Fálkinn - 11.09.1963, Page 9
Textis
Sverrir Tómasson
Myndir:
Runólfur Elentínuson
hafi unnizt; bcrklasj úklingum fer
ört fækkandi og fátítt er, að menn
taki veikina. Þess vegna sá SlBS sér
fært að reka hér vinnuheimili fyrir
öryrkja.
Við sjáum Reykjalund tilsýndar.
Þetta er snyrtilegur staður heim að
horfa. Hús vistmanna standa í skipu-
legri röð; trjágróður við hvert hús
og lítill gi'asblettur. Sunnan við vist-
mannabústaðina, er aðalbyggingin,
tveggja hæða, myndarlegt hús.
Það stendur maður á stéttinni fyr-
ir framan aðalbygginguna, þegar
okkur ber að garði; Haukur Þórðar-
son læknir. Hann býður okkur vel-
komna.
Haukur segir okkur, að sjúkra-
þjálfunin fari fram í kjallaranum.
Hann hafi verið innréttaður sérstak-
lega í því skyni og fengin hafi verið
öll nauðsynleg tæki fyrir endurþjálf-
un öryrkja.
Og meðan við göngum niður í
kjallarann, þá verður okkur hugsað
til örlaga þess fólks, sem hefur orðið
lömunarveikinni að bráð. Hún hafði
oft á tíðum stungið sér niður hér á
landi og valdið talsverðu tjóni. Við
hugsum um dr. Salk og aðra þá, sem
fundu upp bóluefni gegn þessari
hættulegu veiki og bjargað þannig
mörgum manninum frá veikinni..
Kjallarinn er mjög vistlegur og
alls ekki hægt að sjá, að hann sé ætl-
aður sjúklingum. Hann er hólfaður
niður í mörg herbergi, og í hverju
herbergi er eitthvert tæki, sem stuðla
á að auknu þi'eki sjúklinganna. Eitt
tækið er t. d. til að þjálfa hjarta-
sjúklinga og lungnasjúklinga, annað
fyrir handlama fólk og hið þriðja
fyrir fótlama.
Þarna sjáum við hjólhest svip-
aðan þeim, sem Benedikt Jakobsson
notar til að reyna þrek íþróttamanna
vorra. Þessi er ætlaður til að reyna
hve mikinn kraft sjúklingarnir eigi
til og hve mikið sé þorandi að leggja
á þá. Við komum auga á tröppu og
spyrjum til hvers hún sé notuð. Við
fáum það svar að hún sé notuð til
að æfa gang. Það eru líka í hillum
lyftitæki, sem styrkja eiga hand- og
bakvöðva sjúklinganna.
Það er piltur að ganga í eins kon-
ar grind, þegar við kíkjum inn í eitt
Sjá næstu síðu.
FALKINN
9