Fálkinn


Fálkinn - 17.04.1963, Blaðsíða 16

Fálkinn - 17.04.1963, Blaðsíða 16
út úr göngunum og staðnæmast við toll- stöðina. Út úr bifreiðinni stigu tveir ungir elskhugar, en ósköp voru þau pír- eygð, er þau komu út í ítalska sólskin- ið. Og bifreiðarstjórmn er fyrstur manna ók hér í gegn, á engin orð yfir tilfinningar sínar, — að fara gegnum fjallið á 20 mínútum, hvílík dýrð! En sleppum nú öllum draumum, skeð getur þó, að draumur þessi rætist um árslokin 1963. Á ætlaður kostnaður við bifreiðagöng undir hæsta fjall Evrópu, mun verða yfir 40 millj. dollara. Eins og moldvörpur brjóta þeir sér braut gegnum hæsta fjall Evrópu, frönsku og ítölsku verkfræðingarnir. Unnið er frá tveim hliðum, svo rætzt geti sem fyrst ein af tilkomumestu neðanjárðarfyrirætlunum heimsins. Þegar sá dýrmæti dagur rís, að þeir mætast í miðju fjallsins, verður búið að brjóta upp 99.5 millj. rúmmetra úr bergi fjallsins. Samkvæmt áætlunum má vænta að árleg umferð um bifreiðagöngin verði: 164 þúsund léttar bifreiðar, 24 þúsund langferðavagnar, 49 þúsund mótorhjól og 15 þúsund vörubifreiðar. Samtals eiga þessu flutningatæki að geta flutt 1.5 millj. farþega og 75 þús. tonn af vörum. Vafalaust verða þessi jarðgöng þýð- ingarmikil fyrir samgöngumál Evrópu. Þau munu stytta leiðina París—Torino um 220 km. og leiðina París—Mílano um 313 km. Leiðin milli Genfar og Torino er nú 317 km. að sumrinu en síðari hluta ársins 790 km. Jarðgöngin munu stytta þessa leið niður í 217 km. á öllum árstíðum. Sex mánuði ársins er leiðin um Alpafjöll ófær vegna Hver mundi trúa því, að bráðum verði ekið bifreið milli Frakklands og Ítalíu á 20 mínútum? Þó ótrúlegt sé, mun þetta þó bráðlega verða veruleiki. Frakkar og ítalir hafa bundizt samtökum til þess að gera glæsilega bfreiðabraut gegnum fjallið, þar sem leiðin er stytzt — 12 km. Líklegt er að göngin verði fullgerð í síðasta lagi vorið 1964. Verða þetta lengstu bifreiðagöng sem gerð hafa verið og vafalaust verða þau mjög þýð- ingarmikil samgöngubót fyrir alla Ev- rópu, enda verður þetta eina færa sam- gönguleiðin um Alpafjöllin, vetur jafnt sem sumur. Höfundur greinarinnar heimsótti þetta mikla mannvirki, eftir að ftalirnir höfðu fengið eldskírnina í hinni ævin- týralegu sókn sinni inn að fjallsmiðj- unni. Segir hér frá hinu merkasta er hon- um þótti, úr för þeirri. Þeir sem þekkja hvílík torfæra Alpa- fjöllin hafa verið á samgönguleiðum Evrópu um aldaraðir, hljóta að sjá sýn- ir í návist þessa mannvirkis. Ég sá fyrir mér nýtízku bifreið renna Það gefur auga leið hvílíkt erfiði er að gera bessi miklu jarðgöng og hér að of- an sjást nokkrir verkamenn við vinnu sína. Á stóru myndinni hér á móti er lok- ið nýjum áfanga og 1000 metra markið er sett upp. Senn fer tími sumarleyf- anna að hefjast og í þess- ari grein segir frá mann- virki, sem auSveldar ferðamönnum aS bregða sér frá Ítalíu til Frakk- lands og öfugt. Hér er um aS ræða stærstu jarðgöng í heimi, jarð- göngin undir Mont Blanc, Kortið sýnir hvar jarðgöngin liggja gegnum Mont Blanc. Þessi stærstu göng veraldar munu tengja Italíu og Frakkland milli bæjanna Entre- ves (ftalíu) og Chamonix (Frakkl.). LENGSTU JARDGÖNG KXEIMS 16 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.