Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1969, Page 15

Stúdentablaðið - 01.12.1969, Page 15
háskólinn nýtt þær stofnanir og fyrirtæki, sem fyrir eru í landinu til kennslu og um leið veitt þeim þjónustu. M.M.L. Þetta er atriði, sem verið er að vinna að, að komist í fastar skorður nú. Svo er það kynning Háskólans. Ýmsar ráðagerðir eru uppi í þeim efnum, bæði meðal stúdenta og Háskólans. t.d. hef ég gefið vilyrði mitt til að happdrættið láti gera tvær heimildarkvikmyndir um Háskólann fyrir sjónvarpið, í þeirri góðu trú, að það muni örva sölu á menntamönnum. Þ.I. Háskólinn hlýtur að þurfa að auglýsa sína vöru, eins og aðrir. M.M.L. Hann þarf vissulega að halda þess- um Public relations í góðu lagi. B.G. Þarf ekki Háskólinn að fara að ráða sér blaðafulltrúa? M.M.L. Það liggur við. B.G. Sú stefna kemur fram í skýrslu Há- skólanefndar, að leitazt skuli við að færa undir- stöðumenntun í sem flestum greinum inn í landið í stað þess að hafa hér fáeinar greinar, sem unnt er að fullnema sig í. Myndi þetta ekki leiða til þess, að meira yrði um hálfkák á öll- um sviðum fremur en fulla menntun ? M.M.L. Auðvitað er sú hætta fyrir hendi. H.S.K. Það eru einkum þrjú atriði, sem mæla með því að hafa neðri hlutann af öllu, fremur en fáar greinar til að velja úr. í fyrsta lagi það, að nemum við sumar greinar til fullnustu hér heima en verðum að sækja til náms í öðrum erlendis, þá er hætl við, að til- tölulega stærri hluti hópsins leiti í þær greinar, sem unnt er að nema hér heima. í öðru lagi, að á seinni hluta er hægara að komast að í kennslu- stofnunum erlendis en í byrjun, a.m.k. í sumum greinum. í þriðja lagi er það, að í mörgum greinum er hægt að nota menn, þó að þeir hafi ekki fyllstu vísindalega menntun, og það er heppilegt, að töluverður fjöldi geti numið greinina að nokkru gagni hér heima og svo dugi það, að fái leiti sér fullnaðarmenntunar erlendis. G.V. Ég gæti kannski bætt við þetta einu atriði, og það er, að margar nútímavísinda- greinar eru orðnar það fjölbreytilegar, einkum hvað varðar sérgreinar, að það verður svo í reynd, að ein ákveðin háskóladeild verður sér- hæfð á vissu sviði greinarinnar, og vilji menn fá menntun á ákveðnu sérsviði, verða þeir að leita til háskóla, sem hafa tekið þau svið meir fyrir en önnur. Háskólanum hér yrði erfitt að mynda breitt spektrum varðandi flestar greinar, þannig að við verðum alltaf að vissu marki að leita til útlanda í sérnám. B.G. Verður það þá stefna, að háskólinn veiti eingöngu undirstöðumenntun á ákveðnum sviðum ? M.M.L. Nei, það er ekki hægt að hugsa sér það. Greinarnar sjálfar ráða því með sínum lífsþrótti, hversu langt verður haldið áfram. Annað er svo, hverju 200 þús. manns geta í raun og veru komið í verk. Og mér þætti veru- lega illt til þess að vita, ef að því yrði stefnt að allt háskólanám okkar færi fram á þessari eyju, því að við þurfum einnig að fá áhrifin að utan. „ . . . unnt að fjölga námsleiðum verulega án þess að stofna nýjar deildir. “ ... „ . . . puðum í því aó ná almennri gráðu. “ „ . . . neðri hlutann af öllu.fremur enfáar greinar aó velja úr. “ 15 STÚDENTABLAÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.