Stúdentablaðið - 17.06.1945, Qupperneq 39
S T Ú DENTABLAÐ
39
Hvenwr fá stúdentar Gamla garð?
Þannig hefur um fimm ára skeið verið um-
horfs kringum Stúdentagarðinn, sem nú er
almennt kallaður Gamli Garður. Allan þann
tima hefur hann verið hernuminn af erlendu
setuliði, en íslenzkir Háskólastúdentar hafa
þar hvergi mátt stíga fæti sínum. Það er
óþarft að rekja hér allar þær tilraunir, sem
Garðsstjórn og stúdentar hafa gert til þess að
reyna að fá Garð lausan úr hershöndum, en
þær hafa hingað til allar reynzt árangurs-
lausar.
Brezka herstjórnin hefur fært ýmsar á-
stæður fyrir synjununum sínum um að rýma
Garð, en með stríðslokunum í Evrópu hafa
allar aðstæður breytzt svo mjög, að Bretum
getur ekki lengur verið nein þörf á því að hafa
hér sjúkrahús. Stúdentum er aftur á móti
knýjandi nauðsyn að fá Garð fyrir næsta
haust, því að sýnilegt er, að Nýi Garður get-
ur ekki fremur nú fullnægt húsnæðisþörf stú-
denta en undanfarin ár. Einnig vantar til-
finnanlega húsnæði fyrir mötuneyti.
Ritari stjórnar Stúdentagarðanna hefur
tjáð blaðinu, að stjórnin muni gera allt sem
í hennar valdi stendur til þess að fá Garð
lausan svo snemma, að hann geti að minnsta
lcosti að einhverju leyti verið íbúðarhæfur í
haust. Hafa umræður verið teknar upp við
brezka sendiherrann hér um þetta efni. Á
þessu stigi málsins er ekki hægt að segja um
árangur þeirra viðræðna, en sendiherrann
hefur lofað að greiða fyrir þvi að stúdentar
geti fengið Garð til afnota sem fyrst. Þá hef-
ur Garðsstjórn óskað þess við sendiherrann
að fá að athuga á næstunni hvaða skemmdir
hafi orðið á húsinu, til þess að hægt sé að
hefja nú þegar undirbúning að viðgerðum á
Garði, svo að þær geti hafizt samstundis og
Bretar flytja þaðan. Hefur sendiherrann tek-
ið þeirri beiðni vel.
Stúdentar munu einhuga fagna því að
heimta heimili sitt aftur úr hershöndum.
Vilja þeir ekki að óreyndu trúa því, að Bretar
haldi fyrir þeim Stúdentagarðinum löngu eft-
ir stríðslok í Evrópu, og vænta þess því að
geta þegar á komandi hausti dregið íslenzka
fánann aftur að hún á Gamla Garði.