Fálkinn


Fálkinn - 16.11.1964, Side 20

Fálkinn - 16.11.1964, Side 20
Maðurinn, sem þeytzt hafði milli heimsborganna, ort suður f Afríku drápur á íslenzku, selt norðurljósin og fossana, efnt til stórvirkjana og gullgraftrar, búið í glæstum salakynnum og umgengizt höfðingja og baróna, látið að sér kveða í lands- málum og stórpólitík og tekið þátt í kóngsveizlum, þessi maður hreiðraði um sig hér í litlu húsi fjarri mannabyggð, á aðra hönd var beljandi hafið og á hina eyðileg fjöll og firn- indi. Þá var hann kominn að fótum fram þegar hann settist hér að, Elli kerling hafði komið honum á kné. Hugur hans, sem forðum hafði flogið um ómælisgeim í ljóðum og ræðu, var nú tekið svo að förla, að hann þekkti ekki lengur suma vini sína nema endrum og eins. Hlín Johnson tók að sér hið aldna skáld og hlúði að honum, þegar skáldið og heimurinn höfðu skilið að skiptum. Hér í Herdísarvík veitti hún gömlum manni aðhlynningu. Það sagði mér kunnugur maður, að stund- um hefði mátt sjá Einar Benediktsson staulast út úr húsinu á góðviðrisdegi og ganga fram á tún. Þar settist hann niður og tók upp úr vasa sínum blað og blýant, páraði á blaðið örfá orð og tók sér svo langa hvíld. Síðan skrifaði hann kannski eitt orð í viðbót, og enn varð langt hlé. Úr þessu urðu aldrei annað en hálfkveðnar vísur, vísnabrot, ef til vill hálf hending. Siðan reis skáldið upp af túninu, hægt og seinlega og staul- aðist til bæjar ... En hafið beljaði við ströndina eftir sem áður. Einar Benediktsson dó árið 1940 og arfleiddi Háskólann að hinu mikla bókasafni sínu og svo jörðinni Herdísalvík. Ef til vill verður þar hressingarheimili fyrir prófessora, þegar fram líða stundir. Tæplega verður fitjað þar upp á búskap að nýju. Þótt byggð dragist saman í Selvogi, hækkar vegur Stranda- kirkju með hverju ári. Enginn veit með vissu, hvenær fyrst var tekið að heita á Strandakirkju en hitt er víst, að alla tíð hefur hún þótt bregðast vel við áheitum. Sagnir herma, að hún hafi upprunalega verið byggð fyrir áheit. íslenzkir far- menn á heimleið úr Noregi á skipi hlöðnu húsaviði villtust í hafi og fengu réttu stóra. Hrakti þá lengi og voru vistir þrotn- ar, en leki kominn að skipinu, og fengu þeir ekki lengur

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.