Fálkinn - 13.12.1961, Síða 56
Stúlkan frá Sólh.
Frh. af bls. 17.
bæði. En hvað vakti fyrir Þórdísi og
ráðamönnum hennar, að grípa til þessa
undarlega tiltækis? Hægt er í fljótu
bragði að hugsa sér þrennt: 1) Að á-
kveðið hafi verið þá þegar, að hún gæfi
ekki upp neinn barnsföður, er þar að
kæmi, en héldi fast við, að hún hefði
einskis karlmanns kennt. Hefur þá ver-
ið treyst á, að hún kæmist upp með
þetta eftir atvikum með aðstoð lög-
manns, og að ekki yrði gerður reki að
því máli frekar, umfram einhverja smá
sekt í mesta lagi. 2) Ef svo færi að Þór-
dís neyddist til þess að lýsa mág sinn
(eða einhvern annan) föður að barninu
þá yrði sú lýsing ógild að lögum, þar
sem barnsmóðir var áður staðin að því
að vinna rangan eið. 3) Að Þórdís hafi
í raun og sannleika ekki vitað betur
og að hún hafi því talið sig vinna rétt-
an eið. Óneitanlega virðast sterk rök
hníga að því, að hún hafi, þrátt fyrir
allt, verið í góðri trú. Má í því sambandi
benda á hversu auðvelt það hefði verið
fyrir stúlku eins og Þórdísi, með lög-
manninn að bakhjarli, að hagræða
væntanlegu faðerni á vandræðalausari
hátt, í stað þess að leggja út í slíka tví-
sýnu, að sverja sig fría af karlmönnum,
og eiga á hættu að enginn tryði, og
jafnvel, að hún yrði ákærð fyrir mein-
særi. í næstu köflum verður því svo
lýst er stúlkan, þrátt fyrir ógnir og lík-
amlegar pyndingar, kvaðst vilja „deyja
upp á það“, að hún væri ósnortin af
karlmanns völdum, enda hvikaði hún
aldrei frá þeirri staðhæfing, allt fram
í dauðann.
IV.
Eftir barnsburðinn lá næst fyrir að
feðra barnið, eftir réttum lögum og
venjum. En þessu neitaði Þórdís, þar
eð hún hefði ekki komið saman við
nokkurn karlmann til barngetnaðar,
eins og fyrr segir. Mun lögmanni þá
hafa þótt úr vöndu að ráða. Virðist
hann hafa látið undan fallast, að þinga
um málið heima í héraði, en flytur í
þess stað stúlkuna með sér til Alþing-
is sumarið eftir og spyrst fyrir um það
í Lögréttu, hversu með mál þetta skuli
fara. Taldi Lögréttan sig engin svör
geta gefið þar um. Er það í sannleika
sagt undarleg afstaða, þar sem fyrir
lágu í Alþingissamþykkt frá 1574 á-
kveðnar reglur um meðferð slíkra mála:
Skyldu kennimenn fjrrst veita konunni
áminningu, en því næst setja hana út
af sakramenti ef hún léti ekki skipast.
Síðan mátti dæma konunni hæfilega
refsing eftir álitum valdsmanna, og með
hliðsjón af kynning hennar í byggðar-
laginu. Venjulega voru slíkar refsingar
þó ekki ýkja þungar.
Engin gangskör virðist hafa verið
gerð að því í Lögréttunni, að fá stúlk-
una til þess að hverfa frá staðhæfingu
sinni, eða upplýsa um hinn rétta barns-
föður. Mágur hennar, Tómas Böðvars-
son, var þarna til staðar og bauð fram
tylftareið til synjunar faðerninu. Ekki
kom þó til slíks, þar sem enginn varð
til þess að bera það upp á hann, enda
vafasamt að honum hefði gagnast slík-
ur eiður, þótt fengið hefði. Varla getur
vafi á því leikið, að lögmaðurinn á
Reynistað hafi með nokkrum hætti haft
hér hönd í bagga, og að öll hafi þessi
ráð verið fyrirfram ákveðin, enda aug-
ljóst mál, að Lögréttan hefir ekkert
verið áfram um að láta dæma stúlkuna.
Höfuðsmaður var þá hér á landi
Herluf Daa (,,Herlegdáð“), sem ill-
ræmdur var m.a. í sambandi við mála-
þvargið gegn Oddi biskupi og Árna
syni hans, síðar lögmanni. Þegar Lög-
réttan vildi ekkert aðhafast í máli stúlk-
unnar skipaði hann svo fyrir, að málið
yrði sent heim í hérað til nýrrar rann-
sóknar og dómsálagningar, sem vitan-
lega var rétt, og reyndar ekki vonum
fyrr.
Þegar í hérað kemur virðist lögmaður
enn ekki gera neina gangskör að frek-
ari rannsókn málsins, né heldur nein-
ar þær ráðstafanir. sem Alþingissam-
þykktin tilskildi gagnvart stúlkum, er
ekki vildu upplýsa faðerni að börnum
sínum. Er sýnilegt, að lögmanni hefir
ekki verið mikið í mun, að rótað yrði
meira upp í málinu, og að hann hafi
látið sér vel líka yfirlýsing stúlkunnar,
Frá Hljó&færahúsi Reykjavíkur
Hljóófæradeild:
Himr heimsþekktu LEVIN-
gítarar og fleiri tegundir —
klarínettur — blokkflautur —-
HAGSTRÖM-harmóníkur —
trompettar — saxafónar — og
varahlutar í hljóðfæri. —
Klannett- og saxófónblóð og
blaðskerar. Strengir fyrir ýms
strengjahljóðfæri.
Nótna- og plötudeild:
Stórlækkað verð á hljómlpötum.
Urval af léttri og sígildri tónlist
— dægurlög.
Kennslubækur fyrir ýms hljóð-
færi. Mikið úrval af nótum fyrir
skemmra og lengra komna.
Leðurvörudeild:
Dömutöskur — hanzkar —
penmgaveski. Tízkulitir.
Skjalatöskur — úrval af gesta-
bókum.
Póstsendum um land allt.
Öskum viðskiptavinum okkar fjær og nær gleðilegra jóla og
farsæls nýárs. Þökkum viðskiptin á liðnum árum.
HLJÓÐFÆRAHÚS REYKJAVÍKUR H.F.
Hafnarstræti 1. — Sími 1 36 56.
54 FÁLKINN