Stúdentablaðið - 17.06.1945, Blaðsíða 37
STÚDENT ABLAÐ
37
gerðir sínar vegna vanheilsu. En 14. okt.
s. 1. varði svo Björn Sigfússon magister rit-
gerð sína, Um Islendingabók.
Þá hefur heimspekideild Háskóla íslands
sæmt prófessór Ólaf Lárusson doktorsnafnbót
á sextugsafmæli hans fyrir skömmu. En próf.
Ólafur hefur, eins og mönnum mun kunnugt
vera, lagt mikla stund á islenzk fræði og innt
af hendi brautryðjendastarf á sviði byggða-
sögu landsins.
HáskólaráS kýs rektor.
Hinn 14. maí s. 1. kaus háskólaráð Háskóla
Islands dr. Ólaf Lárusson, próféssor juris,
rektor Háskólans til næstu þriggja ára. Próf.
Ólafur mun taka við starfi sínu 15. sept. n. k.
Lög sainþykkt á Alþingi
um breytingu á og viðauka við 1. nr. 36 frá
1909 um laun háskólakennara og um breyt-
ingu á lögum nr. 21 frá 1936 um Háskóla Is-
lands. Frumvarp til laga þessara var fram
borið að ósk Háskóla Islands og felur í sér
þrjár breyting^r frá gildandi lögum:
1) Með 2. gr. frv. eru lögfest embætti
þeirra tveggja dósenta í viðskiptafræðum,
sem nú eru.
2) Samkv. 3. gr. frv. skal stofna tvö dósents-
embætti, í bókmenntum og sögu, við heim-
spekideild Háskólans.
3) Þriðja breytingin er sú að setja lög um
verkfræðideildina, sem starfað hefur síðan
haustið 1940. Skulu þrír prófessorar vera í
deildinni.
Auk þeirra breytinga, sem hér um ræðir,
voru samþykkt lög frá Alþingi um stofnun
dósentsembættis við guðfræðideildina, sem
bundið skyldi við nafn séra Björns Magnús-
sonar á Borg.
Nýir prófessorar og dósentar.
Háskólanum hafa bætzt margir nýir og
góðir starfskraftar á síðastliðnu ári og þeim
hluta ársins 1945, sem þegar er liðinn. Um
leið og Stúdentablaðið býður þessa nýju læri-
feður velkomna, þykir til hlýða að halda
þeirri siðvenju að birta teiknimyndir af þeim
góðu mönnum:
Dr. Þorkell Jóliannesson hefur verið skip-
aður prófessor í sögu við heimspekideildina.
og dr. Einar Ól. Sveinsson prófessor í bók-
menntum við sömu deild.