Fálkinn - 08.03.1961, Page 19
bróðir minn einn sagði: „Nú þú ert hér
enn“ . . .
Verzlunarskólablaðið er vandað að
efni og frágangi og er við flettum því,
verðum við margs vísari um skólann og
nemendur hans. Skólinn tók til starfa
1905. Fyrstu stúdentarnir voru braut-
skráðir 1945 og alls hafa verið braut-
skráðir nærri 300 stúdentar. í blaðinu
er stúdentatal skólans frá upphafi. Ver-
ið er að byggja nýtt skólahús rétt við
gamla skólann. Húsið mun verða í fram-
tíðinni 6 hæðir, en fyrst um sinn verður
látið nægja að reisa tvær.
★
Það gefur auga leið, að mikil vinna
liggur að baki skemmtun á borð við nem-
endamótið og ekki síður Verzlunarskóla-
blaðið, sem er hvorki meira né minna
en 86 síður að stærð. Allt þetta starf
hafa nemendur unnið í tómstundum
meðfram náminu, en mestur þunginn
hefur að líkindum hvílt á tveimur
mönnum, Haraldi Gíslasyni, formanni
nemendamótsnefndar og Herbert Guð-
mundssyni, ritstjóra blaðsins.
★
Það ríkti góð stemming á nemenda-
mótinu og skemmtilegur blær yfir sam-
komunni. Hér var ungt og kátt fólk að
skemmta sér og eignast um leið ljúfa
endurminningu.
Myndirnar á síðunni hér á móti eru
af leikendum í „Gullna hli8inu“:
Páll Stefánsson (efst), Úlfar Guð-
mundsson (til vinstri) og Guðrún
Agnarsdóttir (til hægri). — Myndin
hér að ofan er svipmynd af nemend-
um. Myndin til vinstri að neðan er
af nokkrum piltum, sem sungu og
léku og til hægri sjáum við Guð-
mund Jónsson, óperusöngvara.