Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1969, Qupperneq 39

Stúdentablaðið - 01.12.1969, Qupperneq 39
í varastjórn voru kjörnir: Fríða Á. Sigurðardóttir, Kristján Árnason og Valdimar Gunnarsson, ritari fráfarandi stjórnar. Endurskoðendur voru kjörnir Heiðmar Jónsson og Sigurður H. Benja- mínsson. Á aðalfundi þessum voru og kjörnir tveir fulltrúar, þeir Helgi Þorláksson og Jón Hilmar Jónsson, til setu á deildar- fundum heimspekideildar. Skal vakin athygli félagsmanna á því að snúa sér til þessara fulltrúa með þau mál sín, er líkleg eru að þurfa umsagnar eða úr- skurðar heimspekideildar. Við hina nýkjörnu stjórn og aðra ný- kjörna forvígismenn Félags stúdenta í heimspekideild bindum við miklar vonir. Til þessara starfa hefir félagið líklega aldrei haft á að skipa jafngóðum og á- reiðanlegum starfskrafti sem þessum nú. Er nú hagur félagsins kominn undir sam- starfi félagsmanna, og leggi nú hver og einn hönd á plóginn, svo Félag stúdenta í heimspekideild megi verða það, sem það átti í upphafi að verða. Að síðustu skal Stúdentablað beðið fyrir kveðjur og þakkir Félags stúdenta í heimspekideild til fyrrverandi rektors, próf. Ármanns Snævarr, og fyrrverandi deildarforseta, próf. Bjarna Guðnasonar. Jafnframt heilsar félagið nýjum rektor, próf. Magnúsi Má Lárussyni og nýjum deildarforseta, próf. Þórhalli Vilmundar- syni. Óskar félagið þeim og öllum kenn- urum heilla í starfi og væntir góðs sam- starfs við þá. Sigurður H. Benjamínsson. Frá Félagi læknanema Félag læknanema var stofnað 6. marz 1933 og fyllir því nú 36 ár og hálfu betur. Má segja að það sé á bezta aldri sé miðað við mannskepnuna, komið vel til vits og ára. Stofnendur voru 25 en nú eru líkur á að félagatalan fari yfir 300 og er það þá líklega orðið stærsta deildarfélagið í skólanum. Tilgangur félagsstarfsins er margþætt- ur og verkefnin margvísleg. Félagið er í senn skemmtifélag, fræðslufélag og eins konar stéttarfélag, setn gætir hagsmuna læknanema. Verður hér gerð grein fyrir helztu þáttum starfseminnar. I. Félagsfundir: Þeim má skipta í 2 flokka, fræðslu- fundi, þar sem lærðir miðla af reynslu sinni eða stúdentar kryfja til mergjar læknisfræðileg efni, og hins vegar aðra fundi, sem eru þá oft ekki með eins alvarlegum blæ. Til marks um fundarstarfsemina voru haldnir 4 fundir í októbermánuði einum. Þá hafa verið haldnir tveir fundir um: ,,takmörkun á inngöngu í læknadeild'* og samþykkt eftirfarandi ályktun á síð- ari fundinum þann 10. júlí s.l.: 1. „Læknanemar telja að stúdentsprófið sé óhæfur mælikvarði við takmörkun á inngöngu í einstakar deildir, einkum þar eð ekki er fyrir hendi samræmt stúdentspróf fyrir allt landið. 2. Læknanemar leggja til að öllum þeim nýstúdentum, sem hyggja nú á læknis- nám gefist kostur á að þreyta próf að loknu 3 mánaða námskeiði í t.d. efna- fræði og náttúrufræði á næsta háskóla- misseri. Skeri þetta próf úr um áfram- hald námsins. 3. Læknanemar leggja á það áherzlu, að gagnger könnun á þjóðfélagslegri þörf á læknum er undirstaða og forsenda skipulagningar kennslu í læknadeild." Fundasókn hefur verið góð, oftast 60-80 manns. II. Skemmtanir: Hér ber hæst árshátíð, sem haldin er í marz ár hvert, og mjög til vandað. Þá skal geta vísindaleiðangra sem vinsælir eru, enda gefst þá kærkomið tækifæri til að hreinsa blóðið. í vetur er ennfremur fyrirhugað að halda jólafund með skemmtidagskrá. Um alla framangreinda skemmtiliði sér fulltrúaráð Félags lækna- nema. III. Útgáfustarfsemi: Félag læknanema gefur út vandað blað, Læknanemann, ca. 4 tölublöð á ári. Sá fyrsta tölublað 1. árgangs dagsins ljós í apríl 1940. Réðst F.L. í á síðasta ári að láta ljósprenta Læknanemann frá önd- verðu og binda inn. Var þetta fjárfrekt fyrirtæki og kostaði um 1 /2 milljón króna. Sala hefur hins vegar gengið vel. Enn skal getið nýjungar, sem er útgáfa fréttablaðs, er hlotið hefur nafnið MEINVÖRP. Er því ætlað að flytja deildarfréttir og koma eins oft út og þurfa þykir með stuttum fyrirvara. IV. Kennslumál: Starfandi er kennslumálanefnd F.L. Má segja að verkefni þessarar nefndar séu tröllvaxin. Hin síðustu ár hefur stöð- ugt verið unnið að nýrri reglugerð lækna- deildar. Hlaut hin nýja reglugerð endan- lega staðfestingu viðkomandi yfirvalda þann 20. október s.l. Er þar gert ráð fyrir gagngerum breytingum á kennsluháttum í læknadeild. Tekur reglugerðin gildi haustið 1970. Kennslumálanelnd gaf út í haust fjölritaðar leiðbeiningar um nám í 1. hluta og gekkst fyrir ráðstefnu um sama efni. V. Erlend samskipti: Félag læknanema hefur átt aðild að alþjóðasamtökum læknanema (IFMSA) í 12 ár. Þátttaka í starfi þessara samtaka er fyrst og fremst á sviði stúdentaskipta þ.e. læknanemar fara til mánaðarnáms- dvalar við erlend sjúkrahús og veita mót- töku erlendum kollega til samskonar dvalar hérlendis. Undanfarin ár hafa 8-10 læknanemar farið utan ár hvert og viðmóta íjöldi heimsótt ísland. Þá hafa fulltrúar F.L. sótt þing IFMSA og borið heim ferskar hugmyndir. Einnig er F.L. aðili að samnorrænum lækna- nemasamtökum og gefst þar tækifæri á að fylgjast með því, sem nýjast er á hverj- um tíma í kennslutilhögun o.fl. hjá frændum vorum. VI. Niðurlag Þá eru ótalin ýmis mál, er lækna- nemar láta sig varða. Þó er ekki hægt að ljúka svo þessu greinarkorni að ekki sé minnt á húsnæðisskort læknadeildar. Verður að vinda bráðan bug að því að leysa húsnæðisvandræði læknadeildar ella mun illt af hljótast, læknanám staðna frekar en orðið er, þjóðinni til mikils tjóns. Er ljóst að úr þessu verður eigi bætt nema með samstilltu átaki læknanema og kennara læknadeildar. Hljóta lækna- nemar að líta alvarlegum augum þá á- kvörðun háskólaráðs að helga lagadeild næstu byggingu Háskólans, enda mála sannast að þar hafi verið byrjað á öfugum enda, því þörfin er brýnni hjá flestum ödrum deildum en lagadeild. Garðahreppi í 3. viku vetrar 1969. Guðjón Magnússon, formaður. 39 STÚDENTABLAÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.