Fréttablaðið - 26.09.2009, Síða 60
36 26. september 2009 LAUGARDAGUR
Sýningar Lýðveldisleikhússins á
barnaleikritinu Út í kött! hefjast
að nýju um helgina í Gerðubergi.
Út í kött! er nýr dans- og söngleik-
ur fyrir börn á öllum aldri sem var
frumsýndur síðastliðið vor. Verk-
ið er ævintýraleikur og fjallar
um tvo krakka og ferðalag þeirra
um tölvu og ævintýraheima. Skól-
um, leikskólum og foreldrafélög-
um gefst kostur á að kaupa sýning-
ar á sérstökum afsláttarkjörum og
geta þeir sent fulltrúa sína á sýn-
ingarnar um helgina í Gerðubergi
til að kynna sér verkið. Sýningarn-
ar verða í dag og á morgun og hefj-
ast kl. 14.
Leikritið fjallar um strákinn Erp
sem neyðist til að taka á móti dóttur
vinafólks foreldra sinna inn í her-
bergið sitt. Helga Soffía er hress og
hraðlygin og kann frá mörgu und-
arlegu að segja. Erpur á erfitt með
að sætta sig við þennan gest sinn,
enda snýr hún heimi hans, þar sem
hetjur teiknimynda og tölvuleikja
eru karlmenn, á hvolf.
Með fjörugu ímynd-
unarafli sínu nær
hún að sýna honum
að tilveran þarf
ekki að vera nið-
urnjörvuð í fyr-
irfram ákveðin
hólf og kassa.
Sögur Helgu
Soffíu eru
þrjú Grimms-
ævintýri byggð
á ú t g á f u m
Roalds Dahl og
fléttast þau inn
í leikverkið með
tónlist, dansi og
söng. Þar birt-
ast Rauðhetta,
Öskubuska,
prins, úlfar
og grísir en
Rauðhetta er
enginn ráðvilltur sakleysingi sem
lætur éta sig mótþróalaust og Ösku-
buska áttar sig á að hamingjan felst
ekki í því einu að vera fótnett og
fríð.
Tvö tólf ára börn fara með hlut-
verk Erps og Helgu Soffíu, þau
Fannar Guðni Guðmundsson og
Sóley Anna Benónýsdóttir, Ragn-
heiður Árnadóttir söngkona fer með
hlutverk sögumanns, og leikararnir
Finnbogi Þorkell Jónsson og Ólöf
Hugrún Valdemarsdóttir fara með
hlutverk geimskrímsla og ýmissa
ævintýrapersóna til dæmis Rauð-
hettu og úlfsins og Öskubusku og
prinsins. Benóný Ægisson er höf-
undur handrits, semur tónlistina og
þýðir kvæði Roalds Dahl. Kolbrún
Anna Björnsdóttir er leikstjóri, Sig-
ríður Ásta Árnadóttir gerir búning-
ana en Kristrún Eyjólfsdóttir leik-
myndina.
Markmiðið með sýningunni er
að skemmta og vekja börn og full-
orðna til umhugsunar um birting-
armyndir staðalmynda í umhverfi
barnanna. Mikilvægi skapandi og
gagnrýninnar hugsunar er seint
ofmetið og því brýnt að börnin fái
tæki og tól í hendurnar til að tak-
ast á við flóðbylgju skilaboða úr
umhverfinu. Sýningin er farand-
sýning og með henni fylg-
ir kennsluefni sem gefur
kennurum tækifæri
til frekari úrvinnslu á
grundvelli leiksýning-
arinnar. Sýningin gæti
meðal annars nýst í
kennslu í íslensku, lífs-
leikni, leiklist og tón-
list. - pbb
Út í kött
LEIKLIST Rauðhetta
er enginn ráðvilltur
sakleysingi sem lætur
éta sig mótþróalaust.
MYND/LÝÐVELDISLEIKHÚSIÐ
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 27. september
➜ Tónleikar
13.00 Barna-
tónleikar í
Salnum við
Hamraborg
í Kópavogi.
Flutt verður
„Karnival
dýranna“
eftir C. Saint-
Saëns. Flytj-
endur: Kammerhópur
Sheherazade ásamt Guð-
rúnu Ásmundsdóttur og
Sigurþóri Heimissyni. Frá klukkan
12:30 verður boðið upp á ókeypis
andlitsmálun. Börn eru beðin að
koma klædd grímubúningum ef þau
geta.
16.00 og 20.30 Gerður Bolladóttir
sópran, Victoría Tarevskaia selló og
Hilmar Örn Agnarson orgel, flytja 12
sálma eftir Matthías Jochumson ásamt
verkum eftir m.a. W.A. Mozart og G.F.
Handel, á tveimur tónleikum á sunnu-
dag. Þeir fyrri eru kl. 16 í Eyrarbakka-
kirkju á Eyrarbakka en þeir seinni
verða kl. 20.30 í Stóra Núps kirkju í
Gnúpverjahreppi.
