Fréttablaðið - 26.09.2009, Síða 30
2 matur
Skýringar á uppskriftatáknum:
A Aðalréttur
GrænmetiFuglakjöt
Annað kjöt en
fuglakjöt
Til hátíðabrigðaHvunndags
Nammi
namm!
VERSLUN SÆLKERANS
HAUSTIÐ OG GUÐDÓMURINN
Karen Dröfn Kjartansdóttir
matur kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Anton Brink Pennar: Júlía Margrét Alexandersdóttir, Karen Dröfn Kjartansdóttir, Sólveig
Gísladóttir og Vera Einarsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is
Þessi upp -skrift er í miklu uppá-
haldi hjá mér
vegna þess hversu
einföld og fljót-
leg hún er í alla
staði. Auðvelt er að leika sér með
hana, breyta aðeins til um hrá-
efni og fá þá kannski einhverja allt
aðra útkomu,“ segir Kolfinna Mjöll
Ásgeirsdóttir matgæðingur um
uppskrift að bláberjamuffins með
rjómaosti. „Svo finnst krökkunum
líka fátt eins skemmtilegt og spenn-
andi og að setja upp svuntu og gera
tilraunir með nýjar tegundir í eld-
húsinu.“
Kolfinna er lítið hrifin af elda-
mennsku en segist alltaf til í að
leggja aðeins meira á sig til að fá
hið fullkomna hráefni í eftirrétta-
gerð. „Ég er ekki eins uppveðruð af
matargerðinni og myndi sennilega
borða Cheerios, kökur og kruðerí í
öll mál, væri ég ekki svo heppin að
búa með snillingi sem eldar almenni-
legan mat ofan í fjölskylduna.“ - rve
Kremaðar múffur
Kolfinna ásamt dóttur sinni Sölku
Eik Eliasen, sex ára.
KÖKURNAR:
150 g smjör (ósaltað)
2 dl hrásykur
2 egg
3 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
1/2 dl hrein jógúrt
3 og 1/2 dl bláber, fersk eða
frosin
KREM:
6 msk. rjómaostur
3 msk. 10 prósent sýrður rjómi
flórsykur eftir smekk (gott að
smakka sig áfram)
smá vanillusykur
hrærið allt vel saman.
Smjör og sykur hrært létt og ljóst.
Eitt egg sett í einu og hrært á
milli. Hveiti, lyftidufti og berjum
blandað saman við. Deigið sett í
muffinsform og bakað við 200° C
í um það bil 15 mínútur. Kökurn-
ar látnar kólna aðeins áður en
kreminu er smurt á og ef til vill
skreytt með berjum. Tilvalið er
að nota þessa grunnuppskrift
og skipta um bragðefni. Setja
til dæmis uppáhaldssúkkulaðið í
staðinn fyrir bláber og svo fram-
vegis.
BLÁBERJAMUFFINS MEÐ RJÓMAOSTKREMI
Uppskriftað 16 kökum
Í eldhúsi Kolfinnu Mjallar Ásgeirsdóttur kennara fæðast skemmtilegar hugmyndir.
Þar á meðal er bláberjamuffins með rjómaostakremi sem hún segir mjög gott.
M
YN
D
/K
O
LF
IN
N
A
M
JÖ
LL
Á
SG
EI
RS
D
Ó
TT
IR
„Hugmyndin á bak við búðina er að bjóða upp á
ferskan og góðan fisk á góðu verði,“ segir Stein-
grímur Ólason, eigandi Fiskbúðarinnar á Sund-
laugavegi 12. Verslunin var opnuð að nýju í apríl
á þessu ári en Steingrímur hóf störf í versluninni
árið 1986 en hætti þegar bróðir hans seldi verslun-
ina til Fiskisögu sem nú er hætt rekstri.
Í Fiskbúðinni við Sundlaugaveg er fullt borð af
girnilegum fiski og fiskréttum. „Við erum með
mikið úrval fiskrétta og er helmingur fiskborðs-
ins undirlagður af þeim. Þar má finna plokkfisk,
fiskibollur, marineraðan fisk og fisk í hinum
ýmsu sósum og einnig ýmislegt annað góðgæti
eins og ostafylltar kartöflur,“ segir Steingrímur.
Steingrímur segir viðskiptin ganga mjög vel og að aðsóknin sé stöðugt að aukast. „Vinsælast í
borðinu er bleikja í kóríander og lime og blönduðu sjávarréttirnir,“ segir Steingrímur.
