Stúdentablaðið - 01.12.1969, Side 46
Máttarstólpi
á drottinsdegi
Ari minn kári og korriró
og hvað er að tarna ?
Sé ég þig ekki á strœtinu spranga,
tröllið semfyrrum varó steinn.
Ari minn kári,
í sunnudagsfötum svo déskoti slunginn
að sanka þér gulli í nábrókarpunginn,
kjagar um stéttina í skóm að láni
með sultardropa á arnarnefi
og telur jafnvel sautján dali í hverju skrefi.
Ari minn kári,
og hvað er á seyði ?
Sé ég þig ekki á þjóðvegum þruma,
glotta til sólar í heiði
undir bjargföstum hatti
með hringaða fingur á neytendaþjó.
Ari minn kári og korriró:
Máski að fá þér guð í soðið,
þrettán vetra og fjórtán þó ?
Að ögurstund.
Sérðu glóa stál í deiglu nyrzt í vestri,
dotta fjöll á liðnum degi, grœr í mín augu
þín augu rökkur og auðar gáttir.
Fer sjúkur roði um húsagarð
og gömul kona.
Vart þó liðin ögurstund síðan ég stóð
hjá glugg og greiddi sundur blettuð tjöld,
hönd í sillu þem á rúðu,
og sólin flœddi út úr nóttunni,
sitraði niður úr nóttunni gegnum ský
er áður vökuþreytt á dagsbrún.
Þau flýta núförþá lítur þú slokkna
slitur af sól í köldum nó.
Dengir Ijá vió dyrin kyrrð
svo glymur í eyrum.
Jón Örn Marinósson
SIGILDAR BÆKUR
í vönduðum og fögrum útgáfum
Tvær kviður fornar í útgáfu Jóns Helgasonar. Kr. 300,00.
Kviður af Gotum og Húnum í útgáfu Jóns Helgasonar.
Kr. 380,00.
Leit ég suður til landa, ævintýri og helgisögur frá mið-
öldum í útgáfu Einars Ól. Sveinssonar. Skb. kr. 250,00.
Alexanders saga í útgáfu Halldórs Laxness. Skb
Kr. 200,00.
Kvæði og sögur Jónasar Hallgrímssonar. Formáli eftir Halldór
Laxness. Alskinn kr. 425,00.
Ljóðmæli Gríms Thomsens í útgáfu Sigurðar Norðdal
(kemur út í desemberbyrjun).
Hugvekja til íslendinga eftir Jón Sigurðsson. Inngangur eftir
Sverri Kristjánsson. Kr. 130,00.
Dagbók í Höfn eftir Gísla Brynjúlfsson í útgáfu Eiríks Hreins
Finnbogasonar. Skb. kr. 170,00.
Dægradvöl eftir Benedikt Gröndal í útgáfu Ingvars Stefáns-
sonar. Skb. kr. 450,00.
Ritgerðir Þórbergs Þórðarsonar. Inngangur eftir Sverri Kristjáns-
son. Kr. 560,00 (2 bindi).
Ofvitinn eftir Þórberg Þórðarson. Skb. kr. 400,00. og 550.00.
Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson. Skb. kr. 280,00.
Skriftamál uppgjafaprests eftir Gunnar Benediktsson.
Kr. 210,00.
Sextán sögur eftir Halldór Stefánsson. Formáli eftir Ólaf Jóh.
Sigurðsson. Kr. 150,00.
Ljóð frá ýmsum löndum eftir Magnús Ásgeirsson. Inngangur
eftir Snorra Hjartarson. Skb. kr. 300,00.
Vegurinn að brúnni eftir Stefán Jónsson. Kr. 350,00.
Sjödægra eftir Jóhannes úr Kötlum. Ib. kr. 330,00.
Tuttugu erlend kvæði eftir Jón Helgason. Skb. kr. 280,00.
Kvæði 1940—1952 eftir Snorra Hjartarson. Skb. kr. 280,00.
Lauf og stjörnur eftir Snorra Hjartarson. Skb. kr. 440,00.
Söluskattur er ekki innifalinn í verðinu.
25% afsláttur til félagsmanna Máls og menningar.
MÁL OG MENNING
Laugavegi 18 - Reykjavík - Sími 22973
STÚDENTABLAÐ
46