16.00 Elisabeth Wärnfeldt sópran
og Anna M. Sigurðardóttir píanó-
leikari flytja verk eftir Bellini, Puccini,
Verdi o.fl. á tónleikum í Hömrum, sal
Tónlistarskóla Ísafjarðar við Austurveg.
20.00 Karlakórinn Þrestir heldur
tónleika til styrktar MND félaginu á
Íslandi í Víðistaðakirkju við Hraunbrún í
Hafnarfirði.
21.30 Kim Bock Quartet heldur
jazztónleika á Kaffi Rósenberg við
Klapparstíg.
➜ Félagsvist
14.00 Félagsvist verður
spiluð í Breiðfirðingabúð
við Faxafen 14. Allir vel-
komnir.
➜ Sýningar
Sýningu Hönnu Christel Sigurkarls-
dóttur og Þórunnar Eymundardóttur í
Gallerí Klaustri að Skriðuklaustri (Gunn-
arshús) hefur verið framlengd til 18. okt.
Þar stendur einnig yfir sýning í tengslum
við 70 ára byggingarafmæli hússins. Opið
sunnudaga kl. 13-17.
➜ Kvikmyndir
15.00 Sovéska kvikmyndin „Elsku
hjartans skepnan mín“ eftir Emil
Loteanu, verður sýnd í MÍR-salnum
að Hverfisgötu 105. Enskur texti og
aðgangur ókeypis.
➜ Dansleikir
Dansleikur Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni verður haldinn
að Stangarhyl 4 milli kl. 20 og 23.30.
Danshljómsveitin Klassík leikur danslög
við allra hæfi.
➜ Leikrit
16.00 GRAL-
leikhópurinn
sýnir barna- og
fjölskylduleikritið
„Horn á höfði“ í
húsnæði leikhóps-
ins við Hafnargötu
11 í Grindavík.
Nánari upplýsíngar á www.midi.is.
➜ Dans
14.00 Íslenski dansflokkurinn verður
með fjölskyldusýningu í Borgarleikhús-
inu þar sem sýnd verða brot úr fimm
verkum fyrir ungt fólk og fjölskyldur.
➜ Leiðsögn
15.00 Inga Jónsdóttir verður með leið-
sögn um sýninguna „Andans konur“ í
Listasafni Árnesinga við Austurmörk í
Hveragerði. Í dag er síðasti dagur sýn-
ingarinnar.
15.00 Kristín Ingvarsdóttir verður með
leiðsögn um sýningu Errós „Japönsk
ástarbrér“ í Listasafni Reykjavíkur við
Tryggvagötu. Allir velkomnir.
➜ Listamannaspjall
16.00 Vilborg Dagbjarts-
dóttir verður með upplestur
og ræðir um Kvæðakver
Halldórs Laxness í stof-
unni á Gljúfrasteini,
húsi skáldsins í Mos-
fellsdal. Allir velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 26. september
➜ Tónleikar
16.00 Karlakórinn Þrestir heldur tón-
leika til styrktar MND félaginu á Íslandi í
Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum.
17.00 Léttsveitin flytur óskalög sjó-
manna á tónleikum í Grindavíkurkirkju.
17.00 Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar
Íslands verður með tónleika í Háskóla-
bíói við Hagatorg þar sem flutt verður
Sinfónía nr. 5 eftir Shostakovitsj.
20.00 Tónlistarhópurinn Elektra
Ensemble heldur tónleika á Kjarvals-
stöðum við Flókagötu þar sem á efnis-
skránni verður suðuramerísk tónlist eftir
H. Villa-Lobos og A. Piazzolla.
21.00 Útgáfutónleikar Gus Gus verða
haldnir hjá Nikitu við Laugaveg 56.
21.30 Ljótu hálfvitarnir verða með
tónleika á Kaffi Rosenberg við Klappar-
stíg.
22.00 Mánar frá Selfossi verða með
tónleika á Græna hattinum við Hafnar-
stræti á Akureyri. Húsið verður opnað
kl. 21
➜ Opnanir
14.00 Friðlaugur Jónsson opnar sýn-
inguna „Bjargið okkur!“ í DaLí gallerí
við Brekkugötu á Akureyri. Opið lau. og
sun. kl. 14-17.
14.00 Samúel Jóhannsson opnar sýn-
ingu í GalleríBOXi við Kaupvangsstræti
á Akureyri. Opið lau. og sun. kl. 14-17.
15.00 Í Lista-
safni ASÍ við
Freyjugötu
verða opnar
tvær sýningar.
Guðjón Ket-
ilsson sýnir í
Ásmundarsal og
Lothar Pöpperl í
Gryfjunni.
