Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.09.2009, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 26.09.2009, Qupperneq 70
46 26. september 2009 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is Stefán Gíslason er á leið frá danska úrvalsdeildarfélaginu Bröndby þegar félagaskiptaglugginn verður opnaður um næstu áramót nema eitthvað mikið breytist. Hann hefur ekki verið í náðinni hjá nýjum þjálfara liðsins, sem tilkynnti honum í sumar að hans væri ekki lengur óskað hjá félag- inu. Stefán reyndi að finna sér nýtt félag áður en félaga- skiptaglugginn lokaði um síðustu mánaðamót en það tókst ekki. Því er hann fastur hjá Bröndby til áramóta. „Ég er bara á bekknum og finnst ekki líklegt að ég fái mikið af mínútum. Það væri ekki nema einhverjir aðrir leikmenn myndu meiðast,“ sagði Stefán í samtali við Fréttablaðið. „Ég hef þó verið í hópnum og komið inn á sem varamaður í nokkrum leikjum en staða mín er vissulega ekki góð. Við höfum einnig verið að vinna okkar leiki að undanförnu og á meðan svo er tel ég ólíklegt að þjálfarinn muni breyta byrjunarliðinu mikið. Við því get ég lítið sagt.“ Stefán gekk í raðir Bröndby sumarið 2007 og var fljótlega gerður að fyrirliða liðsins. Áður lék hann með Lyn í Noregi við góðan orðstír. „Allan minn fótboltaferil, síðan ég var 17-18 ára gamall, hef ég fengið að spila reglulega með mínum liðum. Þetta er því nýtt fyrir mér. Ég er líka á þeim aldri að ég vil og þarf að fá að spila reglulega,“ segir Stefán en hann verður þrítugur á næsta ári. Hann segir að þrátt fyrir að þjálfari Bröndby hafi ekki áhuga á að nota Stefán andar ekki köldu þeirra á milli. „Alls ekki. Þetta er allt gert á fagmannlegu nótunum,“ sagði Stefán. Nema þjálfarinn skiptir skyndilega um skoðun þá er Stefán á leið til annars félags nú um næstu áramót. Hann veit þó ekki hvert. „Það er erfitt að fullyrða eitthvað um það nú. Ég mun líta í kringum mig og sjá hvað mér stendur til boða. Ég veit svo sem vel af því að ég gæti sennilega fundið mér lið í Noregi sem hefði áhuga á að fá mig en það yrði ekki minn fyrsti kostur. Ég myndi frekar vilja skoða aðra kosti fyrst ef ég fæ einhverju ráðið. En ég útiloka ekki neitt. Mér leið vel í Noregi og það er aldrei að vita hvað gerist.“ LANDSLIÐSMAÐURINN STEFÁN GÍSLASON: FÆR EKKI LENGUR TÆKIFÆRI Í BYRJUNARLIÐI BRÖNDBY Í DANMÖRKU Þetta er í fyrsta sinn sem ég spila ekki reglulega > Skrifað undir eftir helgi Gunnar Már Guðmundsson sagði í samtali við Frétta- blaðið í gær að hann hefði átt í viðræðum við FH síðustu daga. Hann vildi ann- ars lítið láta eftir sér hafa um málið en sagði þó að meira yrði að frétta eftir helgi, líklega strax á mánudaginn. Gunnar Már á eitt ár eftir af samningi sínum við Fjölni en hann hefur leikið með liðinu alla tíð og alveg síðan liðið var í 3. deildinni árið 2001. Það er þó útlit fyrir að leikur Fjölnis gegn Stjörnunni í dag verði síðasti leikur Gunnars með félaginu. FÓTBOLTI Lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í fótbolta fer fram um helg- ina og þrátt fyrir að Valsstúlkur séu þegar búnar að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn og ljóst er hvaða lið falla úr deildinni, þá er enn að miklu að keppa. Bæði fyrsta og annað sæti deildarinn- ar gefa nefnilega þátttökurétt í Evrópukeppni að ári en Breiða- blik, Þór/KA og Stjarnan eru öll hnífjöfn með 36 stig í öðru sætinu fyrir lokaumferðina. Breiðablik er með hagstæð- asta markahlutfallið af liðunum þremur fyrir lokaumferðina og á eitt mark á Þór/KA og tíu mörk á Stjörnuna. Blikastúlkur eru einn- ig eina liðið af þessum þremur sem leika á heimavelli í lokaumferðinni en þær fá GRV í heimsókn á Kópa- vogsvöll. Breiðablik hefur leikið glimrandi sóknarbolta í sumar en hefur ef til vill verið að gefa örlít- ið eftir í síðustu umferðum eftir að hafa misst tvo mikilvæga hlekki úr sóknarleik sínum, Hörpu Þor- steinsdóttur í meiðsli og Söndru Sif Magnúsdóttur í nám erlend- is. Þór/KA hefur verið á mikilli siglingu og ekki tapað deildarleik síðan í byrjun júní. Norðanstúlkur eiga hins vegar fyrirfram ályktað erfiðasta leikinn af liðunum þrem- ur þar sem þær mæta KR á KR- velli. Þór/KA vann fyrri leik lið- anna í sumar en það var í fyrsta skiptið sem Þór/KA vann KR í efstu deild kvenna. Stjörnustúlk- ur þurfa að treysta dálítið á GRV og KR til þess að eygja möguleika á öðru sætinu vegna áberandi slök- ustu