Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 16
16
STÚDENTABLAÐ
ef býðst þér nautnin frjóa,
sem gleður liug og göfgar hann,
er guðaveigar flóa.
En frjálslyndi og félagslund,
er fylgja stúdentanna,
að „lifa hátt“ um stutta stund
er stúdentsgcefan sanna.
Því seinna er margt, sem beygir bak
og bugar hugarfarið,
nei, njóttu, drekktu, vinn og vak,
það verður rétta svarið.
hin byggilega og bjarta höll
þin bxður úti á Melum.
Þar bíða nám og bækur enn
og býsnir þykkra rita,
og langar skræður, lærðir menn,
sem látast mikið vita.
Já, löngum er það starf og strit,
hjá stúdentunum víða,
en þó er fleira en rykug rit,
sem Rússans unga bíða,
því æskuvorið vitjar þin
með veig í krystállsskálum,
þú teygar ört hið væna vin
með vina- og gleðimálum.
Já, njóttu djarft og njóttu ört,
því nú er komin stundin,
og stúdentsárin bíða björt
og bliða, frjálsa lundin,
og virtu hvorki boð né bann,
Og hvenær sem við komum öll
á kátan fund sem þenna,
lát hljóma söng og hlátrasköll
og hlýjar ástir brenna.
Og hann er djarfur enn og ör
sá ungi, glaði flokkur
með þetta sanna frelsi og fjör,
sem fylgir bara okkur.
Stúdentasveit,
strengdu þess heit,
stórhug þinn geymdu, fjör og þor,
lát ekkert buga dirfsku og dug
og drepa stúdentsandann.