Fálkinn


Fálkinn - 17.04.1963, Blaðsíða 30

Fálkinn - 17.04.1963, Blaðsíða 30
Góðar bækur til fermingar gjafa Heimskringla Snorra Sturlusonar. Sturlunga. Passíusálmar Hallgríms Péturssonar með formála Sigurbjöms Einarssonar biskups og myndum Barböru M. Árnason. Hundrað ár í Þjóðminjasafni. Texti: Kristján Eldjárn. Myndir: Gísli Gestsson. Bókaútgáfa IHenningarsjóðs LEIKHÚSMÁLT TÍMAHIT AÐALSTRÆTI 1B. REYKJAVÍK Ég undirrituð/aður ...................................................... staða .............................................. sími ............... heimili ................................................................. óska að gerast áskrifandi að tímaritinu LEIKHÚSMÁL frá og með tölu- blaði nr............(8 hefti á ári). Mim ég greiða í ársgjald kr. 300.00 (+ kr.. 20.00 ef senda skal blaðið í innanlandspósti). hinn ........./........ 196 . . . . (undirskrift). Árgangurinn kostar 75.00 krónur. Kemur út einu sinni í mánuði. ÆSKAN er stærsta og ódýrasta barnablaðið. — Flytur fjölbreytt efni við hæfi barna og unglinga, svo sem skemmtilegar framhaldssögur, smásögur, fræðandi greinar og margs konar þætti og mynda- sögur. Síðasti árgangur var 300 síður með um 600 myndum. Allir þeir, sem gerast nýir kaupendur að ÆSKUNNI fá síðasta jólablað í kaupbæti. Gerizt áskrifendur að ÆSKUNNI. Greiðsla þarf að fylgja áskrift. Ekkert barnaheimili getur verið án ÆSKUNNAR. Afgreiðsla í Kirkjuhvoli, Reykjavík, Pósthólf 14. Ein IiöimI - einn fiitiir Framh. af bls. 19. þegar hann tæki hana upp aftur. Það kom ekki til mála. Það er áhætta við allt, huggaði hann sig við. Ekkert rán er unnt að skipu- leggja þannig, að það sé algerlega ör- uggt. Þetta var þannig áætlað, að það þyrfti ekki keppni til að koma því í kring .... og það þyrfti óvenjulega óheppni til að það færi út um þúfur. Harry gekk spölkorn eftir götunni og inn í lyfjabúð, þar sem hann keypti þrjár stórar rúllur af heftiplástri, sem hann fékk vel inn pakkaðar. Þetta var það síðasta af undirbún- ingnum. Nú ætlaði hann upp að sækja peningana! Hann gekk aftur út að horninu, þar sem hann beið, þangað til löreglumað- urinn gaf honum og nokkrum öðrum vegfarendum merki um að ganga yfir götuna. Hann hélt áfram inn í húsið, þar sem hann ætlaði að „vinna“, stökk léttilega stigana upp á þriðju hæð og gekk inn í afgreiðslu lánastofnunarinnar. Fyrir framan afgreiðsluborðið, sem skipti herberginu í sundur, sat mið- aldra maður við lítið borð, og var að útfylla umsókn um lán. Fyrir innan sátu tveir karlmenn og ein stúlka. Annar af karlmönnunum var gjaldkerinn, og fyrir framan hann var komið fyrir gljáfægðri látúnsplötu með nafni hans: J. Wilson.“ Starfsfé- lagi hans var ekki svo hátt settur, að eytt væri látúnsplötu á hann. Og stúlku- kindinni kom augljóslega afgreiðslan ekkert við, því að hún sat og hamraði á ritvél. Þetta var ekki neitt stórfyrirtæki, áleit Harry: Það hafði aðeins yfir þessu húsnæði að ráða. Maður gæti varla orðið sér úti um neina fjárfúlgu hér, en það gerði Harry sér ljóst. Hann gekk að afgreiðsluborðinu og slengdi böggli sínum á það. J. Wilson gjaldkeri leit sem snöggvast á hann, en snéri sér síðan aftur að vinnu sinni. Aðstoðarmaður hans reis á fætur, gekk að borðinu og spurði: — Hvað get ég gert fyrir yður? — Það skal ég segja yður......Harry dró skammbyssuna upp úr vasanum. — Þér skuluð fyrst og fremst ekki gera nein axarsköft, því að það getur orðið dýrt spaug. Maðurinn starði á skammbyssuna í hanzkaklæddri hendi ræningjans. Rit- vélin á bak við hann þagnaði, því að ungu stúlkunni varð ljóst, hvað var á seyði. — Wilson ætlaði að rísa á fætur. — Verið rólegir þar sem þér eruð, sagði Harry stillilega, og gjaldkerinn settist aftur. Harry leit á manninn, seih var að skrifa lánsumsóknina. — Þér skuluð fara inn fyrir borðið til þeirra, sagði hann. — En áður vildi ég biðja yður að loka dyrunum fram 30 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.