Fálkinn - 07.12.1960, Blaðsíða 24
Francois Sagan
ALLIR dást að undrabörnum — og
Francoise Sagan er sannarlega
undrabarn. Aðeins átján ára að aldri
hlaut hún heimsfrægð fyrir fyrstu skáld-
sögu sína, sem hreif bæði gagnrýnend-
ur og lesendur. Hér er sagt frá lífi henn-
ar áður og eftir að hún varð fræg — og
það er heil skáldsaga út af fyrir sig.
Frægðin er sú dálítið vafasama ham-
ingja að vera þekktur meðal fólks, sem
í rauninni þekkir okkur ekki, sagði einu
sinni nöldurseggur, sem lifði áreiðan-
lega ekki á öld útvarps og dagblaða.
Nú vita allir að frægðin getur gefið
af sér auð. Það ríður aðeins á að vita,
hvernig á að afla sér hennar.
Sumir telja, að sannri frægð sé aðeins
unnt að ná með að vera öðruvísi en aðr-
ir. Byron var miklu þekktari vegna helti
sinnar en skáldgáfu og Van Gough frek-
ar vegna þess, að hann skar af sér eyr-
að en sökum málverka sinna. Þetta staf-
ar ugglaust af því, að þarna fær fólk
eitthvað til að tala um.
Og þegar Faipa, gyðja frægðarinnar,
blés í lúður sinn Francoise til dýrðar,
var æsku hennar fyrir að þakka.
Allur almenningur dáir undrabörn.
Og það var sannarlega undur, þegar
átján ára stúlka fékk þá gagnrýni um
fyrstu 'bók sína, að hún væri „fullkom-
lega einlæg og sönn, án nokkyrs falsks
tóns. í einu ljóð og skáldsaga, sem líkja
má við meistaraverk átjándu aldar.“
Hinn vandláti ráðunautur Juliards,
alþekkts útgefanda, lét sér þessi orð um
munn fara.
Francoise var aðeins ellefu ára, þegar
hún sendi dagblöðunum eina framhalds-
sögu eftir aðra og fékk allar með tölu
endursendar. En það fékk ekki á hana.
Hún hélt áfram að skrifa, og kennarar
hennar sáu að hún gat það. Henni var
alltaf hrósað fyrir stílana í skólanum,
en það var líka það eina. Hún stóð al-
veg á gati í öðrum fögum.
Útgefandinn spurði, hvort foreldrar
hennar hefðu lesið handritið, og var
svarað því, að faðir hennar, sem er auð-
ugur verksmiðjueigandi, mætti ekki
vera að því, og móður hennar mundi
áreiðanlega ekki falla bókin. Hún hitti
einmitt naglann á höfuðið.
Frú Qouriz (Sagan er höfundarnafn,
sem Francoise tók úr einni skáldsögu
Marcels Proust) spurði hneyksluð,
hvernig í ósköpunum dóttir sín hefði
svona mikla þekkingu á ástalífi, svo
sem fram kemur í fyrstu skáldsögu
hennar „Bonjour Tristesse" (Sumarást).
Dóttirin tautaði eitthvað um, að rit-
höfundar gætu skapað allt með ímynd-
unaraflinu. Það kann að vera, en var
ekki alveg sannleikanum samkvæmt
hvað henni viðvék.
Fimmtán ára var Francoise, kölluð
Kiki, send í klausturskóla sem naut
góðs álits. Skólinn heitir Les Oiseaus
(Fuglarnir), og er nálægt Chams Ely-
sées, í hverfi, þar sem úir og grúir af
börum, veitingahúsum og næturklúbb-
Francois Sagan
lenti í bílslysi
ekki alls fyrir
löngu og var tœpt
komin. — Eftir
langa legu á
sjúkrahúsi varð
hún alheilbrigð
og á efri mynd-
inni sést hún
flutt heim. Neðri
myndin: Sagan
umkringd af á-
leitnum blaða-
mönnum eitt sinn
sem oftar.
um. Á hverjum morgni fóru „smáfugl-
arnir“ í fylgd með nunnu til messu í
kirkjunni Saint Philippe de Roule, sem
er í nágrenninu, og mættu þá oft glæsi-
búnum nátthröfnum á leið heim. Þessi
sýn hafði svo djúp áhrif á Kiki litlu, að
hún laumaðist stundum burt og gaf sig
á tal við þessa slæpingja.
Afleiðingin af þessu var, að skóla-
ganga hennar hjá nunnunum stóð
skammt. Foreldrunum var þó ekki gef-
in önnur skýring en að barnið gæti ekki
farið eftir reglum skólans. En þau vissu
fyrir löngu, að barnið gat ekki beygt
sig undir neinar reglur. Hún var síðan
send á annan skóla, og þar tókst henni
að taka stúdentspróf.
★
Goethe sagði á sínum tíma, að börn
og hundar væru með nefið niðri í 011»
og kæmust að öllu, sérstaklega öllu
slæmu.
Kiki var engin undantekning. Á næt-
urnar, meðan foreldrar hennar sváfu,
læddist hún út og dansaði á krám. Hún
hafði látið búa sér til lykil eftir útidyra-
lyklinum. Hún lærði nýjustu dansana
og dægurlögin, lærði að reykja og
dreypa á glasi. Hún kynntist lífinu, eða
því sem æskan kallar því nafni.
Og þar sem hún skrifaði eins og hún
lifði — og lifði eins og hún skrifaði —
hafði bókin boðskap að flytja, sem gerði
mörgum foreldrum rúmrusk.
En frægð hlaut hún og hana ósvikna.
Bókin var þýdd á 38 tungumál, kvik-
mynduð, og peningarnir streymdu að.
Þeir, sem telja sig hafa vit á, segja, að
hún hafi á að gizka 50.000 ísl. kr. á dag
í tekjur. Fyrsta, sem hún gerði, þegar
hún hafði efni á, var að kaupa sér sport-
bíl.
Kiki áleit eins og svo margir aðrir
unglingar (sömuleiðis bandaríski kvik-
myndaleikarinn James Dean), að þaS