Fiskbúðin er opin frá klukkan 9 til 18.30 frá mánudögum til föstudags en lokað er um helgar. - sg
Fiskbúðin við Sundlaugaveg
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Hvort sem maður er trúaður eða ekki held ég að ekki sé annað hægt en að finna til einhvers konar upphafins þakklætis þegar tekur að hausta og glænýtt grænmeti og ávextir gleðja augu,
nef og bragðlauka fólks. Ó já! Mikið afskaplega þykir mér ánægju-
legt að horfa á nýjar íslenskar kartöflur og rófur í Melabúðinni, koma
heim og fá mér sopa af sólberjasaftinni hennar mömmu og maula með
hafraklatta með nýtíndum bláberjum. Haustið og sú gleði sem fegurð
þess og uppskera þess glæðir í hjarta mér orkar svo sterkt á mig að
með mér vaknar trúarlöngun. Eða í það minnsta get ég ekki annað en
fundið fyrir ríkri löngun til að þakka einhverjum fyrir að hafa útbúið
svona ferskt loft, svona dásamlega rauð reyniber og látið jafn góm-
sætar gulrætur og gullaugu vaxa í moldinni í garðinum mínum þótt
smávaxin séu.
Í Biblíunni má líka finna mikla matar-
ást. Straumhvörf verða við matarborð,
lamba er gætt, þeim slátrað og þau etin,
brauð er brotið, glóandi vín drukkið úr
bikurum, þakkað er fyrir uppskeruna,
veislur eru haldnar og gjafir jarðar-
innar taldar til marks um ást Drottins
á mönnunum og velþóknun. Þess minn-
ast guðsmennirnir í Neskirkju stundum
með því að útbúa svokallaðar biblíumál-
tíðir í safnaðarheimili kirkjunnar í hádeginu
en sú síðasta af þeim í bili var haldin í gær.
Já, örlátan segja þeir gjafarann og lífið er
til að gleðjast yfir líkt og Jesús gerði hér áður
fyrr. Kryddin eru dulmögnuð og með
bragð þeirra á tungunni fer hugurinn á
ferð um hluta af kryddleiðunum fornu
og ilmur berst af fíkjum og döðlum.
Síðastliðinn föstudag var dýrasta
baunarétti sögunnar minnst en hans er getið
í Gamla testamentinu í sögunni um Esaú og Jakob.
Sjálfsagt muna margir eftir þeim bræðrum þar sem það
virtist alger skylda í skólastarfi hér á níunda og tíunda ára-
tugnum að láta börn teikna Esaú afhenda Jakobi frumburðar-
rétt og það er ég nokkuð viss um að allir héldu að frumburðar-
réttur væri eitthvað matarkyns enda kemur matur mikið við
sögu í frásögninni af þeim bræðrum. Grípum niður í söguna:
„Er sveinarnir voru vaxnir, gjörðist Esaú slyngur veiðimaður
og hafðist við á heiðum, en Jakob var maður gæfur og bjó í tjöldum.
Og Ísak unni Esaú, því að villibráð þótti honum góð, en Rebekka unni
Jakob.“ Þær eru skemmtilegar ástæður föðurástar Ísaks en meira
af matarást þeirra feðga: „Einu sinni hafði Jakob soðið rétt nokk-
urn. Kom þá Esaú af heiðum og var dauðþreyttur. Þá sagði Esaú við
Jakob: „Gef mér fljótt að eta hið rauða, þetta rauða þarna, því að ég er
dauðþreyttur.“ Flestir vita hvernig fer, Jakob narrar frumburðarrétt-
inn af bróður sínum í skiptum fyrir málsverð úr rauðum linsubaun-
um, tekur síðan upp nafnið Ísrael og veldur þetta allt saman miklum
straumhvörfum í Gamla testamentinu. En aftur í Neskirkju. Út frá
þessari frásögn lögðu kirkjunnar menn í Neskirkju síðasta föstudag
og þeir sem mættu fengu þar með næringu fyrir andann og magann.
Uppskriftirnar hefur séra Sigurður Árni Þórðarson útfært í takt við
þær vísbendingar sem fornleifauppgröftur og frásagnir Biblíunn-
ar og annarra rita gefa um matargerð fyrri tíma og má þær finna á
heimasíðu hans.
Ég prófaði sjálf að útfæra eina þeirra með fornar frásagnir í huga
auk hugvekju um samtímann og hjálpi mér! Þótt guðlausa ég telji mig
þá þótti mér það alveg himnesk máltíð.
H
ÍV
T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
9
-
1
4
9
2
AÐEINS
1% FITA
20%
ÁVEXTIR
N Ý R J Ó G Ú R T D R Y K K U RM S . I S
NÝR JÓ
GÚRT
DRYKK
UR
3%
HVÍTUR
SYKUR
AÐEINS ENGINSÆTUEFNI