Stúdentablaðið - 17.06.1945, Page 9
STÚDENTABLAÐ
9
greinum, en það mundi hafa víðtæk og örv-
andi áhrif á athafnir og verklegar fram-
kvæmdir í landinu.
2. Með því næðist aukið menningarlegt sjálf-
stæði, og kennslumál ríkisins væru þá ekki
með öllu ósjálfbjarga í jafnmikilvægum at-
riðum og teknisk málefni eru nú og munu
verða framvegis.
3. Með því sparast erlendur gjaldeyrir, sem
næmi tveggja ára náms- og dvalarkostnaði
allra þeirra stúdenta, sem lykju fyrra hluta
prófi hér við háskólann, en stunduðu fram-
haldsnám erlendis í véla- og rafmagnsverk-
fræði, stærðfræði, stjörnufræði o. fl. En
auk þess sparaðist að miklu leyti erlendur
gjaldeyrir í 4—5 ára námskostnað þeirra
stúdenta, sem lykju námi í byggingarverk-
fræði hér við háskólann, en mundu ella
stunda allt sérnám sitt erlendis.
4. Þótt námið sé fyrst og fremst fræðilegt og
að því leyti alþjóðlegt, væri unnt að haga
sérnámi byggingarverkfræðinganna eftir
verkefnum og aðstæðum hér á landi.
5. Þeim stúdentum, sem stunduðu nám í fram-
angreindum fræðigreinum, yrði miklum
mun léttara að kljúfa kostnað við námið hér
en erlendis.
í sambandi við fjölgun íslenzkra verkfræðinga,
sem að sjálfsögðu leiddi af stofnun verkfræði-
deildar við háskólann, má benda á, að miðað viö
íbúatölu munu vera færri verkfræðingar hér á
íslandi en í nokkru öðru menningarlandi. Þannig
eru á Norðurlöndum um tvöfallt fleiri starfandi
verkfræðingar miðað við íbúatölu en hér á ís-
landi.
Verkfræðikennslunni við Háskóla íslands
hefir hingað til verið haldið uppi við mjög
erfiðar aðstæður. Nú er byrjunarerfiðleikun-
um að miklu leyti lokið, og virðist þá ekki vel
ráðið að víkja frá settu marki, með því að
leggja rtiður kennslu í byggingaverkfræði, en
um það hafa verið skiptar skoðanir. Ef það
yrði að ráði, væri verkfræðideildin aðeins
undirbúningsdeild í verkfræði. Þá yrði í raun-
inni éngin verkfræði kennd við deildina.
Hagur þjóðarinnar er nú betri en nokkru
sinni áður, og nú eru frámmi miklar og margs-
konar ráðagerðir um verklegar framkvæmdir
í landinu á komandi árum. En jafnframt verð-
ur að hugsa fyrir því og sjá um það, að þjóð-
in eigi á að skipa sérfræðingum til þess að
vinna þessi fyrirhuguðu verk, þvi að Islend-
ingar og þeir einir eiga að framkvæma þau
mannvirki, sem gerð eru á íslandi. Hér hefir
verið mikil vöntun á verkfræðingum síðast-
liðin ár, og nú munu flestir geta fallizt á, að
ekki hefði horft vænlega um nægilegt starfs-
iið við allar þær verklegu framkvæmdir, sem
fyrirhugaðar eru, ef kennsla í verkfræði hefði
ekki verið hafin í Háskóla Islands.
Ef þær vonir, sem tengdar eru við framtíð
þjóðarinnar, eiga að rætast, er nauðsynlegt
að auka tekniska menntun í landinu og Há-
skóli Islands á að hafa þar forgöngu.
VÍSUR
Þig dreymir daga og ncetur,
dreymir meöan tilveran grætur,
og bíður og biöur,
biður að sól renni upp.
Þó veiztu að vetur káldur er kominn,
kominn í bæinn,
og sumar þinna hljóðu drauma er horfið,
horfið í sæinn.
Það var eitt sinn í leit þinni langri
að lausn frá Jieimsins angri,
að sást tvö augu, tvö yndisleg augu,
sem horfðu á þig, — horfðu
en hurfu. .
Síðan Jiefurðu gengið og gengið
um götur og stræti,
þar sem Jiáreisti og læti,
hlátur og kæti,
Jiafa sitt ból.
Þar Jiefurðu leitað og leitað
að lífs þíns sól,
• áugum, sem Jiorfðu og horfðu,
en Jiurfu . y r . . T. V.