Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 34

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 34
34 STtJDENTABLAÐ Ágúst H. Bjarnason próf. lætur af störfum Stofnun Háskóla Islands var að mörgu leyti stórhuga fyrirtæki og djarflegt og bar ein- kenni síns tíma og umhverfis þess, er hann fæddist í. Þjóðin var að rétta sig úr kútnum eftir margra alda niðurlægingu og vesaldóm og var gripin eldmóði og hrifningu, sem jafn- an fylgja miklum breytingum, er miða fram á við. Háskólinn hefur frá byrjun átt því láni að fagna að hafa hæfum starfskröftum á að skipa, mönnum, sem höfðu áhuga fyrir starfi sínu og vilja til að leggja krai'ia sina frarn til að það yrði leyst vel af hendi Af þeim, sem tóku við kenslu í háskólanum, þegar hann var stofnaður 1911, er aðeins einn enn starf- andi. Það er próf. Ágúst H. Bjarnason, sem nú er að láta af störfum eftir 34 ára starf. Þann tíma, sem Ágúst H. Bjamason hefur starfað við Háskólann hefur að sögn fróðra manna aðeins fallið niður ein kennslustund hjá honum, og má af því marka samvizku- semi hans og vilja til að vinna verk sitt vel. Ágúst H. Bjarnarson hefur jafnan verið hlynntur áhugamálum stúdenta og sýnt þeim áhuga og velvild. I þágu Háskólans hefur hann starfað mikið og tvisvar verið rektor hans. 1 þessu sambandi má minna á afskipti hans af Garðsmálinu og kunna stúdentar hon- um þakkir fyrir þátt hans í því, sem öðrum málefnum þeirra og Háskólans. Eftir próf. Ágúst liggur margt ritverka og hefur hann jafnan haft áhuga á að mennta al- menning. Bera rit hans þess merki, því að þeim er sýnilega ætlað að vera svo úr garði gerð, að almenningur hafi þeirra full not. Stúdentar flytja próf. Ágúst H. Bjarnasyni og konu hans kveðjur sínar og þakka próf. Ágústi störf hans í þágu skólans. STÚDENTABLAÐ GefiS út í Háskóla Islands. RITNEFND: Þórir Kr. Þórðarson stud. theol. Ásgeir Jónsson stud. polyt. Ásmundur Sigurjónsson stud. oecon, Eiríkur H. Finnbogason stud. mag. Geir Hallgrímsson stud. jur. AUGLtSINGAR: Benedikt Antonsson stud. oecon. Sveinn Ásgeirsson stud. jur.: Rússasöngur 1944 Lag: Gaudeamus — : Heill þér gleði, göfga dís, gakk í tignarsœti. :,: Dagsins skaltu drottning vera, demantskrans á höfði bera. :,: Bacchus brúðar gæti. :,: :,: Hér er andans efsta svið, útsýn víð og fögur. :,: Heiðríkja í háloftssölum, hillingar í jarðardölum. :,: — Sœll er sólarmögur. :,: :,: Hyllum lífið, lesna fólk, látum Sleipni renna :,: út um geimsins óráleiðir, yfir sporin nóttin breiðir. :,: — Æskueldar brenna. :,: :,: Höldum. gleði að goða sið, gullinn mjöður freyðir. :,: Þór mun annast undirleikinn, Óðinn blæs í stjörnreykinn, :,: — Freyja sikling seiðir. :,:

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.