Fálkinn - 13.12.1961, Síða 9
‘
>
>■
■
Jólatré höggin allt árið.
í Bandaríkjunum hefur
eitt fyrirtæki svo að segja
einokun á allri jólatréssölu.
Við gerð þeirra starfa fjöldi
manns allt árið um kring. Þó
eru þetta ekki gerfitré, sem
um er að ræða. Fyrst eru
toppar af heilum greniskóg-
um hoggnir af trjánum. Síðan
er farið með þessa toppa í
sérstaka verksmiðju, þar sem
trén eru meðhöndluð á sér-
stakan hátt, úðuð með ýmis-
konar vökva og jafnvel lituð
silfurlit og rauð. Þrátt fyrir
þessa úðun halda barrnál-
arnar sér og undir trén eru
settir sérstakir fætur, sem er
í vökvi nokkur, sem heldur
lífi í trénu. Síðan er trjánum,
sem öll eru í ákveðnum
stærðum, komið á markað-
inn, tólf í hverjum kassa.
Þessar tvær myndir eru frá
starfsemi þessari.
ins og samkvæmt henni átti
ekkert land að vera nær en
fjögurra daga siglingu.
En efinn hvarf brátt. Nú
gátu allir séð kóralrif fram-
undan. Það varð uppi fótur
og fit um borð. Hinir þreyttu
og hungruðu menn öðluðust
nýjan mátt. Þeir sáu fyrir
sér tært rennandi vatn og ef
til vill var þarna von á nýju
og fersku kjöti.
Nokkrum klukkustundum
seinna, var báti hrint á flot
og róið til eyjarinnar. Eyjan
var óbyggð, en þar var
gnægð kókoshneta, banana
og annarra dásamlegra á-
vaxta. í litlum rjóðrum
fundu þeir villidýr og ekki
leið á löngu áður en reykur
af steikareldinum steig upp.
Þarna tilreiddu menn þessir
jólamat svo dásamlegan, að
þá hefði jafnvel ekki dreymt
um jafngóðan mat heima í
Englandi.
Á meðan áhöfnin var önn-
um kafin við matartilbún-
inginn, tók Cgpk sjókortið
fram. Á það merkti hann
inn hina nýju ey og eyjarnar
í kringum hana því að þarna
var allt morandi í smá eyj-
um. Að svo búnu skrifaði
hann við eyjarnar nafn
þeirra og nafnið var „Christ-
mas Islands11 eða „Jólaeyjar“.
Tízkujólatré. ferð Cooks og hann óttaðist,
Við rákumst á þessa mynd að hún væri sú síðasta Hún
fyrir skömmu, þetta er jóla- hafði þegar staðið allt of lengi
útstilling í tízkuhúsi erlendis. yfir. Vistir og vatnsbirgð-
ir voru næstum þrotnar og
kominn var kurr í áhöfnina.
Cook hugsaði um annan land-
könnuð, Magellan frá Portú-
gal, sem var myrtur úti á
rúmsjó, þegar áhöfnin gerði
uppreisn undir líkum kring-
umstæðum og nú stóð á hjá
James Cook. Um hádegisbil
fór Cook niður í káetu sína
og meðan hann dvaldist þar,
hljómaði út yfir þilfarið kall
frá varðmanninum: Land
fyrir stafni.
Var þetta blekking ein,
eða voru þetta hillingar?
Reiknuð var út staða skips-
Það er víðar en hér, sem kaup-
menn vanda til útstillinga í
búðargluggunum. Ekki vitum
við samt, hvort þetta er síði
eða stutti móðurinn, enda
skiptir það sáralitlu máli.
Fundur Jólaeyja.
Á aðfangadagsmorgun árið
1777, stóð hinn mikli land-
könnuður James Cook í
brúnni á skipi sínu og starði
út á hafið. Skipið var statt
í Kyrrahafi í námunda við
miðbaug. Þetta var þriðja
íslenzkur jólasveinn gerir víðreist.
— Já, gæti ég fengið sperðla með laufabrauði.
— Nej, jeg har kun pölser.
Þetta er jólasveinn Flugfélags íslands á dálítið annarleg-
um slóðum. Hann stendur þarna fyrir utan pylsusölu í
Vesterbrogade í Köbenhavn. Og auðvitað er alltaf krakka-
fans í kringum hann.