Stúdentablaðið - 01.12.1969, Page 13
um, en geti þó verið óhjákvæmileg nauðsyn
sem tímabundin neyðarráðstöi'un eða jafnvel
sem varanleg ráðstöfun, þar sem sérstaklega
stendur á. Allan, heldur þú, að stúdentar al-
mennt viðurkenni þetta sjónarmið?
A. V.M. Þeir, sem hafa látið til sín heyra um
þetta mál, hafa greinilega verið þeirrar skoð-
unar, að stúdentspróf sé fortakslaust nægilegt
til inngöngu, eins og kom í ljós í sumar. Auð-
vitað getur svo farið, að það sé óhjákvæmilegt
að takmarka inngöngu, en spurningin er bara
sú, hvernig það er gert.
B. G. Þá komum við að því, að hér í þessari
skýrslu háskólanefndar eru lögð fram drög að
ýmsum kennslugreinum og starfl á ýmsum svið-
um, sem hugsanlegt er, að háskólinn taki upp.
Rektor, eru líkur til að háskólinn, ekki stærri
en hann nú er, geti nokkurn tíma veitt kennslu
í öllum þeim greinum, sem hér er minnzt á?
M.M.L. Það er auðvitað erfitt að koma
henni á á einu ári, en hins vegar eru möguleik-
arnir, sem við búum við, meiri en mönnum
kann að virðast við fyrstu sýn. Það er svo í
ýmsum greinum, sem staðhættir sjálfir hafa
eiginlega knúð fram, að þar hefur þó þessi
litla þjóð náð mjög langt. Við getum tekið
dæmi, að fyrir nokkrum árum var hér ungur,
sænskur eðlisfræðingur á ferð. Ég hafði verið
beðinn um að sýna honum svona sitt af hverju,
svo að ég skrapp með honum út í gamla Lands-
simahúsið. Þar höfðu menn þá búið sér til
tæki úr gömlum ryksugum og þess háttar og
skapað sér starfsaðstöðu, sem var mun betri
en í svipuðum greinum úti í Lundi. Hitt er
annað. að þetta hefur auðvitað mikil vandkvæði
í för með sér af þeirri einföldu ástæðu, að i dag
megum við varla við því að kippa verulega
góðum starfsmanni út úr atvinnulífinu.
B.G. Prófessor Guðmundur, saknið þér ein-
hverra greina sérstaklega, sem þér teljið, að
gera hefði átt tillögur um?
G.E. Nei, ég hef ekki tekið eftir því. Ég held,
að með því að vanda vel undirstöðuna í þeim
greinum, sem fyrir eru, þá getum við undir-
búið menn undir fjöldamörg sérsvið og í mörg-
um tilfellum þyrfti ekki nema eins til tveggja
ára sérnám erlendis til að öðlast fulla sérþekk-
ingu á sviðinu og vera fær um að taka að sér
störf í greininni.
A.V.M. Ég held nú, að þegar séu fyrir
hendi greinar innan hinna ýmsu deilda, sem
hægt er að fella saman og íjölga þannig veru-
lega námsleiðum, án þess að stofna nýjar
deildir.
Mér finnst verða að taka til athugunar í
sambandi við uppbyggingu námsins í deild-
unum, að hinir ýmsu kúrsar verði tiltölulega
sjálfstæðir og menn geti þannig að vild raðað
saman mörgum greinarbrotum í eina ákveðna
aðalgrein.
M.G. Sú eðlisbreyting, sem ég held, að
þurfi að verða á Háskólanum í framtíðinni er,
að mennta menn til virkari þátttöku í atvinnu-
lífinu. Ég hygg, það þetta sé eitt af meginverk-
efnum, og ég held, að ástæðan fyrir því, að
þessi skýrsla, sem heitir „Efling Háskóla ís-
lands“, einkennist mikið af efnahagslegum sjón-
armiðum, sé einmitt sú, þð þessir menn hafa
gert sér grein fyrir, að vandamál þjóðarinnar
verða ekki leyst nema háskólinn leggi sitt af
mörkum til að efla þjóðina efnahagslega. Okkur
vantar vissulega menntaða menn í öllu okkar
atvinnulífi. Ég held því, að við þurfum að fá
fieiri undirstöðugreinar, til þess að sveigt verði
enn frekar í áttina að atvinnulífinu.
G.E. Ef við ætlum að koma á greinum, sem
eru í nánari tengslum við atvinnulífið, þurfum
við auðvitað aukna undirstöðukennslu í þeim
greinum, sem þegar eru kenndar, svo sem efna-
fræði, eðlisfræði og stærðfræði.
M.G. Það var einmitt það, sem ég átti við.
Ég var í rauninni ekki að segja að stofna ætti
nýja deild, heldur útvíkka það sem fyrir er, til
þess að fá af því betri not.
A.V.M. Þú vilt sem sagt leggja aðaláherzlu
á það, að þeir, sem koma út úr skólanum, hafi
verulegan skilning á efnahagslífi þjóðarinnar.
M.G. Ég tel, að þessi hlutur hafi verið
vanræktur á undanförnum árum. Ég er alls ekki
að leggja til, að við hættum að kenna lögfræði,
læknisfræði eða guðfræði o.s.frv., en ég held,
að þeim fjölda, sem kemur inn i skólann nú
og í framtíðinni þurfi að beina í ríkara mæli
inn á þetta svið.
G.V. Mér finnst á vanta í skýrslu háskóla-
,,Háskólinn hlýtur aó þwfa aó auglýsa sína vöru
eins og aðrir. “
,, . . . hér á fólk að geta sérlueft sig. “
13
STÚ DEINITABLAÐ