markatölunnar af liðunum þremur. Þær sjá þó eflaust ákveð- in sóknarfæri í því að mæta botn- liði Keflavíkur í lokaumferðinni en Keflavík hefur tapað öllum sautján leikjum sínum í sumar. Hver verður markadrottning? Kristín Ýr Bjarnadóttir úr Val og Rakel Hönnudóttir úr Þór/KA í eru harðri baráttu um gullskóinn, sem veittur er markahæsta leikmanni deildarinnar, en báðar hafa þær skorað 23 mörk í 17 deildarleikj- um í sumar. „Ég er ekkert að hugsa um að fá gullskóinn. Ef það gerist, þá bara gerist það,“ segir Kristín Ýr og ítrekar að Valsstúlkur ætli sér að klára mótið með sigri gegn Aftureldingu/Fjölni. „Ég hugsa bara um þrjú stig og við förum eins í lokaleikinn og alla aðra leiki, með því hugarfari að vinna. Það er líka gott fyrir okkur að fá þenn- an leik til þess að halda okkur á tánum fyrir leikina í Evrópukeppn- inni og úrslitaleikinn í bikarnum,“ segir Kristín Ýr. Rakel Hönnudóttir er einnig með fókusinn á gengi liðs síns í lokaumferðinni og segir keppnina um gullskóinn bara vera skemmti- legan bónus. „Leikurinn gegn KR leggst bara mjög vel í mig en það er verst að við erum ekki alveg með þetta í okkar höndum þar sem Breiðablik og Stjarnan eru þarna líka,“ segir Rakel. „Við erum annars sáttar með að hafa þegar bætt okkur frá því síðasta sumar en við viljum auðvitað enda tímabilið á jákvæð- um nótum. Þetta er annars búin að vera mjög jöfn og skemmtileg deild og við erum búnar að taka stórt skref í sumar með því að vera eitt af þessum liðum sem voru að berjast um titilinn. Ég man vel eftir því þegar ég var að byrja í þessu og við töpuðum jafnan 10-0 á móti Val og KR og þessum liðum en núna erum við hins vegar þarna uppi og viljum ná enn lengra en við höfum náð í sumar.“ omar@frettabladid.is Gullskór og Evrópusæti Lið Breiðabliks, Þór/KA og Stjörnunnar bítast um annað sætið í Pepsi-deild. Kristín Ýr Bjarnadóttir og Rakel Hönnudóttir berjast um gullskóinn eftirsótta. BARÁTTAN UM GULLSKÓINN Landsliðskonurnar Kristín Ýr Bjarnadóttir úr Val og Rakel Hönnudóttir úr Þór/KA eru efstar og jafnar sem markahæstu leikmenn deildarinnar fyrir lokaumferðina. Þær hafa báðar skorað 23 mörk í 17 leikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LOKAUMFERÐIN Laugardagur: Afturelding/Fjölnir-Valur kl. 16 Sunnudagur: Breiðablik-GRV kl. 14 KR-Þór/KA kl. 14 Keflavík-Stjarnan kl. 14 Fylkir-ÍR kl. 14 FÓTBOLTI Cristiano Ronaldo fylg- ist enn grannt með sínum gömlu félögum í Manchester United og horfir á alla leiki liðsins í sjón- varpi. Ronaldo fór frá United til Real Madrid í sumar fyrir áttatíu millj- ónir punda í sumar, sem er það mesta sem nokkurt félag hefur greitt fyrir einn leikmann. Hann hefur byrjað tímabilið frábærlega og skorað sjö mörk í fyrstu fimm leikjunum í spænsku deildinni og Meistara- deildinni. „Ég reyni að horfa á leiki Unit- ed í sjónvarpinu þegar ég get,” sagði Ronaldo í samtali við enska fjölmiðla. „Ég hef enn áhuga á því sem gerist á Old Trafford. Og þótt ég sé hjá Real Madrid núna er ég samt ánægður þegar United vinnur sína leiki.“ - esá Dýrasti knattspyrnumaður heims hefur ennþá sterkar taugar til Manchester: Ronaldo styður enn United Í STUÐI Cristiano Ronaldo. NORDICPHOTOS/AFP KÖRFUBOLTI Bandaríski bakvörður- inn Heather Ezell byrjaði feril sinn frábærlega með Íslandsmeistur- um Hauka í gærkvöldi en hún var með fjórfalda tvennu í sínum fyrsta leik með liðinu. Ezell skoraði 24 stig, tók 13 fráköst, gaf 10 stoðsend- ingar og stal 10 boltum í 75-50 sigri á Njarðvík í átta liða úrslitum Powerade bikarsins. H au k a r m æt a Hamar í undanúr- slitum keppninnar eftir að Hamar vann 34 stiga sigur á Val. R a g n a M a rg rét Brynjarsdóttir var með 11 stig og 12 frák- öst hjá Haukum og Bryndís Hanna Hreinsdóttir skoraði 10 stig. Kristrún Sigurjónsdóttir og Sigrún Ámundadóttir voru í aðalhlutverki í sínum fyrsta mótsleik fyrir Hamar, sem vann auðveldan 84-50 sigur á Val. Kristrún skoraði 18 stig og Sigrún var með 15 stig. Banda- ríski bakvörðurinn Koren Schram var síðan með 16 stig og Hafrún Hálfdánar- dóttir skorað 10 stig. Í hinum undan- úrslitaleiknum mæt- ast sigurvegararnir úr leikjum KR-Snæfells (í dag klukkan 16.00) og Keflavík-Grindavík (á morgun klukkan 17.00). - óój Heather Ezell í Powerade-bikar kvenna í gærkvöld: Frábær frumraun FJÓRFÖLD TVENNA Heather Ezell. MYND/STEFÁN BORGÞÓRSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.