Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 44
44
STtJÐENTABLA'Ð
AlþýSuflokksfélag háskólastúdentá.
Stjórn skipa: Helgi Þórarinsson stUd. jur.
form., Jón Ingimarsson stud. med. ritari og
Eyjólfur Jónsson stud. jur. gjaldkeri.
Kristilegt stúdentafélag.
Stjórn skipa: Jóhann Hlíðar form., Sverrir
Sverrisson gjaldkeri og Arngrímur Jónsson
ritari. Félagið gefur út „Kristilegt stúdenta-
blað“.
Orator, félag laganema.
Stjórn skipa: Vilhjálmur Árnason form.,
Sigurður R. Pétursson og Axel Ólafsson.
KaupahéSinn, félag viðskiplafrœðinema.
Stjórn skipa: Kristinn Gunnarsson form.,
Einar Guðjohnsen og Bjarni F. Halldórsson.
Félag lœknanema.
Stjórn skipa: Erlendur Konráðsson form.,
Gísli Ólafsson ritari og Stefán Björnsson
gjaldkeri.
Bindindisfélag Háskólans.
Stjórn skipa: Kristinn Gunnarsson stud.
oecon. form., Sverrir Pálsson stud. mag. og
Þorsteinn Árnason stud. med.
Brœðralag, kristilegt félag.
Stjórn skipa: Leó Júlíusson form., Þor-
steinn Valdimarsson gjaldkeri og Andrés Öl-
afsson ritari. Félagið hefur staðið fyrir út-
varpskvöldvöku, sem þótti takast vel.
Teikningar.
Allar „karikatur11 teikningar hefur Jóhann
Bernhard gert að undanteknum tveim, sem Árni
Garðar Kristinsson stud. jur. hefur teiknað. —
Aðrar teikningar svo og haus á forsíðu og 3.
síðu hefur Stefán Ólafsson stud. polyt. gert.
TUN GLSKIN SBLETTIR
HEIÐINNI
Framh. af hls. 31.
skriðið inn um glugga hjá skólapiltum á
neðstu hæð hússins í skjóli nætur, stigið
óvart ofan á þá sofandi í myrkrinu, og flúið
æðisóp þeirra eins og þjófar eða huglausir
draugar. Hann var nýbúinn að yrkja þessa
vísu, og sorgir okkar voru þungár sem blý.
Það er hreint ekkert spaug, það er beinlínis
átakanlegt að vera sígrundandi ungur maður
í sjötta bekk.
En áfram, áfram er hjólið horfið síðan
þetta var, og aldrei setti vinur minn upp
rauða kragann. Nú gengur hann með hvítt
um hálsinn á hærri stöðum, og ég skekkist
naumast framar svo úr viðeigandi hugar-
jafnvægi manns í mínu embætti, að ég lendi
niður á milli þils og veggjar vöku og draums
og sjái stjörnur, sjái rautt, sjái tungskins-
bletti á heiðinni.
ÍJjróttir.
1 handknattleikskeppni Sambands bindindis-
félaga í skólum, sem fram fór í marzmánuði
s. 1., bar Háskólinn sigur úr býum í fyrsta
flokki, vann alla keppinauta sína.
f bringusundskeppni skólanna varð Háskól-
inn nr. 2, en í skriðsundi nr. 3. Hvað sundið
snertir ætti að vera vandalaúst fyrir Háskóla-
nemendur að ná betri árangri.
Skíðafélag stúdenta sendi keppendur á flest
skíðamót vetrarins. Urðu þeir félagi sínu og
skóla til sóma.
Ritnefndin þakkar öllum þeim, sem á einn
eða annan hátt hafa lagt þessari blaðaútgáfu
liðsinni sitt.