Fálkinn - 17.04.1963, Blaðsíða 4
séð & heyrt
Alec Guinness er mjög vinsæll leikari hér á landi sem annars
staðar, og er mynda með honum beðið með mikilli eftirvæntingu.
Hann er nú að leika í nýrri mynd. Heitir hún Hrun Rómaríkis.
Leikur Guinness þar Markús Aurelius keisara. Myndin hér að ofan
er af því, þegar Guinness ornaði sér yfir opnum eldi á milli atriða.
Daniel Gelin, franski
leikarinn, sýndi mjög
góðan leik í kvik-
mynd, sem gerð var
eftir leikritinu Tchin-
Tchin, sem fékk hér
nafnið A undanhaldi
og sýnt var í Þjóðleik-
húsinu í vetur. Hann
er nú á leið til ftalíu,
þar sem hann mun
leika í tveimur mynd-
um. Onnur verður
meira að segja gerð
í samvinnu við Rússa.
Hann er vanur að hafa
mörg járn í eldinum,
og fyrir skömmu kom
hann til Parísar frá
Portúgal, en þar hafði
hann verið að vinna að myndinni, „Les egarements“, í samvinnu
við Pierre Kast. Myndin, sem hér birtist af honum, er tekin á
heimili hans í París, meðan hann dvaldi þar við. Kona hans er
fyrrverandi sýningarstúlka og heitir Sylvie, drengirnir þeirra heita
Manuel, 4 ára, og Fiona, 1 árs.
Eruð þér ein af þeim konum, sem fara úr skónum, þegar þær
sitja í bíó eða leikhúsi? Vitið þér ekki, að þessi vani getur eyði-
lagt hjónaband yðar? Enski fótlæknirinn Keith Blagrave, sem rann-
sakar yfir 100 fætur á viku, segir um þennan vana:
— Konur, sem fara úr skónum, hvenær sem þær sjá sér færi á,
gera það af því, að þær kenna til sársauka, en þær eru orðnar
svo vanar þessum sársauka, að þær finna varla til hans. En sárs-
auki í hinum viðkvæmu taugum í fætinum, hefur mjög mikil
áhrif á skap kvenna. Brátt taka þessar konur að agnúast við eigin-
menn sína og það kemur að því, að þær neita algerlega að fara
með þeim út; vilja heldur vera heima og arka um gólf í þægileg-
um inniskóm. Þetta vandamál skýtur upp kollinum, þegar konurnar
eru á milli 40—50.
4 FÁLKINN
Erkibiskupinn af
Kantaraborg þykir
spakur maður vera.
Eitt sinn sagði hann
í borðræðu:
— Ja, æskan hún
lætur ekki að sér
hæða. Það er ekki
nema von, að hún
láti fyrirmæli og
siðalögmál fullorðna fólksins sem vind um
eyrun þjóta, því að fullorðna fólkið virðir
þau ekki heldur.
★
Þeir voru bræður Gestur á Hseli og Eirík-
ur Einarsson alþingismaður. í mörgu voru
þeir ólíkir, þó vissulega mætti segja, að margt
væri líkt með skyldum.
Einhverju sinni greip þá kerskni og þeir
tóku að stríða hvor öðrum og Gestur sagði:
— Þú ert eins og þokubakki, sem enginn
sér í gegnum.
Eiríkur lét ekki standa á svarinu:
— Og þú ert eins og opinn gluggi, sem
allir hlaupa inn og út um.
★
Gamli G. B. Shaw sagði eitt sinn:
— Enskar stúlkur eru þær verstu, sem
ungur íri getur mætt. Ef maður slær írskri
stúlku gullhamra, þá hristir hún höfuðið í
fyrirlitningu og segir: Ó, í guðanna bænum
þegið þér.“ En ensk stúlka roðnar og stynur
upp með erfiðismunum: „Ég vona að þér
meinið, það sem þér segið.“
Og það er fjandi erfitt að útskýra, að
það gerir maður ekki.
★
Átta framúr-
skarandi skurð-
læknar og sex
hjúkur gerðu fyr-
ir stuttu krafta-
verk. Peter Lucas
kaupsýslumaður
í Lundúnum yfir-
gefur spítala sinn
heill heilsu. í
fyr.sta skipti í
veraldarsögunni
hafði tekizt að
taka nýra úr
deyjandi manni og setja yfir í annan. Peter
Lucas, kaupsýslumaður sá, sem nýrað var
sett í, var dauðans matur, en þá lézt annar
sjúklingur í sjúkrahúsinu og læknarnir tóku
til óspilltra málanna; þeir tóku nýrað úr hin-
um látna og græddu í Peter, og björguðu með
því lífi hans. Þegar Peter Lucas yfirgaf svo
spítalann, trúlofaði hann sig 19 ára gamalli
hj úkrunarkonu, en hún hafði .stundað hann
af mikill kostgæfni á sjúkrahúsinu.