgagn allra íslenzkra ,,academikera“. Taldi hann, að grundvöllurinn yrði með þessu móti öruggari og meiri trygging fyrir velgengni fyrirtækis- ins. Stjóm stúdentaráðs sá ekkert þessu til fyrirstöðu og var nú leitað hófanna hjá stjórn Stúdentafélagsins um það, hvort félagið mundi vilja gerast aðili að þessu merkilega máli og var af hennar hálfu tekið vel í það. Síðan lagði stúdentaráð blessun sína yfir þessa breytingu. Þá æskti ritstjórinn þess, að tveir menn væm skipaðir, sinn frá hvorum aðila, til að vera til aðstoðar um efnisval og söfnun o. fl. Hefur stúdentaráð nú tilnefnt Björn Þor- steinsson stud. mag. til þessa starfs, en Stú- dentafélag Reykjavíkur Benedikt Bjarklind cand. jur. Þess er vænzt, að fyrsta hefti þessa tímarits geti komið út snemma á næsta hausti. Er heitið á stúdenta að leggja sig fram við útbreiðslu ritsins, en það munu flestir vera sammála um, að ekki sé með öllu vansalaust fyrir stúdenta að geta ekki staðið fyrir_ út- gáfustarfsemi sem þessari, en þetta munu flestir háskólar veraldarinnar gera. Má og minnast þeirra fáu íslenzku stúdenta í Höfn, sem gefa út tímaritið Frón, og ætti okkur ekki að reynast örðugra um vik en þeim. Afgreiðslumaður timaritsins hefur verið ráðinn Árni Garðar Kristinsson, Nýja Stú- dentagarðinum. Handbók stúdenta. Á fundi, sem haldinn var i stúdentaráði ekki alls fyrir löngu, kom fram tillaga um það, að hafizt yrði handa um útgáfu nýrrar hand- bókar fyrir stúdenta. Kom síðasta handbók út árið 1936 og er því sem vænta má orðin ærið úrelt. Var ákveðið að mælast til þess við Lúðvík Guðmundsson forstöðumann Upplýs- ingaskrifstofunnar, að hann tæki að sér að sjá um verkið. Skömmu áður en Lúðvík lagði af stað í för sína til Mið-Evrópu, barst ráðinu bréf frá honum, en þar tjáir hann sig fúsan til að sjá um undirbúning útgáfunnar í sumar og muni hann í utanförinni afla sér þeirra upplýsinga, sem kostur er á, og að haldi mættu koma í slíkri handbók. Er þess því að vænta, að ekki verði mikill dráttur á þessu nauðsynjamáli úr þessu. Embœttispróf. Eftirtaldir menn hafa lokið embættisprófi við Háskólann: Lögfræði: Björn Sveinbjömsson I. eink. 211 stig. Gunnlaugur Þórðarson I. eink 184 stig. Halldór Þorbjörnson I. eink 211% stig. Krist- inn Gunnarsson I. eink. 184% stig. Óli Her- mannsson I. eink. 196 stig. Páll S. Pálsson I. eink. 181% stig. Ragnar Þórðarson I. eink. 208 stig. Sigurgeir Jónsson I. eink. 211 stig. Viggó Tryggvason II. eink. 155 stig. Læknisfrcsði: Björn Guðbrandsson I. eink 170 stig% stig. Einar Th. Guðmundsson 11,1. eink. 129 stig. Ragnheiður Guðmundsdóttir I. eink. 164 stig. Þorgeir Gestsson I. eink. 153% stig. Guðfræði: Geirþrúður H. Bernhöft I. eink. 129% stig. Guðmundur Sveinsson I .eink. 160 stig. Lárus Halldórsson I. eink. 128 stig. Le6 Júiíusson I. eink. 145 stig.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.