Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 19

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 19
STÚDENTABLAÐ 19 Háskólans, 1 : 0. Keppni þessi hefir síðan verið fastur þáttur í íþróttalífi stúdenta, enda farið fram flest árin. 1 febrúar 1932. varð sú breyting á, að nýr kennari var ráðinn til félagsins, Benedikt Jak- obsson. Var þá tekin upp sú nýbreytni, að handknattleikur var æfður með leikfiminni, og þótti það örva æfingasókn. Hefir handknatt- leikur ávallt síðan verið ein hin vinsælasta íþrótt meðal stúdenta. Veturinn 1938 gekkst Samband Bindindisfélaga í skólum fyrir hand- knattleikskeppni milli skólanna, og hefir sú keppni farið fram síðan. Leikir þessir hafa oft verið harðir og skemmtilegir, og hefir Háskólinn oftast borið sigur úr býtum. Árið 1940 tóku stúdentar þátt í landsmóti í handknattleik og urðu þar aðrir eftir harðan leik við Val. Árið 1934, eftir að lokið hafði verið bygg- ingu Stúdentagarðsins, hóf félagið æfingar í nýjum sal, þar í byggingunni. Æfðu stúdentar þar hnefaleika, sem Þorsteinn Gislason kenndi, auk leikfimi og handknattleiks, sem Benedikt kenndi eins og áður. Hnefaleikar voru æfðir öðru hvoru þar til órið 1939, að þeir féllu niður. I marzmánuði 1938 fór fram í fyrsta skipti bringuboðsundskeppni milli framhaldsskólanna í 20 manna sveitum. Keppt var um bikar, gef- inn af Stúdentaráði. Stúdentar báru glæsileg- an sigur úr býtum fyrstu árin, en siðan hefir Iðnskólinn oftast unnið. Þá hefir einuig farið fram síðan 1940 keppni í skriðsund'- ooðsundi í 10 manna sveitum. Keppt var í fyrstu um bikar, sem prófessor Alexandor Jóhannesson gaf, og vann Iðnskólinn þessa fyistu keppni og hefir hin síðustu árin reynzt ósigrandi í báðum þessum boðsunds- keppnum. Veturinn 1938—1939 æfðu nokkrir stúdentar frjálsar iþróttir í íþróttahúsi K. R. við Tjörnina. Tilefnið vai það, að ráðgerð var keppni í frjáls- um íþróttum milli Menntaskólans og Háskól- ans. Keppni þessi fór fram um miðjan maí, og vann Menntaskólinn. Síðan hafa ýmsir stúdent- ar getið sér góðan orðstír í frjálsum íþróttum, en engar skólakeppnir farið fram. Þó hafa stú- dentar keppt sameinaðir í 4X200 m boðhlaupi ■I. 0Æ.— fíwnnmync/ rns ^eos ** POS ■tK|íC5 eos .f° eoa <MOO «ocm||l!!|jj|þ |i |e LL |f> |7 |8 íw !« |« |« 1« (15 1/6 \f7 |e 1» Jeom 197 /PO SP- /90-59-/00 59- /90

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.