Fálkinn


Fálkinn - 14.12.1964, Blaðsíða 9

Fálkinn - 14.12.1964, Blaðsíða 9
UH ifl' nokkuð gott og mun betra en menn vilja vera láta. Hins veg- ar verður því ekki í móti mælt að dagskrá þess er oft á tíðum nokkuð þunglamaleg. Þetta hendir einkum um stórhátíðir. Og nú fara jólin í hönd, þess vegna datt mér í hug að minn- ast á væntanlega jóladagskrá. Jóladagskráin er yfirleitt nokk- uð þunglamaleg. það er lítið um skemmtilegt efni og þætti nema þá helzt á gamlárskvöld. Vitanlega á dagskráin að vera hátíðleg og kannski nokkuð þung svona á köflum en hún mætti vera léttari stundum og á ég þá helzt við dagana milli jóla og nýárs. Á þeim kvöldum, sem þarna eru á milli mætti vera dálítið meira um skemmtiþætti og létta dag- skrá heldur en verið hefur. Það yrði án efa vel þegið af hlust- endum. Að svo mæltu hef ég þessi orð mín ekki lengri en kveð ykkur með beztu óskum. Þ. Ó. Svar: . Ef þú ættir eitthvaö af skemmti- legu efni í fórum þlnum þá œttir þú að hafa samband viö útvarpiö, þér yröi áreiöanlega vel telciö þar. Þeir sem sjá um dagskrána þar hafa oft látið i Ijósi vandrœöi sin meö slcemmtiþætti og efni. Þeir eru nefnilega fáir, sem vinna eitt- Hitt kann svo aö vera annaö mál, aö útvarpiö borgar yfirleitt ekki hátt verö fyrir efni. Bókaútgáfa. Háttvirta blað! Fyrir hver jól flæðir á bóka- markaðinn hundruð bóka, inn- lendra og þýddra. Þetta eru bækur um hin ólíkustu efni og líklega munu þar flestir finna eitthvað við sitt hæfi. Nokkuð eru þessar bækur umdeildar að gæðum, bæði innlendar og er- lendar, og mönnum þykir sem skáldsögum hafi heldur fækk- að og hnignað á liðnum árum. Það komi nú út fátt góðra skáldsagna og það er þá að mér skilst ekki eingöngu átt við inn- lendar skáldsögur heldur þýdd- ar líka. Þeir sem svo mæla hafa nokkuð til síns máls. Annars var það ekki þetta at- riði, sem ég vildi gera að um- talsefni í þessu bréfi heldur bókaútgáfuna almennt. Þetta flóð á jólamarkaðinn er að verða alveg óþolandi. Og svo líður fram að næstu jólum þar til eitthvað kemur út. Nú er ég alveg viss um það að fólk les ekkert meira um jólin en venjulega, eða minnsta kosti ekki meira svo orð sé á haf- andi. Og ég er þeirrar skoðun- ar að fólk lesi nú miklu minna af bókum en áður tíðkaðist. Nú er mér sagt að margir þeirra sem eru með bókaútgáfu fyrir jólin fari oft heldur illa út úr þessari útgáfu sinni vegna þess að margar bækurnar kafni alveg í þessu flóði. Og það séu ekki alltaf verstu bækurnar er liggi óhreyfðar. Þetta kann að vera eðlilegt þegar hugsað er um þessi mál. Þess vegna hef ég verið að hugleiða hvort bækurnar muni ekki alveg eins seljast hér á landi þótt þær séu ekki gefnar út rétt fyrir jólin. Bókab. Svar: Þessi bókaútgáfa á þessum tima liefur veriö mikiö rædd af þeim, sem þessum málum eru kunnastir. Því er haldiö fram af mörgum, aö bækur seljist nú nær eingöngu til jólagjafa, fyrir jól og til af- mœlisgjafa. Sé þetta rétt liggur þaö auövitaö Ijóst fyrir aö bækur á aðeins aö gefa út fyrir jólin. Sé þetta lúns vegar ekki rétt ligg- ur þaö Ijóst fyrir aö bækur á aö gefa oftar út en fyrir þessa stór- hátíö. Og lcannski má varpa fram þeirri spurningu hvort nóg sé gert til þess aö koma fólki til aö lesa góöar bœkur og hvort þœr séu auglýstar á réttan liátt. Svo er þaö auövitaö alltaf viökvæmt mál livaö kalla beri góöar bækur. Bókaútgáfa er mjög dýr hér á landi. Þaö liggur m. a. í því aö pappírinn, sem til þeirra er notaöur er hátt tollaöur. Allur pappír sem fluttur er hingaö inn er hátt tollaöur nema pappír til dagblaöa. Samkvæmt skoöun þess opinbera eru dagblöö því einu menntirnar, sem bera á á borö fyr- ir fólkiö. Nú lesa mun fleiri bækur á er- lendum málum en áöur var. Af þessu leiöir aö bókaútgáfa hér á í mjög haröri samkeppni viö inn- fluttar bœkur. Þær eru fluttar inn ótollaöar eins og vera ber. Allt prentað mál er flutt inn ótollaö hvort lieldur þaö eru bækur eöa blöö. Erlend vikublöö eru t. d. flutt inn tollfrjáls þótt vikublöö hér veröi aö greiöa tolla af pappír þeim, sem í þau fer. Þessi hátoll- ur á pappír er mjög athyglisverö- ur þegar þaö er hugleitt aö alltaf er veriö aö tala um aö varöveita íslenzlca tungu. Þaö liggur þvi Ijóst fyrir aö ef einhverra úrbóta er aö vænta í þessum efnum veröur aö flytja inn pappír til bókaútgáfu hér toll- frjálsan. Raunar eru fleiri atriöi l þessu sambandi þótt hér hafi aö- eins veriö vikið aö einu þeirra, því sem skiptir hvaö mestu máli. VIÐ HÖFUM LYKILINN AD ANÆGJULEGRI FERÐ YÐAR UM LANDIÐ FALKINN 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.