Fálkinn


Fálkinn - 07.12.1960, Síða 33

Fálkinn - 07.12.1960, Síða 33
Jólafaéjf ftrittiadcnnifHHar En hvað margir hugsa til frúarinn- ar, sagði stúlkan og rétti húsmóð- ur sinni hrúgu af bréfum, þar sem hún sat uppi í rúminu. — Æ, og frúin hef- ur ekki snert við teinu ennþá, — það var leiðinlegt, það er víst orðið kalt. Frúin leit hægt til hennar. Augun voru svört og stór og ólundarleg, í guln- uðu andlitinu. — Hvað eru þau mörg? — Níu, sagði stúlkan og rétti henni bréfin. — Líklega frá skóurum og skrödd- urum, sagði hún. — Hérna er að minnsta kosti eitt, sem er þykkt — reglulegt bréf! Gamla primadonnan rétti úr sér og fór að opna þunnu bréfin. — Vissi ég ekki! sagði hún og fleygði kortunum, sem hún dró úr umslögun- um á náttborðið, — Skraddarar og skó- arar. — En eitt einasta blóm — nei! — Það er komið pottblóm frá dyra- varðarfrúnni, sagði stúlkan hikandi. — Af því að við sendum henni mat þegar krakkinn hennar var veikur, hreytti hin út úr sér, og opnaði þykka bréfið. Meðan hún var að lesa það, sneri hún sér að náttborðinu og tók bollann. — Á ég að koma með heitara te? spurði stúlkan. Hún hristi höfuðið og brosti og sötr- aði ánægjulega kalda teið, en hafði ekki augun af bréfinu. — Á ég að fara? spurði stúlkan, sem var vön að hlusta á athugasemdir húsmóður sinnar, en fannst þær drag- ast og ekki mundi vera þörf á sér lengur. Frúin hristi höfuðið ákaft, og las áfram. Þegar hún var búin, ljómuðu augu hennar og hún varð glaðleg. — Símaðu til systur minnar og spurðu hana hvort hún vilji koma hingað til mín og drekka með mér tebolla! sagði hún. — Og heyrðu — lestu þetta snöggv- ast. Hún rétti stúlkunni bréfið og hallaði sér út af og hagræddi sér án þess að hafa augun af stúlkunni, sem las: „Kæra frá ísabella! Getur þetta nafn vakið endurminn- ingar? Daprar? Gleðilegar? Ég veit það ekki, en ég veit, að endurminningarnar ættu að vera góðar, því að þær voru gefnar yður af manni, sem elskaði yður. Frh. á bls. 46. SMÁSAGA EFTIR EDITH RODE FÁLKINN 33

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.