Fálkinn - 13.12.1961, Qupperneq 38
FRAMHALDSSAGA
EFTIR HANS
ULRICH
HORSTER
Hann fann, að einhver stóð á bak
við hann. Það var Erik.
— Afsakið, en við erum að fara núna.
Ég hélt kannski, að þú . . .
Það var gremjulegt að þurfa að fara
einmitt nú, en Albert var bundinn af
gestrisni vinar síns. Hann stóð á fætur.
— Nú er ég víst búinn að þreyta yður
nóg með vandamálum mínum, sagði
hann og hneigði sig. •—• Nú verð ég að
fara. Ég þakka yður fyrir, hversu elsku-
leg þér hafið verið.
Ókunna konan rétti honum höndina.
— Það er ég, sem á að þakka yður
fyrir, að þér skylduð heilsa upp á mig,
sagði hún. — Ég verð í nokkra daga
hér í Tiibingen. Við sjáumst kannski.
Albert Brandt var mjög rjóður í and-
liti, þegar hann yfirgaf ,,Gulleyjuna“
ásamt Erik. Það stafaði ekki aðeins af
víninu, heldur því, að Erik stríddi hon-
um á þessu nýja ,,kvennnfari“ hans.
Albert reiddist, en Erik sló á öxl hon-
um.
— Nú, hvað á maður að halda? Hún
bókstaflega gleypti þig með augunum!
Heldurðu, að það 'hafi ekki sézt til ykk-
ar?
Þeir gengu þögulir eftir götunni og
að torginu. Bærinn svaf sínum sætasta
svefni. Albert sá ekkert nema ókunnu
konuna. Hún var ekki kona af því tag-
inu, sem stofnar til vafasams kunnings-
skapar, — enda þótt raunar mætti segja,
að hún hefði gert það. Áhugi hennar
á honum hafði verið svo áberandi. Það
var ekki um neitt fleipur að ræða. Hún
hafði verið alvarleg í bragði, dálítið
þunglyndisleg, og svo hafði hún sagt
honum, að hún væri nógu gömul til
að vera móðir hans!
Hvað vildi hún honum?
Þessi spurning hringsólaði í höfði
hans, unz hann sofnaði á dívani vinar
síns . . .
Nóttin hafði verið erfið fyrir Minnu
gömlu. Hún hafði hlustað á klukkuna
slá á heilum og hálfum tímum, og þeg-
ar hún heyrði hanagal í morgunsárið,
gat hún ekki legið lengur kyrr í rúm-
inu. Hún stóð á fætur og gekk um hús-
ið. Hún hafði áhyggjur af börnunum.
Minna lagði eyrað á hurðina á herbergi
Dorisar. Doris virtist sofa vært. Því
naést gekk hún að herbergi Alberts.
Ekkert. hljóð heyrðist. Hún varð ótta-
slegin, gekk varlega inn og kveikti ljós-
ið. Rúmið hans var autt.
Hún hefði getað sagt sér þetta sjálf.
Hún hefði átt að vita, að Albert mundi
ekki koma heim aftur, eftir allt það,
sem gekk á í gærkvöldi.
Minna slökkti Ijósið og hraðaði sér
til herbergis Wolfgangs. Wolfgang svaf
fast. Minna svipti sænginni af honum,
greip í handlegginn á honum og hristi
hann til.
— Þú verður að vakna, Wolfi. Vakn-
aðu. Albert er ekki kominn heim ennþá.
Þú verður að fara á fætur og leita að
'honum.
Wolfgang sneri sér og stundi þungan.
Þá sá hann Minnu.
— Hvað í ósköpunum gengur á,
Minna? Hvað er nú að, gamla mín?
Hvað er klukkan eiginlega?
— Bráðum sex.
— Sex! Wolfgang hreytti orðinu út úr
sér með fyrirlitningu. — Herra minn
trúr! Á nú að fara að draga mann út
úr bælinu um miðjar nætur? Hvað ætli
hafi komið fyrir Albert? Hann hefur
lent á fylliríi, strákurinn, og þú getur
hengt þig upp á, að hann skýtur aftur
upp kollinum, þegar hann er orðinn
edrú.
Hann dró sængina yfir höfuð sér og
sneri sér á hina hliðina.
Minna settist á rúmstokkinn og stundi.
— Kæri Wolfi. Ég hef ekki sofið dúr
í nótt. Það er ómögulegt að segja, hvað
Albert hefur dottið í hug að gera. Þú
veizt nú hvernig hann er. Kannski hef-
ur 'hann látið innrita sig í Útlendinga-
hersveitina og við sjáum hann ekki
framar.
Wolfgang kenndi í brjósti um gömlu
konuna. Og ef til vill hafði hún nokk-
uð til síns máls. Albert var svo stolt-
ur, hann lét ekki kúga sig.
Wolfgang spratt á fætur.
—- Vertu róleg, gamla mín. Ég skal
sækja Albert og koma með honum til
þín. En þá verður þú að fara út. Þú
færð ekki að vera inni þegar ég klæði
mig, fyrr en við giftum okkur, elskan!
Wolfgang hugleiddi alla þá möguleika,
sem honum komu til hugar í sambandi
við hvarf Alberts, meðan hann klæddi
sig. Bróðir hans var enginn ævintýra-
maður. Sennilega hafði hann gist hjá
einhverjum vina sinna. Hverjum af þeim
var hann nú mest með?
Hann naut hins ferska morgunlofts.
Hann hafði ákveðið að heimsækja Erik
fyrst.
f birtingu bankaði hann á dyrnar hjá
Erik. Hann hafði ekki tíma til að bíða
eftir að einhver svaraði, heldur rauk
inn. Óumbúið rúm gaf til kynna, að
Erik væri farinn til vinnu sinnar. En
bróðir hans lá á dívaninum og’leit upp
til hans um leið og hann gekk inn í
herbergið.
—• Jæja, svo að þú ert búinn að flytja
að heiman!
Albert var ekki í skapi til þess að
36
FALKINN