Fálkinn - 16.11.1964, Blaðsíða 21
Beki var áður
búsílag sem
bragð var að, en
nú orðið hefur
reki minnkað að
miklum mun.
Þennan dag var
brim með
minna móti í
Selvogi en oft
heyrist ekki
mannsins mái í
húsum inni fyrir
gnýnum.
varizt áföllum. Þá gerði for-
maðurinn það heit, að þeir
skyldu byggja kirkju úr far-
viðnum, ef þeim auðnaðist
að ná landi. Og leið nú ekki
á löngu, áður en þeir fengu
landkenning af Selvogi, en
þar var foráttubrim með
allri ströndinni. Þá sjá þeir
veru alskínandi bera yfir
brimgarðinn og sigldu þang-
að. Þar var sund og sjólaust
að kalla, og lentu þeir skipi
sínu heilu og höldnu. For-
maðurinn og hásetar hans
létu ekki sitja við orðin tóm,
heldur reistu kirkju á staðn-
um, en víkina kölluðu þeir
Engilsvík, og heitir hún
svo enn' í dag. Rekamark
Strandakirkju er A eða Á
og hafa því ýmsir leitt að
því getum, að formaðurinn
hafi heitið Árni og sumir
jafnvel haldið því fram, að
hér hafi verið á ferð Árni
biskup Þorláksson, ■ Staða-
Árni, En allt er á huldu um
menn þessa og þjóðsagan ein
til frásagnar.
Hins vegar er heitið á
Strandakirkju enn í dag, ef
mikið liggur við, enda er
þessi fátæklega kirkja á
Framhald á bls. 34.
Rafn Bjarnason í kirkju-
dyrum Strandakirkju.