Fálkinn - 17.04.1963, Blaðsíða 7
mjög skemmtileg flest. Þátt-
urinn eitt orð við ... er alveg
príma, meira af svoleiðis. En
segið mér eitt, Hvenær ætlið
þið að stækka Fálkann? Mér
finnst að þið gætuð vel haldið
gangandi blaði upp á 50 síður
eða meira. Ég hef séð mörg
erlend vikublöð, og úr þeim
má eflaust þýða margt
skemmtilegt efni (t. d. norsku
vikublöðunum). Og svo er
það eitt ennþá. Hvar getur
maður fengið keypta gamla
árganga af Fálkanum?
Hoffmann
Vestmannaeyjum.
Svar:
Viö þökkum þér bréfiö Hoff-
mann og munum taka þetta allt
til athugunar. Varöandi eldri
árganga af Fálkanum getum viö
sagt þér aö á afgreiöslunni getur
þú fengiö allt blaöiö frá því aö
því var breytt, þ. e. i ágúst 1960
og til þessa dags. Um eldri ár-
ganga er lielzt aö leita á forn-
sölur.
Heimilisfang.
Kæri Fálki!
Ég sá í blaðinu um daginn
að þú útvegaðir heimilisföng
Robertino Loreti, Conny Fro-
bess og Elvis Presley. Nú
langar mig að vita hvort þú
getur ekki útvegað mér
heimilisfang Otto Branden-
burg. Ef það er voða mikil
fyrirhöfn þá skaltu ekki vera
að því. Ég les alltaf Fálkann
og finnst það skemmtilegf
blað. Otto Brandenburg er
uppáhaldssöngvarinn minn.
Svo þakka ég ykkur kærlega
fyrir.
Ella.
Svar:
Heimilisfang Otto Branden-
burg er: Skandinaviske Grammo-
fon, Höffdingsvej 8 Köbenhavn,
Danmark.
Kynning bóka.
Fálkinn vikublað!
R,eykjavík.
Eitt er það sem mig hefur
lengi langað til að skrifa ykk-
ur um og þakka fyrir. Það er
kynning ykkar á væntanleg-
um eða nýútkomnum bókum.
Þetta er mjög góð þjónusta
og ég veit að það eru margir
sem kunna að meta þetta. Ég
minnist þess að á s.l. haust
kynntuð þið „Syndina“ og
„Mína menn“ og einhverjar
fleiri bækur. Nú ekki alls
fyrir löngu voruð þið með
kafla úr bókinni ,,Dagblað“
og þessi kynning á sögunni
þótti mér góð.
Haukur Jónsson.
Góðar framhaldssögur.
Kæri Fálki.
Mér finnst þú yfirleitt
ágætis blað og allir ættu að
finna þar eitthvað við sitt
hæfi. Ég fyrir mitt leyti les
þig venjulega orði til orðs, en
systir min ræður krossgáturn-
ar. (Hún les þig allan líka).
Ég vil sérstaklega þakka þér
fyrir ágætar framhaldssögur.
Svo óska ég þér langra líf-
daga og vona að þú fljúgir
enn, með góða skemmtun, út
til lesendanna.
JMS Árnessýslu.
Knattspyrna.
Kæri Fálki!
Getur þú sagt mér hvort
nokkrir aðrir en Albert Guð-
mundsson og Þórólfur Beck
hafa gerst atvinnumenn í
knattspyrnu. Það er vegna
veðmáls sem ég spyr þig að
þessu og bið þig að hraða
svarinu sem allra mest. Með
þökk fyrir.
Stefán.
Svar:
Okkur er ekki kunnugt um aö
fleiri knattspyrnumenn íslenzkir
en þeir Albert og Þórólfur hafi
gerst atvinnumenn á þessu sviöi.
RíkharÖur Jónsson lagöi ekki út
á þessa braut og Helgi Daníels-
son fór utan i fyrra haust til aö
athuga þennan atvinnuveg en
sneri heim aftur þótt honum
byðist atvinna.
Svar til Jóa.
Þaö eina sem viö höldum aö
þú getir gert í þessu máli er aö
gera ekki neitt. ÞaÖ gefst oft
vel!!
Fyrirspurn.
Háttvirta blað!
Fyrir nokkru var viðtal í
Fálkanum við Jenna Jónsson
dægurlagasmið. í þessu við-
tali skýrði hann frá því að
væntanleg væru tvö ný lög
eftir sig á hljómplötu. Nú
langar mig að spyrja hver
gefi þessa plötu út.
Með þökk.
Ólafur.
Svar:
Hljóöfœraverzlunin Drangey
mun gefa þessa plötu út.
I
HrútsmerkiS (21. marz—20. apríl).
Vikan ber góðan árangur, það er að segja ef þér
ljúkið einu verki, áður en þér byrjið á því næsta.
