Fálkinn - 21.06.1930, Blaðsíða 63
F Á L K I N N
63
Verslunin Brynja.
í nóvembermánuði árið 1919
stofnaði Guðmundur Jónsson
trjesmiður ofurlitla verslun i
bakliúsi við Laugaveg 24. Var
sölubúðin ekld stærri en svo, að
skrefa mátti milli veggja — hún
Guðmiindur Júnsson.
var 1 meter á breidd og 3 m. á
lengd. Líkast til hefir ekki verið
stofnuð verslun, sem byrjað hef-
ir öllu smærra, og er þetta nú
orðin ein stærsta og vandaðasta
verslun bæjarins og án efa stærst
í sjergrein sinni: Verslun með
byggingarefni og verkfæri.
Verslunin tók brátt að stækka,
en fluttist þó ekld úr stað fyr en
að 5 árum liðnum. Var þá sölu-
búðin orðin allmiklu stærri, öVá
X9 álnir. Var þá verslunin orðin
svo mikil, að árssala nam um 65
þúsundum króna.
Árið 1924 fluttist verslunin í
húsið við götuna, austurenda,
Laugaveg 24. — Það húsnæði
var bæði betra og rýmra, 10x12
álnir. Á þessum stað dafnaði
verslunin vel. Var bún þar í rúm
fjögur ár og fluttist í júlí í fjTra
a þann stað, sem verslunin er nú
á Laugaveg 29.
Húsnæðið er 20x14 metrar,
sölubúð og skrifstofa. Auk þess
er allmikil vörugeymsla í kjall-
aranum. Á 2. hæð er einkaskrif-
slofa.
Með stofnun verslunarinnar og
rekstri hefir verið stígið drjúgt
skref í verslun með bygginga-
efni og verkfæri. Er þessi versl-
un hin eina sjerverslun í þessari
grein. Ilefir ætíð verið kappkost-
að að hafa sem hest sambönd,
enda svo komið, að verslunin hef-
ir með höndum útvegun á vörum
til allra stærstu og vönduðustu
bygginga, svo sem i Hotel Borg,
Landsspítalann, Elliheimilið, Arn-
arlivol. Auk þess hefir hún út-
vegað ultra-gler í barnaskólann
nýja.
Verslunin er enn ekki nema
rúmlega 10 ára gömul. Hefir
hún verið rekin af miklu kappi
og dugnaði og er nú orðin stærsta
sjerverslun í byggingarvörum
og verkfærum.
Níu manns vinna að staðaldri
við verslunina og stundum fleiri.
Guðmundur Jónsson, eigandi
og stofnandi verslunarinnar, er
fæddur á Akranesi 1. september
1888. Ólst liann þar upp til 17
ára aldurs, en fór þá til Reykja-
víkur til að læra trjesmíðar.
Rjeðist hann fyrstur lærlingur í
trjesmiðjuna „Völund“. Hann
vann þar til 1914, en þá fór hann
til Noregs og vann sumarlangt í
liúsgagnasmiðju í Bergen. Um
haustið rjeðist hann aftur til Völ-
undar, en 1917 setti liann upp
liúsgagnaverkstæði á Laugaveg
24, og var Verslunin Brynja
stofnsett í sambaiidi við það.
Verslunin Brynja hefir flutt
í landið fleiri og merkari nýjung-
ar en nokkur önnur verslun í
sömu grein. Má meðal annars
nefna límduftið Certus, sem er
blandað köldu vatni og gefur
besta trjelím. Einkasölu liefir
hún á einangrunarefninu Celotex,
sem mun eitt liið hesta í sinni
röð. Hefir það hlotið hina bestu
reynslu hjer sem annarsstaðar,
var t. d. notað með góðum á-
rangri í 8 frystihús, sem ýmist
voru bygð eða tekin til stækkun-
ar eða viðgerða í fyrra sumar.
Auk þess, sem þetta efni ein-
angrar vel liita og kulda, er það
nauðsynlegt til að útiloka hljóð.
Hefir það verið notað i allar bestu
útvarpsstöðvar heimsins og við-
ar, þar sem þarf að útiloka hljóð,
svo sem í stofum, þar sem tal-
myndir eru teknar. Efni þetta er
framleitt úr sykurreyr. Eru tref j-
arnar teknar úr reyrnum og úr
þeim búnar til Celotex-plötur,
sem notaðar eru til að fóðra með
veggi. Auk þess má nefna Rawl-
plug-tappa, sem notaðir eru til
að lialda skrúfum og nöglum
föstum í veggjum. Halda þeir svo
vel, að reynt befir verið að toga
þá út með ótrúlegum krafti, en
veggirnir hafa fyr brostið og
skrúfurnar eyðilagst en að tapp-
arnir sleptu. — Trjesmíðaheflar
frá G. Ott í Ulm (Þýskalandi)
eru líka alþektir af vörum versl-
unarinnar og eins sagir frá Sand-
viken i Svíþjóð, sem verslunin
hefir umboð fyrir. — Er hjer að-
eins lítið talið af þeim fjölda
nýjunga, sem verslunin hefir
flutt inn á þeim stutta tíma, sem
hún liefir starfað.
Eins og áður er sagt eru bygg-
ingarefni, þ. e. hin smærri efni
til bygginga það sem verslunin
flytur einkum inn og svo verk-
færi öll til trjesmíða. Þeir sem
þurfa að byggja hús komast illa
hjá að líta inn í Brynju, því þar
er jafnan mikið úrval af flestu
því, sem þá vanhagar um, hvort
heldur er gluggagler, hurðahún-
ar og læsingar, lamir, glugga-
tjaldastengur eða annað. Og
smiðirnir eru þar góðir viðskifta-
vinir, því þar fá þeir ekki aðeins
liefil, sög eða sporjárn lieldur ó-
trúlegustu verkfæri, sem gera
þeim livaða verk sem er skemti-
legt. — Má verslunin eflaust
þakka viðgang sinn að miklu
leyti þvi, að þar er fagmaður við
stýrið, sem hafði þekkingu á að
velja vönduð verkfæri. Nýtur
Guðmundur þar þekkingar sinn-
ar i trjesmíðaiðninni.
Verslunin Drynja, Laugaveg 29.