Fálkinn - 17.04.1963, Blaðsíða 34
PANDA DG UPPFINNINGAMAÐURINN MIKLI
Hugsuðurinn flýtti sér að ruslahrúgunni, sem Panda
leyndist í. „Hvers vegna ætlar þú að strjúka á kerr-
unni minni?“ spurði hann. „Það var nú kerran, sem
strauk með mig,“ svaraði Panda, og skreið frá haugn-
um. „Þú kannt ekki að stjórna henni,“ sagði Hugsuð-
urinn. „Þú bara.“ „Já, segðu mér það seinna,“ sagði
Panda. „Við skulum fyrst ryðja draslinu ofan af lög-
reglumanninum, svo að hann verði ekki alve brjál-
aður.“ „Nú, hvar er hann?“ spurði Hugsuðurinn for-
viða. „Hann er eihvers staðar undir haugnum,“ svar-
aði Panda.
Panda og hugsuðurinn flýttu sér nú að fleygja drasl-
inu frá. Lögreglumaðurinn var óður af vonsku, en
hann gat ekki aðhafst neitt, hann var sem afvelta
milli tveggja járnstanga. „Ó,“ hrópaði Panda, „hann
er fastur með höfuðið milli járnstanganna.“ „Alveg
rétt,“ hrópaði vörður laganna, „og þið skuluð þess
vegna þurfa að dveljast á bak við járnstengur. Svona
flýtið ykkur að losa mig.“ En þar sem Panda reyndi
að losa lögreglumanninn, fóru járngrindurnar allt í
einu af stað, hægt í fyrstu, en síðan með vaxandi
hraða. „Stopp“, hrópaði reiði lögregluþjónninn. En
Panda gat ekkert gert, hann stóð bara og horfði.
Járngrindin lenti á þorpsvatnsbólinu. Lögregluþjónn-
inn sat á henni og vakti þessi sýn feikna athygli.
Brátt bar að bæjarstjórann, sem vildi kynna sér málið.
„Hvað á þetta að þýða, sagði hann, liggja í rúminu
um hábjartan daginn og það meira að segja á almanna-
færi. Þú ættir að skammast þín.“ Ég var b ... ar . ..
a að rey ... na st... op ... pa .. kerruna," sagði
lögregluþjónninn. „Hún ók á ólöglegum hraða.“
„Handkerra?“ spurði bæjarstjórinn, „þig hlýtur að
vera að dreyma.“ En lögregluþjóninn hafði ekkert
dreymt. Hugsuðurinn, sem var á rúlluskautum,
stýrði kerrunni út úr þorpinu. Panda sat ofan á henni.
34 FALKINN