Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 17
STÚDENTABLAÐ
17
BenecLikt Jakobsson íþróttastj.:
Þættir úr íþröttasögu Háskólans
Haustið 1927 lofaði Háskólaráð allt að 500
kr. styrk til þess að halda uppi æfingum í leik-
fimi fyrir háskólastúdenta.
Vorið áður hafði nokkuð verið rætt meðal
stúdenta um þörfina á bættu íþróttalífi í Há-
skólanum. 1 félagi stúdenta frá 1925 hafði fyrir
forgöngu Guðmundar Karls Péturssonar verið
kosin nefnd til þess að vekja áhuga stúdenta
fyrir þessu efni. Enginn almennur stúdenta-
fundur var þó haldinn um málið; en vafalaust
hefir þessi vakningaralda haft nokkur áhrif á
stofnun félagsins 1928.
Aðalforgöngu málsins hófu guðfræðinemarnir
Þorgrímur Sigurðsson og Sigurjón Guðjónsson.
Ennfremur læknaneminn Guðmundur Karl
Pétursson. Söfnuðu þeir fyrst undirskriftum
þeirra manna, sem sækja vildu leikfimiæfingar.
Er séð þótti, að þátttaka yrði nægileg, var kenn-
ari ráðinn, Björn Jakobsson, og húsnæði fengið
í leikfimisal Menntaskólans. Allir háskólastú-
dentar höfðu aðgang að æfingunum og hófst
kennslan í nóvember 1927.
Þegar æfingar þessar voru komnar á fastan
kjöl, fóru menn að ræða um, að þörf væri á
að stofmf félag, er sæi um, að æfingar þessar
féllu ekki niður. Uppástungur komu ennfremur
fram um það, að hefja æfingar í frjálsum íþrótt-
um. Á fundi Stúdentaráðs 11. desember 1927
voru mál þessi rædd, og er eftirfarandi útdrátt-
ur tekinn úr fundargerð þess fundar: „Ragnar
Ólafsson hreyfði íþróttamálum stúdenta. Bar
hann upp þá spurningu, hvort réttara mundi
vera, að væntanlegt íþróttafélag yrði algerlega
óháð Stúdentaráði Háskólans, eða að það ætti
til dæmis einn mann í stjórn þess. Ráðsmenn
komu sér saman um, að heppilegast myndi
reynast, að það væri algjörlega sjálÍ9tæður fé-
lagsskapur, borinn upp af áhugamönnum, hlið-
stæður til dæmis söngfélaginu. Var Sigurjóni
Guðjónssyni, Ragnari Ólafssyni og Þorgríml
Sigurðssyni falið fyrir hönd Stúdentaráðins að
gangast fyrir stofnun slíks félags á grundvelli
leikfimifélagsskapar þess, sem þegar er á fót
komið fyrir tilverknað einstakra manna og at-
beina, Stúdentaráðsins um útvegun f járins.“
Menn þessir athuguðu síðan skilyrðin fyrir
stofnun félagsskapar meðal stúdenta til efling-
ar íþróttum. Að því loknu boðuðu þeir til fund-
ar um málið. Fundurinn var haldinn í Háskól-
anum miðvikudaginn 18. janúar 1928. Lögðu
þeir félagar fram uppkast að lögum fyrir
Iþróttafélag Stúdenta. Samþykkt var að stofna
félagið og nefnd kosin til að athuga lagaupp-
kastið. Laugardaginn 21. janúar sama ár var
haldinn fundur á ný. Voru þá lög félagsins
samþykkt og stjórn félagsins kosin. Kosningu
hlutu þessir: Þorgrímur Sigurðssr.n formaður,
Sigurjón Guðjónsson ritari, og Ragnar Ólafsson
gjaldkeri. Stofnendur voru 24, þar á meðal
ýmsir kunnir menn.