Fálkinn - 21.06.1930, Qupperneq 53
53
FÁLKINN
Verslunin Edinborg.
1895.
1905.
Verslunin Edinborg var stofn-
uð i júní 1895 af Ásgeiri Sigurðs-
syni og skosku firma, Copland
& Berrie í Leijth- Hóf hún göngu
sína í húsum Þorláks O. Johnsen
og lijelt þar áfram uns hún flutt-
ist í hús Knudson’s kaupmanns
við Strandgölu, sem nú er Hafn-
arstræti, og keypti hún það hús.
Nokkrum árum seinna, 1905,
reisti verslunin stórt og vandað
verslunarliús við hlið þess og var
rekin í báðum húsunum. Hið
nýja hús var einstakt í sinni röð
á þeim tíma, sem það var reist.
Voru þar í fyrsta skifti hjer á
landi notaðir sýningargluggar,
og fjekk verslunin enskan mann
til að skreyta þá. Miðslöðvarliit-
un var í húsinu, og var hún þá
álíka óþekt lijer á landi. Loks
voru í fyrsta skifti notaðir pen-
ingakassar (,,Cassa“), er nú
þykja ómissandi í öllum verslun-
um. Sýna þessi nýmæli, á liverri
víðsýni og djörfung verslunin
hefir verið reist. Verslunin tók
brátt að færa út kvíarnar. Hafði
hún tvenn pakkhús við Hafnar-
stræti, þar sem nú eru hús Eim-
skipaf jelagsins og Ellingsen kaup-
manns.. Auk þess keypti hún
Sturluliús við Austurstræti, þar
sem nú er versl. Jacdbsen. Brátt
tók verslunin að setja á stofn
ýms útibú, á Akureyri, Isafirði,
Hafnarfirði, Vestmannaeyjum,
Akranesi og Keflavík. Var þá og
rekin mikil fiskverslun og út-
gerð.
Arið 1915 brunnu verslunár-
luisin, og fluttist þá verslunin i
Ingólfshvol við Hafnarstræti: hún 1925 flutti í hið nýja vand-
Þar var hún rekin í 10 ár, þar til aða hús sitt. — Árið 1917 keypti
m
1925.
Asgeir Sigurðsson alræðismaður
verslunina og rak hana einn þar
íil 1926, að Sigurður B. Sigurðs-
son varð meðeigandi og Walter
Sigurðsson 1928.
Verslunin Edinborg hefir lyft
þungu hlassi í menningarsögu fs-
lands. Er hún fyrsta verslunin,
sem tekur upp peningaverslun og
staðgreiðslu. Var þetta í byrjun
afar-erfitt, svo sem vænta mátti,
þar sem aðal-peningastofnun
landsins, Landsbankinn, hafði
litlu úr að spila — átti ekki nema
% miljón króna hlutafje. Rakn-
aði þó úr þessu, þegar firmað
Copland &Berrie kom á fiskversl-
uninni við Spán og Ítalíu. Má
geta nærri, liverjar framfarir
lýðs og lands hafa verið tengd-
ar þessu nýmæli.
Heildverslun Asgeirs Sigurðs-
sonar hefir starfað síðan 1919 og
verslar með allskonar nauðsynja-
vörur, svo sem matvörur, hrein-
lætisvörur, sápur frá hinniheims-
frægu sápugerð Lever Bros. Ltd.,
Port Sunlight, og er nú stór inn-
flvtjandi bílagúmmís og gúmmí-
skófatnaðar, Eru þær vörur frá
binu alþekta Goodrich-fjelagi.
Edinborg er nú orðin ein
stærsta og fullkomnasta glervöru-
og vefnaðarvöruverslun landsins.
Hefir ætíð verið kappkostað að
hafa eingöngu hinar vönduðustu
og bestu vörur á boðstólum.
Hafa einkunnarorð verslunarinn-
ar ætíð verið: „Lítill ágóði —
fljót skil“.