Fálkinn - 21.06.1930, Side 26
26
F Á T, K T N N
Allþimgísmaimatal 1§30
Síöan Alþingi var endurreist
með'tilskipun 8. mars 1843 hef-
ir þing alls verið háð 57 sinnum.
Þar af fyrstu fimtán skiftin, sem
ráðgjafarþing (að meðtöldum
þjóðfundinum 1851), á árunum
1845 til 1873, en 42 sinnum sem
löggjafarþing, síðan stjórnar-
skráin frá 1874 gekk í gildi.
Hjer fara á eftir nöfn þeirra
Alþingismanna, er sæti eiga á
þingi rjettum þúsund árum eftir
að hinir fyrstu goðar komu sam-
an til þings á Þingvelli í fyrsta
sinni.
Asgeir Ásgeirsson fræðslu-
málastjóri, fæddur 13. mai 1894,
var kosinn á þing fyrir Vestur-
Isafjarðarsýslu 1919 og hefir set-
ið á þingi síðan fyrir sama kjör-
dæmi. Kosinn forseti Sþ. 1930.
í Framsóknarflokki.
Benedikt Sveinsson rithöfund-
ur, f. 2. des. 1877. Kosinn á þing
fyrir Norður-Þingeyjarsýslu 1909
og endurkosinn þar jafnan síð-
an. Forseti Nd. Alþingis síðan
1919. I Framsóknarflokki.
Bernharð Stefánsson bóndi, f.
8. jan. 1889, var kosinn á þing
af Eyfirðingum 1923 og endur-
kosinn í sama kjördæmi 1927. 1
Framsóknarflokki.
Bjarni Ásgeirsson bóndi, f. 1.
ágúst 1891, var kosinn á þing fyr-
ír Mýrasýslu 1927. I Framsókn-
arflokki.
Björn Iíristjánsson fyr banka-
stjóri, f. 26. febr. 1858, var kos-
inn á þing fyrir Kjósar- og Gull-
bringusýslu 1901 og jafnan end-
urkosinn í því kjördæmi siðan.
Aldursforseti þingsins, og elstur
að þingsetu. Sjálfstæðismaður.
Einar Árnason fjármálaráð-
herra, fæddur 27. nóv. 1875; kos-
inn á þing af Eyfirðingum síðan
1916. Fjármálaráðherra síðan
1929. í Framsóknarflokki.
Einar Jónsson hóndi, f. 18. nóv.
1868. Kosinn á þing fyrir Rang-
árvallasýslu 1909—18 og síðan
1927. I Sjálfstæðisflokknum.
Erlingur Friðjónsson fram-
kvæmdarstjóri, f. 7. febr. 1877,
var kosinn á þing fyrir Akureyr-
arkaupstað 1927. í Alþýðuflokkn-
um.
Guðmundur Ólafsson bóndi, f.
13. okt. 1867, var kosinn á þing
af Húnvetningum 1914—23, af
Austur-Ilúnvetningum 1923 er
Myndin hjer að ofan er tekin i þingbyrjun 1930, i sal ncðri deildar Alþingis, af Ólafi Magnússyni.
kjördæminu var skift og aftur
1927. í Framsóknarflokki. For-
seti efri deildar.
Gunnar Sigurðsson málaflutn-
ingsmaður, f. 14. júlí 1888, var
kosinn á þing af Rangæingum
1919—23 og aftur 1927. Útan
flokka.
Hákon J. Kristófersson bóndi,
f. 20 apríl, 1877, kosinn þing-
maður Barðstrendinga 1913 og
jafnan síðan. Sjálfstæðismaður.
, Halldór Stefánsson forstjóri, f.
26. maí 1877, kosinn á þing af
Norð-Mýlingum 1923 og endur-
kosinn 1927. Framsóknarmaður.
Halldór Steinsson læknir, f.
31. ágúst 1873, kosinn á þing
fyrir Snæfells- og Hnappadals-
sýslu 1912—13 og aftur 1916 og
endurkosinn jafnan síðan. 1 Sjálf-
stæðisflokknum.
Hannes Jónsson kaupfjelags-
stjóri, f. 17. nóv. 1893. Kosinn
þingmaður Vestur-Húnvetninga
við síðustu kosningar, 1927.
Framsóknarmaður.
Ilaraldur Guðmundsson rit-
stjóri, f. 26. júlí 1892. Kosinn
þingmaður ísafjarðarkaupstað-
ar 1927. Alþýðuflokksmaður.
Hjeðinn Valdimarsson fram-
kvæmdastjóri, f. 26. maí 1892.
Kosinn á þing fyrir Reykjavíkur-
lcaupstað við aukakosningar 1926
og endurkosinn 1927. í Alþýðu-
flokknum.
Ingibjörg H. Bjarnason skóla-
sljóri, f. 14. des. 1868, kosin við
landkjör 8. júlí 1922. í Sjálfstæð-
isflokki.
Ingólfur Bjarnason hreppsjóri,
f. 6. nóv. 1874, kosinn þingmað-
ur Suður-Þingeyinga við auka-
kosningar 1922 og endurkosinn
siðan. Framsóknarmaður.
Ingvar Pálmason, útgerðarin.
f. 26. júlí 1873, kosinn á þing
fyrir Suður-Múlasýslu 1923 og
endurkosinn 1927. I Framsókn-
arflokki.
Jóliann Þ. Jósefsson útgerðar-
maður, f. 17. júní 1886, kosinn
á þing 1923 og endurkosinn 1927.
Sjálfstæðismaður.
Jóhannes Jóhannesson fyrv.
bæjarfógeti, f. 17. jan. 1866. Sat á
þingi fyrir Norð-Mýlinga 1901 og
1903—13, þingmaður Seyðfirð-
inga 1916 og endurkosinn þar á-
valt siðan. Sjálfstæðismaður.
Jón Baldvinsson, bankastjóri,
f. 20. deshr. 1882, sat á þingi fyr-
ir Reykjavíkurkaupstað 1921—
26, landkjörinn 1. júlí 1926. í Al-
þýðuflokki.
Jón Jónsson bóndi, f. 8. sept.
1886. Kosinn varamaður Magnús-
ar Kristjánssonar við landkjör
1926 og tók sæti á Alþingi 1928.
Jón Auðunn Jónsson útgerðar-
maður, f. 19. júlí 1878, kosinn
þingmaður Isafj arðarkaupstaðar
1919—23 og Norður-ísafjarðar-
sýslu síðan. Sjálfstæðismaður.
Jón Ólafsson, bankastjóri, f.
16. okt. 1869. Kosinn á þing fyrir
Reykjavíkurkaupstað 1927. Sjálf-
stæðismaður.
Jón Sigurðsson, hóndi, f. 13.
apríl 1888, kosinn á þing af Skag-
firðingum 1919, og endurkosinn
síðan í því kjördæmi. Sjálfstæðis-
maður.
Jón Þorláksson verfræðingur,
f. 3. mars 1877. Kosinn á þirig
við aukakosningar í Rvík 1921,
endurkosinn 1923, landkjörinn
1. júlí 1928. Sjálfstæðismaður.
Jónas Jónsson ráðherra, f. 1.
maí 1885. Landskjörinn við
kosningarnar 8. júlí 1922. Fram-
sóknarmaður.
Jónas Kristjánsson læknir, f. 20.
oktoher 1870, kosinn við auka-
landskosningar 23. oktober 1926.
S j álf s tæðismaður.