Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 29

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 29
STÚDENTABLAÐ 29 Etnil Björnsson stud. theol.: T unglskinsblettir á heiðinni Það var einmitt rætt um hæfileikamenn, óskabörn hamingjunnar, sem allir tengja glæstar vonir við, engir öfunda lengur en dást aðeins að. Hversu öruggir hlutu þeir að vera, sælir og óttalausir. Þetta var um haust dagsbirtan þrotin og dimmt í vagninum að kalla. En nábleikir tunglskinsblettir báru fyrir augu hér og þar út um gráföla heiðina. Samræðunum hélt áfram, en smám saman var eins og annarleika bleiku blettanna þyrmdi yfir okkur þarna inni, yfir tuttugu saman. Við streittumst á móti þessum álög- um eins og gegn lokkandi, gínandi hættu, en árangurslaust. Og svo kom það eins og þegar linast á taki eða slaknar á stagi, og við tók- um að njóta þess sem við vildum varast, njóta þess í titrandi óttablandinni eftirvæntingu. Og nú lagði einhver orð í belg aftur í vagn- inum og mér fannst ég í senn aldrei hafa heyrt þessa rödd og alltaf þekkt hana. Allir litu við. Ég fyrirvarð mig, en mér barst svo ógnhlaðið hugboð, að mér var naumast vært í sætinu. Það var óstöðvandi þensla og spenningur í líkamanum öllum, líkt og er fyrir bringspölum á undan uppköstum. Ég gat þó með herkjubrögðum setið kyrr. Það var Steinn Steinsson stúdent, sem tal- aði. Það voru eingöngu stúdentar aftur í vagn- inum, þeir voru á leiðinni suður að hefja fyrsta háskólanám sitt og höfðu haldið gleð- inni hátt á loft um daginn, en nú hafði vart dottið eða dropið af þeim um hríð, og eins og af þeim dregið. Steinn hafði verið þeirra fjör- mestur, allt að ofsaglaður öðrum þræði. En nú cnart raddhljómur hans mig eins og raf- straumur lítið skorkvikindi, rændi mig gex'- samlega öllu jafnvægi. Þennan raddblæ skynjaði ég ekki framar sem hljóm, heldur lit og lykt. Og þó var hann ekki í lit, það var myrkrið sjálft með bleikum blettum, og lykt- in eins og af sjóðheitu blóði. Ég hnykkti mér til. Var ég að ganga af göflunum, eða hver býsn lágu í loftinu. Auðvitað var það þó einmitt Steinn, sem hér átti fyrstur að leggja eitthvað til málanna. undarlegt, að mér skyldi ekki fyrr hafa kom- ið það til hugar. Ég minntist þess nú glöggt, sem einn félaga hans hafði sagt mér, áður en lagt var af stað frá gistihúsinu um morg- uninn, að engan mann vissi hann jafnast á við Stein, taldi hann afburða hæfileikamann, talaði um hann með hreinni lotningu.

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.