Fálkinn


Fálkinn - 07.12.1960, Page 7

Fálkinn - 07.12.1960, Page 7
í borginni Betlehem í Pennsylvaníu er nú hægt að sjá hina björtu jólastjörnu. Það er rafmagnsstjarna, sem sett var á fjall skammt frá borginni. ★ Er til nokkur betri jóla- gjöf handa lítilli stúlku en brúða? Þannig hefur þetta verið allt síðan jólin voru heiðin hátíð. Ein fyrsta tau- brúðan var gefin rómverskri telpu fyrir 2000 árum síðan. Brúðan er nú varðveitt á British Museum í London. ★ íbúarnir í litlu þorpi í Californíu, fengu jólapóstinn í fyrra með hundi, sem bar hann í tösku á bakinu. Hann stanzaði fyrir utan hvert ein- asta hús og gelti, unz ein- hver kom og tók þann póst, sem til hans var. Ástæða þess var sú, að eini póstur þorps- ins var veikur, og fékk þá snjöllu hugmynd að senda hundinn sinn í staðinn, en seppi var alltaf með honum í póstferðunum. ★ Um þessi jól ætla sálfræð- ingar í Ameríku að gera leynilega rannsókn á jólainn- kaupum íbúanna. Að þeirra dómi má ráða sitthvað um skapgerð manna á því hvern- ig jólagjafir þeir kaupa. — Einnig hefur það mikið að segja, hversu stórar gjafir menn gefa, segja þeir. ★ Menn gera margt sér til dundurs í tómstundum sín- um. Norskur iðnverkamaður hefur til að mynda gert þetta kirkjulíkneski og búið það til eingöngu úr eldspýtum. Það hafa þúsundir af eld- spýtum farið í bygginguna og þúsundir klukkustunda hef- ur hann eytt í verkið. Stærð líkneskisins er athyglisverð: 30 sinnum 75 cm. í grunnflöt og 60 cm. á hæð. í kirkjunni eru 70 sellofangluggar og málaðir margbreytilegum litum til þess að líkjast sem mest kirkjugluggum. Kirkju- smiðurinn segist hafa byrj- að á þessu til að hvíla hug- ann. — Hann uppgötvaði þó Grískar konur miðuðu ald- ur sinn við brúðkaup sitt en ekki fæðingu. Homer. fljótt, að byggingin þarfnað- ist mikilla heilabrota, en hélt áfram engu að síður. Hann hafði fengið áhuga á verkinu og þegar allt kemur til alls er hvíldin ef til vill ekki fólgin í því að gera ekki neitt, heldur skipta um starf. Minningin um jólin er í huga okkar flestra tengd kerta- Ijósunum og þrátt fyrir breyttar aðstœður eru það enn í dag þau, sem mest snerta hugi barnanna. Aðdáunin leynir sér ekki í andlitunum á myndinni hér að ofan. Um hver jól fær Englands- drottning heilu vagnhlössin af jólakortum og jólagjöfum. Þessar jólasendingar eru frá alls konar fólki, bæði háu og lágu. Nú vill þannig til, að það er alger regla í konungshöllinni, að drottn- ingin má aðeins þiggja gjafir frá þeim, sem hún þekkir persónulega. Hvað skyldi þá vera gert við allar þær þús- undir gjafa, sem berast frá ókunnum þegnum? Allan desembermánuð er fjöldi manna, sem vinnur við að opna alla pakkana til drottn- ingar og senda sendanda þakkarkort. Að því búnu eru gjafirnar sendar barnaheim- ilum, sjúkrahúsum og öðrum hjálparstofnunum. Það eru ótrúlegustu hlutir, sem fólk finnur upp á að senda drottn- ingunni í jólagjöf. Fyrir nokkrum árum fékk hún til dæmis sex brjóstsykurssteng- ur. — að sjálfsögðu af beztu og dýrustu tegund! Öðru sinni fékk hún pakka, sem einungis hafði að geyma einn ósköp venjulegan stein. Send- andinn var útflytjandi og hann kvaðst vona, að þetta litla brot af Labradorfjalli mætti hvíla í friði á Windsor- jörð.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.