Það hefur löngum verið veikleiki yðar og hefur oft
gert yður lífið brogað. — Haldið ekki fullyrðingum
yðar endalaust til streitu, þegar sannað er, að þér
hafið farið með alrangt mál.
Nautsmerkið (21. apríl—21. maí).
Þetta verður erfið og eilítið dapurleg vika, og hið
eina sem þér getið gert, er að þrauka og gera ævin-
lega það bezta og réttasta hverju sinni. Látið ekki
erfiðleikana buga yður. Við fáum öll okkar skammt
af þeim og gleðiíegir tímar eru ef til vill á næsta leiti.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní).
I þessari viku fáið þér tækifæri til að framkvæma
áætlun, sém þér hafið lengi dekrað við í huganum.
Stjörnurnar eru sérstaklega hagstæðar fyrir fólk, sem
sýslar við viðskipti og önnur peningamál, og þess
vegna er óhætt að leggja út í fjárhagslega tvísýnu,
ef yður lýst svo.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Það má segja, að utan um líf yðar hafi myndazt
fastmótaður og þykkur rammi og út fyrir hann hafið
þér ekki farið hingað til. Nú er mál til komið, að
brjótast út úr fangelsinu og sjá: Yður mun létta
stórlega og ásaka sjálfan yður fyrir að hafa ekki
gert þetta fyrr.
hjónsmerkið (23. júli—23. ágúst).
Vikan byrjar heldur hversdagslega og tilveran verð-
ur grá og tómleg framan af. En skyndilega birtir til
með komu ákveðinnar persónu, sem er yður einstak-
lega hjartfólgin þessa dagana, að ekki sé meira sagt.
Þið takið hvort öðru að sjálfsögðu með opnum örm-
um og eigið margar unaðsstundir saman.
Jómfrúarmerkið (2U. ágúst—23. sept.).
Vikan verður erilsöm, en góð, þegar á allt er litið.
Þér hafið ýmislegt á prjónunum og eruð þegar á
góðri leið méð að koma því í framkvæmd. En þér
ættuð að hafa meiri samskipti við annað fólk, segja
öðrum frá áformum yðar og þiggja góð ráð og ábend-
ingar. Það er ekki á allra færi að standa einn.
Vógarslcálarmerkið (2i. sept.—23. okt.).
Þér eruð þegar orðinn langþreyttur á því að bíða
eftir að eitthvað gerist, og sennilega verður yður
loksins að ósk yðar. En ekki verða þeir atburðir allir
þægilegir. Þó ætti ekkert að vera svo bölvað, að ekki
megi sigrast. á því eða gera gott úr því. Það gildir
að halda jafnvæginu, þegar mest reynir á.
Sporðdrekamerkið (21. okt.—22. nóv.).
Þér hafið löngum unnið þegjandi og hljóðalaust
og látið það viðgangast, að aðrir menn fengju heiður-
inn af vel unnum verkum yðar. En af tilviljun gerist
í næstu viku atvik, sem afhjúpar leyndardóminn. Þér
fáið mikið hrós fyrir starf yðar og yður verða falin
stærri verkefni.
Bogmannsmerkið (23. nóv.—21. des.).
Þér uppgötvið um miðja næstu viku, að algjör
straumhvörf hafa orðið í lífi yðar. En ef þér viður-
kennið það fyrir sjálfum yðar í tíma og hegðið yður
samkvæmt hinum nýju viðhorfum, þá fer allt vel.
Það er erfitt að breyta um líferni, en óhjákvæmi-
legt, þegar pyngjan heimtar það!
Steingeitarmerkið (22. des.—20. janj.
Vikan einkennist af atburðum einkalífsins. Það ger-
ist sitt af hverju og margt af því nýstárlegt og
spennandi. Loksins sýnið þér það áræði að bregða
út af vanabundnu lffi yðar, sem var orðið æði þreyt-
andi, kannski ekki fyrst og fremst fyrir yður, heldur
konuna yðar.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febrj.
Þcr fáið sérlega góð tækifæri í þessari viku og
fáið erfiði yðar rfkulega launað. Hræðizt ekki, að
taka yður fyrir hendur ný og erfið verkefni. Geta
yðar og starfsorka er meiri en yður grunar. — Viku-
lokin verða upphaf að nýju og rómantísku tfmabili
hjá ungu fólki.
Fiskamerkið (20. febr.—20. marz).
1 bessari viku gefst yður tóm til að iðka tómstunda-
iðjuna, sem þér hafið meiri áhuga á en atvinnu yðar,
en hafið getað sinnt lítið að undanförnu. Gætið þess
þó, að tómstundaiðkunin verði ekki það mikil, að fjöl-
skyldulífið allt verði útundan fyrir bragðið.
FALKINN
7