Fálkinn


Fálkinn - 17.04.1963, Blaðsíða 26

Fálkinn - 17.04.1963, Blaðsíða 26
KVENÞJÓÐIN Ritstjóri: Kristjana Steingrímsdóttir, húsmæðrakennari. Ávaxtahlaup. Góðir ábætisréttir Apríkósufrauð. 180 g. þurrkaðar apríkósur. Vatn. 6 msk. sykur. 6 eggjahvítur. 2 tsk. maizenamjöl. Smjör í mótið. Apríkósurnar lagðar í bleyti yfir nótt, soðnar í íbleytisvatninu þar til þser eru meyrar. Allur vökvi síaður frá. Merjið saman apríkósurnar og sykur- inn. Smyrjið mjög vel mót, sem er með beinum hliðum. Eggjahvíturnar (eiga helzt að hafa staðið 2—3 daga) stíf- þeyttar, maizienamjölinu blandað sam- an við, einnig apríkósunum. Hellt í mót (að %), ekki sléttað að ofan. Bakið frauðið við 180° í 30—35 mínútur. Opn- ið ekki ofninn á meðan á bakstri stend- ur. Borið fram strax með þeyttum rjóma eða apríkósusósu, sem búin er til úr því, sem síað var frá apríkósunum. Sveskju-bananaábætir. 4 bananar. 200 g. sveskjur. 20 möndlur. 2 msk. smjör. 2 msk. sykur. % tsk.. kanell. 2 egg. 3 dl. rjómabland. 2 msk. brauðmylsna. Hellið sjóðandi vatni á sveskjurnar og látið þær standa tilbirgðar, svo að þær þrútni út. Steinarnir teknir úr. Möndlurnar afhýddar og saxaðar gróft. Bananarnir skornir í sneiðar. Smyx-jið elfdast mót með smjöri, stráið möndlum innan í mótið. Sveskjum og bananasneiðum raðað í, kanelsykri stráð ofan á. Egg og rjómabland þeytt samán, setjið brauðmylsnuna saman við, hellt. yfir ávextina. Ábætirinn bakaður í ofni við 200° í 30 mínútur, eða þar til eggin hafa hlaup- ið. Borið fram með köldum rjóma. Ávaxtahlaup. 4 dl. góð saft. 2i/2 dl. vatn. 1 dl. hvítvín. % dl. sítránusafi. 10 blöð matarlím. Blandaðir ávextir, ferskir eða niðursoðnir. Matarlímið lagt í bleyti, kreist upp úr vatninu, brætt, hellt saman við vökvann, sem er látinn hálfhlaupa. Látið nokkrar matskeiðar af hlaupi í bleytt hringmót, ávöxtum raðað fallega ofan á, þegar það er nær fullhlaupið, Þegar fyrsta ávaxtalagið er orðið fast er meira af hlaupi hellt ofan á, síðan ávextir, hlaup o. s. frv., þar til mótið er fullt. Látið fullhlaupa á köldum stað. Borið fram með eggjasósu eða sabayon- sósu: 1 dl. hvítt vín, % dl. vatn, 2 msk. sykur, 3 eggjarauður, % dl. þeyttur rjómi. Allt nema rjóminn sett saman í pott, þeytt í, suðan látin koma upp. Þeytta rjómanum blandað saman við. Ferskjuábætir. 1 dós niðursoðnar ferskjur. % vanilla eða neugat-ís. V alhnetuk j arnar. Raðið ferskjunum á fat, flati kantur- inn upp. Setjið ísbita á hverja ferskju og skreytið síðan með valhnetu. Eplaábætir. 1 kg. epli. Sykur, sítróna. 2 eggjahvítur. 10 makarónur. Sherry. 100 g. möndlur. Þeyttur rjómi. Eplin soðin í mauk, marin gegnum sigti, krydduð með sykri og sítrónu (bæði safa og rifnu hýði). Möndlurnar saxaðar smátt, eggjahvíturnar stífþeytt- ar, hvorutveggja blandað saman við eplamaukið. Makarónurnar látnar á 26 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.