Fálkinn


Fálkinn - 11.09.1963, Page 34

Fálkinn - 11.09.1963, Page 34
PANDA OB TÖFRAMAÐURINN MIKLI lÍÉÍl : j „Verði ykkur að góðu, utanhellisbúar,“ hrópaði hinn un^arlegi Plútanus. „Gefið „Innri manninum.“ Meðan þið borðið get ég kannski talað við ykkur einslega?" „Hvað erum við að gera hér í þessum helli?“ hvíslaði Panda að Jollypop. „Skyldi hann vera hættulegur? Og... jæja, mér líkar þetta alls ekki.“ Þjónninn Jollypop hélt hugrakkur áfram að gæða sér á súra ávextinum með greinilegri vanþóknun. „Ég er sam- mála,“ svaraði hann þurrlega. „En má ég benda á, að hann hefur okkur á valdi sínu í augnablikinu? Mér finnst ráðlegt á meðan að koma kurtéislega fram við hann og bragða á ávöxtunum, sem hann hefur boðið okkur. hann er kominn í einkennilega stöðu núna.“ „J—já...“ samþykkti Panda og starði á Plútanus, sem hékk niður úr loftinu — á hælunum. Þegar Jollypop hafði með nokkrum erfiðismunum lok- ið við sítrónuna, ræskti hann sig og ávarpaði Plútanus, sem gekk fram og aftur á hinn undaregasta hátt. „Leyfið mér, göfugi herra,“ byrjaði hann, „að spyrja yður nokkurra spurninga vegna húsbónda míns, herra Panda. Okkur finnst sá háttur, sem hafður var á flutningi okkar hingað, dálítið undarlegur. Og okkur þætti gaman að fá að vita um ástæðuna fyrir... boði... yðar“ „Utanhellisskraf,“ sagði hinn aldraði herramaður og gekk upp vegg hellisins. „Samt sem áður mun ég nú gefa skýringu. Sjáið þið til, mér er leyft einu sinni á öld, að koma með utanhellismenn inn í „Innriheim“. Á þennan hátt fræðist ég um ytri og innri þróun Utanheimsmanna ... Og ég verð að segja, að ég er alltaf undrandi á hinni furðulegu hegðun ykkar ytriheimsmanna ... „Þér eruð undrandi á okkur? spurði Panda furðulostinn um leið og hann horfði á herra Plútanus ganga á loftinu. þér þá að draga okkur hing- að? Hvers vegna komuð þér ekki til landsins okkar?“ „Táknrænt fyrir þá, sem búa fyrir utan,“ sagði herra Plútanus. „Kannski gætum við rannsakað yður, ef þér heimsæktuð okkur,“ hélt Panda áfram. „Góð hugmynd," skríkti Plútanus. „Það er kominn tími til rannsóknar. Ég fer út. Ég fylgi ykkur aftur „til ytriheims.“ Panda langaði að komast frá hinum og snúa aftur til hins eðlilega heims. Á hinn bóginn hafði hann mikinn áhuga á hinum merkilega Plútan- usi. , Sögðuð þér, að þér hefðuð látið koma með okk- ur hingað til að rannsaka okkur?“ spurði Panda. „Svona talið þið, sem búið fyrir utan,“ svaraði gamli maðurinn frá loftinu. „En það er hin innri ætlun mín.“ „Þetta er þá nokkur sjálfselska af yðar hálfu,“ kallaði Panda reiðilega. „Ef þér vilduð rannsaka okk- FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.