Fréttablaðið - 26.09.2009, Síða 10
10 26. september 2009 LAUGARDAGUR
NEYTENDUR Matvörukarfan í lág-
vöruverðsverslunum kostar 14.267
krónur í Bónus þar sem hún er
ódýrust en 15.595 í Krónunni þar
sem hún er dýrust. Verðmunurinn
er 10 prósent. Þetta kemur fram í
nýrri verðkönnun ASÍ sem gerð var
síðastliðinn þriðjudag.
Minnstur var verðmunurinn á
forverðmerktum osti og áleggi sem
„bendir til þess að forverðmerk-
ingar birgja á matvörum takmarki
verðsamkeppni milli matvöruversl-
ana eins og verðlagseftirlitið hefur
margoft bent á“ segir í fréttatil-
kynningu.
Verulegur verðmunur var á
hreinlætisvörum eða frá 21 prósenti
til 121 prósents. Mikill verðmun-
ur var einnig á grænmeti eins og
tómötum en þar munaði allt að 71
prósenti og grænni papriku en þar
munaði 27 prósentum á hæsta og
lægsta verði.
Vörukarfan sem borin var saman
í verslunum samanstóð af 38
almennum neysluvörum til heimil-
isins svo sem mjólkur vörum, græn-
meti, áleggi, dósamat, hreinlætis-
vörum og fleira. Sums staðar eru
vörumerki mismunandi eftir versl-
unum.
Könnunin var gerð í eftirtöldum
verslunum: Bónus Egilsstöðum,
Krónunni Vestmannaeyjum, Nettó
Akureyri og Kaskó Húsavík. - sbt
Tíu prósenta verðmunur á vörukörfu í lágvöruverslunum:
Allt að 120 prósenta verðmunur á vörum í körfu
Verðlagseftirlit ASÍ brýnir fyrir neytendum að gera verðsamanburð áður en
verslað er og bendir neytendum sérstaklega á að nýta mæleiningaverð við
verðsamanburð á vörum sem eru í mismunandi pakkastærðum. Hér eru
nokkur dæmi**:
Dýrast* ódýrast* verðmunur
Brauð 297 (Nettó) 179 (Bónus) 66%
Haframjöl 239 (Kaskó) 172 (Bónus) 39%
Hrísgrjón 349 (Krónan) 168 (Bónus) 108%
Tómatar 399 (Krónan) 233 (Bónus) 71%
Colgate Total 5.720 (Krónan) 2.590 (Bónus) 120%
*kílóverð eða lítraverð
**Frekari upplýsingar er að finna á www.asi.is
MIKILL VERÐMUNUR Á EINSTÖKUM VÖRUM
Völundarverk-Reykjavík, átaksverkefni um
handverk og verklag í tengslum við viðhald og
endurgerð sögufrægra eldri húsa í Reykjavík.
Völundarverk Reykjavík
BANDARÍKIN, AP „Hið gamla kerfi
alþjóðlegrar efnahagssamvinnu
heyrir sögunni til. Nýja kerfið, frá
og með deginum í dag, er komið
af stað,“ sagði Gordon Brown, for-
sætisráðherra Bretlands, á leið-
togafundi tuttugu mestu iðnríkja
heims í Pittsburgh í Bandaríkjun-
um.
Ákveðið var að tuttugu ríkja
hópurinn, G20, tæki að mestu við
af G7-hópnum svonefnda, sem
fyrir nokkrum árum var stækk-
aður upp í G8-hóp þegar Rúss-
land bættist í hópinn. Leiðtogar
ríkjanna tuttugu munu héðan í
frá gegna lykilhlutverki í því að
móta samhæfða alþjóðlega stefnu
í efnahagsmálum.
Meðal annars var samþykkt að
takmarkanir yrðu settar á kaup-
aukagreiðslur til bankamanna.
Þetta verður gert til þess að fjár-
málastofnanir freistist síður til
þess að taka áhættu sem átti sinn
þátt í að steypa heiminum út í
kreppuna djúpu.
Ágreiningur er engu að síður
meðal ríkjanna tuttugu um
útfærslu þessa, og bíður það verk-
efni síðari funda leiðtoganna.
Leiðtogarnir samþykktu einnig
tillögur Bandaríkjastjórnar um
rammareglur um hagvöxt, sem
myndi tryggja bæði sjálfbærni
og jafnvægi. Með þessu á að tak-
ast á við erfiðleika í efnahagslífi
ríkjanna, svo sem gríðarlegan við-
skiptahalla Kína og vaxandi fjár-
lagahalla Bandaríkjanna.
Brown sagði gert ráð fyrir því að
sett yrðu ákveðin efnahagsmark-
mið fyrir hvert ríki, sem endur-
skoðuð yrðu árlega í samvinnu við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Ekki er þó gert ráð fyrir að ríkj-
um verði refsað fyrir að ná ekki
þessum markmiðum, því ekki
vilja ríkin sjá fullveldi sínu ógnað
af alþjóðastofnunum á borð við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Þrátt fyrir margvíslega fyrir-
vara sögðust leiðtogarnir hóflega
bjartsýnir á framhaldið og töldu
mikilvægum áfanga náð.
Í G20-hópnum eiga ekki aðeins
sæti auðug ríki á borð við Banda-
ríkin, Bretland, Þýskaland og
Japan, heldur einnig upprennandi
efnahagsveldi í „þriðja heimin-
um“ á borð við Kína, Indland og
Brasilíu.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti boðaði til fundarins, sem hófst
í Pittsburgh á fimmtudag. Hann
gekk á milli leiðtoga og ræddi
meðal annars við Hu Jintao, for-
seta Kína, og Dmitrí Medvedev
Rússlandsforseta.
gudsteinn@frettabladid.is
Boða nýtt
regluverk
Leiðtogar tuttugu mestu iðnríkja heims ætla að
herða alþjóðlegar reglur um fjármálaviðskipti. Meðal
annars náðist samkomulag um að takmarkanir yrðu
settar á kaupaukagreiðslur til bankamanna.
MÁLIN RÆDD Í PITTSBURGH Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti hlýðir á Kevin Rudd,
forsætisráðherra Ástralíu. NORDICPHOTOS/AFP
GENGIÐ 25.09.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
235,6194
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,53 125,13
199,56 200,54
182,94 183,96
24,577 24,721
21,488 21,614
18,004 18,110
1,3801 1,3881
197,05 198,23
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR