Stúdentablaðið - 17.06.1945, Qupperneq 50
50
STÚÐENTÁBLÁÐ
TJÖLÐ
SÓLSKÝLI
Saumum allar gerðir af tjöldum og sólskýlum, höfum
ávallt fyrirliggjandi margar stærðir.
EINNIG: Svefnpokar, Bakpokar, Sporlfatnaöur allsk.
„GEYSIR" h. f.
Fatadeildin.
Ólafur prófessor Lárusson er löngu viðurkenndur sem
einn gerhugulasti og vandvirkasti fræðimaður þjóðarinn-
ar. Einkum eru ýmsar athuganir hans og ritgerðir varð-
andi byggðarsögu landsins stórmerkar og athyglisverðar
Það er því engum vafa undirorpið, að hann er lang-
fróðasti maðurinn í þeim efnum, sem vér eigum á að
skipa. Þær ritgerðir Ólafs, sem nú hafa verið gefnar út í
bókarformi, eru tólf talsins. Hafa ellefu þeirra birzt í
ýmsum ritum á árunum 1925—1943, en sú tólfta, Hít-
ará, hefur ekki verið prentuð áður. Flestar þessar rit-
gerðir eru áhrærandi byggðarsögunni og hver annarri
merkari. Má þar ekki sízt tilnefna fyrstu og lengstu ritgerðina í bókinni,
Úr byggðarsögu landsins. — Allir þeir, sem íslenzkum fræðum unna, sögu
þjóðarinnar og menningu, munu fagna mjög útkomu þessarar bókar. Hið
stórmerka efni hennar var áður á víð og dreif í eldri og yngri ritum. Nú
hefur því verið safnað á einn stað og er aðgengilegt hverjum manni. Ólafur
prófessor Lárusson hefur lagt fram svo mikilsverðan skerf til þjóðarsögunnar
með þessum greinum, að ekki var vansalaust að vita þær dreifðar út um
hvippinn og hvappinn. Útgáfu þessari verður því áreiðanlega vel fagnað,
ekki aðeins af menntamönnum þjóðarinnar, heldur einnig af allri alþýðu
manna.
Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju h.f.
Ólafur Lárusson
BYGGÐ
og
SAGA
Skálholtsprentsmiðja h.f.