15.00 Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
verður opnuð sýning á myndum ljós-
myndarans André Kertész. Ljósmynda-
safn Reykjavíkur, Tryggvagata 15 (6.
hæð) Opið virka daga kl. 12-19 og um
helgar kl. 13-17.
16.00 Í Skaftfelli, Menningarmiðstöð
á Seyðisfirði verða opnaðar tvær nýjar
sýningar. Ólafur Þórðarson opnar sýn-
ingu á Vesturvegg og Aðalsteinn sýnir
verk í verkefnarýminu Bókabúðin. Opið
fös.-sun. kl. 12-22.
➜ Sýningar
Í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu
verður sýnt valið efni úr DVD-sjónritinu
Rafskinnu frá kl. 14-16. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Íslandspóstur stend-
ur fyrir sýningu í
Þjóðmenningar-
húsinu sem helguð
er gerð íslenskra
frímerkja og
póstsamgöngum
Íslendinga fyrr og
síðar. Þjóðmenn-
ingarhúsinu við
Hverfisgötu 15 er
opið alla daga kl.
11-17.
Í Listasafni Akureyrar við Kaupvangs-
stræti á Akureyri, stendur yfir sýning
á Íslenskum ljósmyndum frá árunum
1866-2009. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 12-17. Aðgangur er
ókeypis.
Ólöf Björg Björnsdóttir hefur opnað
sýninguna „Visas” á Café Karólínu við
Kaupvangsstræti á Akureyri. Opið mán.-
fim. kl. 11.30-01, fös. og lau. kl. 11.30-
03 og sun. kl. 14-01.
➜ Síðustu forvöð
Í Þjóðarbókhlöðinni við Arngrímsgötu í
glerhýsinu (2. hæð) stendur yfir sýning
á íslenskum kvennablöðum og kvenna-
tímaritum en henni lýkur á miðvikudag.
Opið virka daga kl. 8.15-19, lau. kl. 10-17
og sun. kl. 11-17.
í Listasal Mosfellsbæjar, Kjarna við
Þverholt, lýkur sýningu Bjargeyjar Ólafs-
dóttur á þriðjudaginn. opið Mán.- fös.
kl. 12 -19 og lau. kl. 12-15.
➜ Ökuleikni
Opin Íslandsmeistara-
keppni í Ökuleikni
verður haldin fram-
an við Forvarna-
húsið í Kringlunni
3, kl. 13-16. Nánari
upplýsingar á www.brautin.is.
➜ Útivist
10.00 Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
efnir til gróðursetningarferðar í Seldal.
Mæting kl. 10 í Seldal (ekið niður að
Hvaleyrarvatni og fram hjá húsi bæjarins
við vatnið og suður í Seldalsháls.
➜ Kvikmyndir
Kvikmyndavika tengd kreppu, kakki
og kvótabraski hjá Kvikmyndasafninu til
26. sept. Sýningar fara fram í Bæjarbíói
í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar á www.
kvikmyndasafn.is.
16.00 Sýnd verður kvikmynd Mar-
grétar Jónasdóttur og Magnúsar Viðars
Sigurðssonar „Síðasti valsinn, þorska-
stríðin 1952-1976.“
➜ Dansleikir
Spútnik verða á Skemmtistaðnum Spot
við Bæjarlind 6 í Kópavogi.
➜ Dagskrá
Í tilefni af evrópska tungumáladeginum
verður fjölbreytt dagskrá í Borgarbóka-
safni við Tryggvagötu milli kl. 13 og 16.
Nánari upplýsingar og dagskrá á www.
borgarbokasafn.is.
ALGJÖR SVEPPI
NÝ ÞÁTTARÖÐ
LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA KL. 8:00
Algjör Sveppi vaknar með börnunum allar helgar
í vetur og lendir í ýmsum ævintýrum ásamt Villa
vini sínum. Á milli atriða býður Sveppi svo upp á
fyrsta flokks barnaefni eins og Dóru landkönnuð,
Díegó, Dodda, Strumpana og margt fleira, allt
með íslensku tali.
Óska eftir að kaupa
íslensk-ensku námskeið
Óska eftir að kaupa íslensk-ensku Lingapon námskeið. En ég tel nær fullvíst að
aðeins eitt íslenskt – ensku Lingapon námskeið hafi komið út á Íslandi. Kennslubókin
var innbundin kilja en bæði hærri og breiðari en venjuleg kilja.
Eigir þú námskeiðið þá borga ég glaður 40.000 kr fyrir námskeiðið.
Viljir þú ekki selja getum við samið um greiðslu fyrir afnot af bókinni.
Björgvin Ómar Ólafsson s. 8657013
Tómasarmessa í
Breiðholtskirkju í Mjódd
sunnudaginn 27. september kl. 20
Hvar er Guð í sorginni?
Fjölbreytt tónlist og fyrirbæn
Allir velkomnir