Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Side 14

Stúdentablaðið - 17.06.1945, Side 14
14 STÚDENTABLAÐ Ég myndi telja æskilegt, margra ástæðna vegna, að íslenzkir stúdentar skiptust nokkuð jafnt á þessi þrjú lönd, en þó yrði íslenzki stúdentahópurinn í Kaupmannahöfn fjöl- mennastur. Því að Höfn er íslenzkur háskóla- bær, jafn íslenzkur og Kongens Köbenhavn er dönsk, og um margt islenzkari en okkar eigin höfuðstaður. Þá væri og æskilegt, að íslenzkir stúdent- ar gætu valið um háskólabæina í Skandínavíu án tillits til efnahags. En námsdvöl í þessum bæjum er mjög misdýr. Sem stendur er hún langdýrust í Stokkhólmi. Gengi skandínav- ísku krónanna er og misjafnt. Möguleikarnir til námsstyrkja eru einnig mjög misjafnir. 1 Danmörku eiga íslenzkir stúdentar aðgang að hinum myndarlega Sáttmálasjóði. 1 Noregi eigum við Snorrasjóð, sem þó ekki hrekkur langt, en í Sviþjóð eigum við ekki aðgang að neinum námsstyrkjum. Mér virðist sjálf- sagt, að við úthlutun opinberra styrkja til stúdenta, sem ætla að stunda nám í Skandí- navíu, sé tekið tillit til gengismunar, þannig að þeir, sem i Svíþjóð ætla að dvelja, fái jafnmargar sænskar krónur mánaðarlega og þeir norskar, sem til Noregs fara. Þar að auki ættu styrkirnir að útborgast með ,,index“, miðuðum við það, hve dýrt er að lifa í hin- um einstöku háskólabæjum. Mér finnst einn- ig, að íslenzka ríkið ætti nú að taka rögg á sig og auka Snorrasjóð um nokkur hundruð þúsund krónur og stofna námssjóð til styrkt- ar íslenzkum stúdentum í Svíþjóð, er næmi um hálfri miljón sænskra króna. Stofnun slíkra sjóða af íslands hálfu myndi meir en flest annað sannfæra frændþjóðir okkar um, að okkur er alvara með allt talið um nauð- syn menningarlegrar sambúðar við þessar þjóðir. öruggasta tryggingin fyrir því, að menningarsambönd okkar við þær verði traust og fjölþætt er vafalaust sú, að margir ungir fslendingar leiti þangað árlega til náms, og að svo sé í haginn búið, að þeir ekki aðeins öðlist þar sérmenntun, heldur einnig menntun •og mönnun á þessara þjóða hátt og fái sem mest alhliða kynningu af löndum þeirra, lifn- aðarháttum og menningu. Ég hef ekki þá oftrú á menningarþorsta og fróðleiksfýsn íslenzkra stúdenta, að ég telji bættan fjárhag þeirra fullkomið öryggi fyrir því, að þeir tileinki sér betur menningu þess lands, er þeir dvelja í, en ég álít þó, að bættur fjárhagur auki möguleikana fyrir því, að svo verði. Vel mætti og veita eitthvað fé með skilyrðum, er tryggðu, að það kæmi að tilætluðum notum. Oft hef ég t. d. óskað þess á undanförnum árum, að „Félag íslenzkra stúdenta“ í Stokkhólmi hefði til umráða ár- lega dálitla fjárhæð, sem nota mætti til að styrkja efnalitla félagsmenn, er taka vildu þátt í fjallferðalögum sænsku stúdentafélag- anna í jóla- og páskaleyfunum, eða létta und- ir bagga með þeim, sem gjarnan hefðu vilj- að taka þátt í stúdentamótum og námsskeið- um af ýmsu tagi, en ekki töldu sig hafa ráð á því. Þá er og þýðingarmikið, að stúdentarn- ir fái fjárhagslega hjálp til eflingar eigin fé- lagsstarfsemi, að stúdentafélögin séu t. d. styrkt til kaupa á íslenzkum blöðum, bókum og tímaritum, svo að stúdentarnir fái fylgst sem bezt með því, er skeður í heimalandinu, meðan þeir dvelja erlendis. Engum íslenzk- um peningum mun hafa verið betur varið á þessum stríðstímum en þeim styrk, er Hafn- arstúdentamir fengu til kvöldvökustarfsemi sinnar. Ég gat þess í upphafi þessa greinarkorns, að ég gleddist yfir því, hversu margir íslenzk- ir stúdentar virðast hafa hug á að stunda háskólanám í Skandínavíu næstu árin. Ég hygg, að þetta gleðji alla þá íslenzku stúdenta, er dvalið hafa í skandínavískum löndum á stríðstímunum og sérstaklega þá, sem hafa látið sér annt um íslenzkan stúdentafélags- skap í þessum löndum. Við höfum sárlega þráð nýja, unga stúdentaárganga. Stúdenta- félög þurfa árlegrar uppyngingar við, ef nafn- ið stúdentafélag á að geta haldizt sem rétt- Framli. á bls. 33.

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.