Fálkinn - 13.12.1961, Blaðsíða 7
Gott og velunnið rúðugler flytur meiri birtu inn
í híbýli og vinnustaði.
Við flytjum inn og seljum úrvals gler, sem fram-
Ieitt er úr völdu hráefni í fullkomlega sjálfvirkum
verksmiðjum.
Höfum fyrirliggjandi rúðugler í öllum þykktum
og flestum stærðum. Hafið samband við okkur sem
fyrst varðandi glerpantanir yðar. Til afgreiðslu nú
strax eða síðar.
Mars Trading Company
Klapparstíg 20. — Sími: 17373.
avjg:/sinq h(
MARGT ER SPENNANDI
í Keiminum og hér á landi um jólin, en KvaS
getur markverðara en að vera
MEÐ stórskáldinu Guðmundi Daníelssyni, sem
með bók sinni, „Sonur minn Sinfjötli“, hefur unnið
stórkostlegt bókmenntalegt afrek, sem ritdóm-
endur keppast um að dá og vegsama eða,
MEÐ Gísla Kolbeinssyni í „Rauða kettinum", en
svo nefnir þessi ungi sjómaður fyrstu skáldsögu
sína, sögu, sem gerist í undirheimum Kúba á bylt-
ingartímum við ástir og vín, en hefur samt sinn
alvarlega undirtón, eða
MEÐ Sigurði A. Magnússyni, sem með bók sinni,
„Næturgestir“, hefur skrifað sína fyrstu skáldsögu,
en var þó áður landskunnur blaðamaður og ljóð-
skáld. Þessi fyrsta skáldsaga Sigurðar er tekin úr
hreinræktuðu íslenzku umhverfi.
FJÓRAR STÓRKOSTLEGAR
ANDSTÆÐUR
mætti telja fólgnar í bókunum
Orustan um Atlantshafiö,
saga um örlagaríkasta hildarleikinn í síðustu
styrjöld eftir Mclntyre (kom út í Englandi á þessu
ári) eða
Saga bóndans á Hrauni,
saga um baráttu íslenzks bónda, Jónasar í Hrauni
í Öxnadal, við óblíð kjör, sögð með skáldlegu hug-
arflugi af Guðmundi á Egilsá, eða
Ástir Dostóévskys
(eftir Marc Slonim) kynngimögnuð, töfrandi ævi-
saga eins mesta ritsnillings 19. aldarinnar, sem var
ofsafengnari í sínu eigin lífi heldur en margar hinar
trylltu persónur í sögum hans, eða
Einbúinn í Atlantshafi
(eítir Paul Brunton) þar sem höfundur segir frá
dvöl sinni í háfjöllum Himalaja, á tindi jarðar, þar
sem einveran og hið stórkostlega umhverfi vekja
fjölda ógleymanlegra innblásinna hugsana.
BÚKAVERZLUN ÍSAFOLDAR
FALKINN 5