Fálkinn - 07.12.1960, Qupperneq 30
Hhiii
21. MARZ -
20. APRÍL
21. APRÍL —
21. MAÍ
22. MAÍ
21. JÚNÍ
22. JÚNÍ
22. JÚLÍ
23. JÚLÍ —
23. ÁBÚST
24. ÁGÚST-
23. SEPT.
24. SEPT.—
23. OKT.
24. OKT..—
22. NÚV.
23. NOV.
21. DES.
22. DES. —
20. JAN.
21. JAN. —
1S. FEBR.
19. FEBR. —
20. MARZ
lílIÉl
íiiffiBi
STJORNUSPAIN
HrútsmerkiS.
Þetta verður hagstæð vika. Yður verður hampað mikið á
vinnustað, hrósað fyrir skerf yðar til fyrirtækisins, og ef
þér kunnið að notfæra yður þetta tækifæri, get.ið þér fest
yður í sessi til langframa. Ungt. fólk mun eiga hátíðlega
og ánægjulega helgi.
Nautsmerkið.
í þessari viku gerist dálítið, sem leggur grundvöil að
nýju tímabili í lífi yðar. Það kemur ró og regla á sitthvað,
sem áður var í ringulreið og öryggisleysi. Minniháttar stríö
við einn af meðlimum fjölskyldunnar breytist til hins betra
á síðustu stundu.
Tvíburamerkid.
Þér hafið eflaust veitt því eftirtekt, að eitthvað lá í loft-
inu og í þessari viku rennur skyndilega upp fyrir yður,
hvað það var. Þér fáið verðskulduð laun fyrir starf, sem
þér hafið ynnt vel og samvizkusamlega af hendi. í einka-
lífinu rætast margar óskir.
Krabbamerkið.
í þessari viku auðnast yður að veita yður örlitla hvíld
og hugsa örlítið meira um yður sjálfan. Sumir fæddir undir
þessu merki fá heimsókn vinar úr öðru héraði eða jafnvel
úr öðru landi. Þér fáið skemmtilegt bréf með póstinum, sem
þér skuluð muna eftir að svara.
/
Ljón8merki&.
Vikan verður erfið fyrstu dagana og þér megið reikna
með skakkaföllum bæði í einkalífi og á vinnustað. Milli elsk-
enda þessa merkis hleypur snurða á þráðinn, en í vikuiokin
verður það allt löngu gleymt og fyrirgefið.
Jómf rúarmerkiS.
Vikan verður sérstaklega góð og hamingjurík. Margir for-
eldrar fá ástæðu til þess að vera stoltir af börnum sínum
og margt ungt fólk finnur hvort annað eftir stutt kynni.
Skapið verður að sjálfsögðu gott af þessum sökum.
V ogarskálarmerkið.
Þér hafið haft þungar áhyggjur og stórar undanfarna
daga, en þér skuluð hætta að fárast yfir því, sem ekki verður
breytt. Leitið heldur félagsskapar góðra vina og kunningja
og þá munu áhyggjurnar hverfa af sjálfu sér. Þá fáið þér
ný og skemmtileg áhugamál.
Sporðdrekamerkið.
Vikan verður kyrrlát og ekki sérlega spennandi. Það ríð-
ur á að vinna starf sitt. vel af hendi og færa sér í nyt
þau fáu tækifæri, sem bjóðast. Það verður mikið um að
vera hjá ungu fólki, ný og æsileg tíðindi á sviði ástarmál-
anna.
B o ffmannsmerkið.
Erfið vandamál verða á vegi yðar í þessari viku og þér
þurfið að hugsa yður vel um og leita ráða og aðstoðar hjá
öðrum. Þér skuluð ekki reyna að leysa vandann upp á eigin
spýtur. Verið sérstaklega varkár í peningamálum. Þessi vika
er ekki heppileg t.il að hætta á neitt.
SteinpeitarmerkiS.
Það reynir á taugarnar í þessari viku, en ef þér takið
því sem að höndum ber með rósemi og stillingu, þá ætti allt
að fara vel. Látið ekki gagnrýni annarra gera yður gramt
í geði. Það er alltaf gaman að heyra álit annarra, enda
þótt það sé ekki hagstætt fyrir mann.
VátnsberamerkiS.
í þessari viku neyðist þér til þess að taka mjög mikil-
væga ákvörðun og þér hafið sáralítinn t.íma til þess að
hugsa yður um. En eftir stjörnunum gerið þér rétt. Veríð
vel á verði, ef vinur yðar vill fá yður til þess að leggja
peninga í fyrirtæki með sér.
Fiskamerkið.
Reynið að taka tilveruna á léttan og skemmtilegan hátt,
en ekki einblína stöðugt á dökku hliðarnar. Það er engin
ástæða til að óttast stöðugt það, sem gæti gerzt. Bezt að
bíða rólegur og sjá til og reyna að njóta lífsins á meðan.
Verölaunagetraun FÁLIvANS lýk-
ur í þessu blaði. Eins og kunnugt
er, hefur getraunin verið framhalds-
getraun og hirzt í undanförnum f jór-
um blöðum. í hvert sinn hefur fylgt
eyðublað til útfyllingar, sem þátt-
takendur liafa væntanlega útfyllt og
geymt. Þegar eyðublað þessa síðasta
og fjórða hluta hefur verið útfyllt,
ber að senda allar lausnirnar í lok-
uðu umslagi og utanáskriftin er:
Vikublaðið FÁLKINN,
Vesturgötu 3,
Reykjavík.
Pósthólf 1411.
Getraunin er að þessu sinni með
svipuðu sniði og síðast. Við birtum
tvær jólateikningar og verkefnið er
fólgið i þvi, að önnur myndin er frá-
brugðin liinni í ÁTTA ATRIÐUM.
Fyrir þá, sem vilja útvega sér fyrri
blöðin og hefja þátttöku nú á elleftu
stundu, skal rifjað upp liið lielzta
um fyrri hluta getraunarinnar:
I 27. tbl. birtum við tvær götu-
myndir frá Reykjavik og á aðra
'þeirra vantaði fimm hluti.
128. tbl. birtum við myndir af fjór-
um íslenzkum leikkonum, sem allar
Iiafa sézt ofl á sviðinu undanfarin ár.
í 29. tbl. birtum við tvær götu-
myndir frá Kaupmannahöfn og önn-
ur þeirra var frábrugðin hinni i
fimm atriðum.
Dregið verður úr.réttum lausnum
og sá heppni hlýtur glæsileg verð-
laun: FERÐ TIL MIÐJARÐAR-
HAFSINS eða Norður-Evrópubafna
með einu af fellum Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga.
Takið þátt í verðlaunagetraun
FÁLKANS og vinnið til glæsilegra
verðlauna!