Fálkinn - 13.12.1961, Page 54
GEFJUN - IÐUNN
TERYLENE-
BUXUR
STAKIR
JAKKAR
hugmynd. Ég ætti að vera
borðpunt, sagði hún.
— Borðpunt? sagði ég, því
ég vissi ekki áður, að ég liti
þannig út. Það var ætlunin,
að.ég færi í gamla jólasveins-
búninginn og þannig ætti ég
að sitja með krosslagðar fæt-
ur fyrir enda borðsins. Magga
dró skotthúfuna niður fyrir
andlitsgrímuna og engan
' grunaði, að þetta væri ég.
Þau héldu öll, að þetta
væri uppstoppaður jólasveinn
og kváðust aldrei hafa séð
neitt eins hátíðlegt.
Magga hafði sagt að ég
yrði að hafa augun lokuð til
þess að ég yrði ekki afhjúp-
aður, en ég var alltaf rétt að
því kominn að gleyma þeirri
áminningu. Enn erfiðara var
þó, að sitja kyrr. Þegar ég
hafði setið þarna heillengi,
fór ég að finna til verkja í
vöðvunum um allan skrokk-
inn.
— Hvar er Jobbi? spurði
Ragnheiður allt í einu. Hún
var fyrst til að uppgötva að
ég sat ekki við borðið.
— Hann hefur fengið
magapínu, sagði Pétur og
flissaði.
— Af hverju heldurðu
það? spurði hún.
— Þessi drengur er alltaf
að troða einhverju í sig, svar-
aði hann.
Ég kreppti saman lófana
inn í jólasveinsbúningnum
og átti erfitt að hafa hemil
á mér. Auk þess var ég orð-
inn gjörsamlega dofinn í fót-
unum. Þar fyrir utan hafði
ég drukkið of mikið af öli og
sódavatni. Það var alls ekki
svo þægilegt, þegar þetta
kom upp í nefið á mér bak
við andlitsgrímuna.
— Ég bara skil ekkert í,
hvað orðið hefur af Jobba?
sagði Ragnheiður skömmu
seinna.
— Það var leiðinlegt, úr
því að þér er svona umhugað
um Jobba, sagði Pétur. Eru
það freknurnar, sem þér lízt
svona vel á?
— Ef svo er, kemur það
þér að minsta kosti ekkert
við, sagði Ragnheiður kulda-
lega. En það get ég sagt þér,
að mér finnst Jobbi vera
sniðugur og myndarlegur
strákur.
Sniðugur og laglegur strák-
ur. Ég varð endilega að sjá,
hvernig Ragnheiður leit út
þegar hún sagði þetta. En
ekki hafði ég fyrr lokið aug-
unum upp en einhver hróp-